Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vill að ástandsskýrslur fylgi öllum íbúðum á sölu

Björn Leví Gunn­ars­son er einn þeirra fimm þing­manna sem lagt hefur til á Alþingi að skylda verði að láta ástands­skýrslu um íbúð­ar­hús­næði fylgja við sölu­ferli. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu er einnig kveðið á um raf­ræna við­halds­dag­bók húss­ins. Þing­mað­ur­inn segir þetta geta spornað við hvata til svartrar vinnu.

Ástands­skýrslur skulu fylgja sölu­yf­ir­litum alls íbúð­ar­hús­næðis, verði til­laga fimm þing­manna á Alþingi að frum­varpi og síðar lögum. Tillagan kveður á um að þeir sem útbúa þessar skýrslur verði ábyrgir fyrir göllum sem rýra verð­mæti eign­anna og þeir verði tryggðir með sjálfs­á­byrgð­ar­trygg­ingu. Til­gang­ur­inn er að tryggja skað­leysi kaup­enda og selj­enda fast­eigna þegar mis­tök þeirra leiða til bóta­skyldu.

Jafn­framt er lagt til að hús­næð­is­eig­endur haldi við­halds­dag­bók, sem fylgi eign­inni þegar hún er seld, ekki ósvipað smur­bókum bif­reiða. Þetta gæti að sögn flutn­ings­manns frum­varps­ins, einnig orðið til þess að draga úr svartri atvinnu­starf­semi.

„Þessi til­laga var næstum því sam­þykkt á þar­síð­asta þingi. Ef umsagn­irnar verða óbreyttar ætti að vera hægt að fá þetta mál í gegn núna,“ segir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sem er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar, sem hefur í þrí­gang áður verið lögð fram á þing­inu.

Komast hjá óþarfa deilumálum

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að við­skipti með íbúð­ar­hús­næði séu afar vanda­söm og þar sé jafnan um að ræða stærstu við­skipti sem ein­stak­lingar og fjöl­skyldur taki þátt í á ævi sinni. Mikill hluti fjár­muna fólks sé alla jafna undir. „Afar mik­il­vægt er að reglur um slík við­skipti auki fyr­ir­sjá­an­leika og öryggi neyt­enda og dragi úr tjóni og óþörfum deilu- og dóms­málum. Þá er mik­il­vægt að koma í veg fyrir að fólk þurfi að þola íveru í heilsu­spill­andi hús­næði en nokkur vit­und­ar­vakn­ing hefur orðið um þær hættur sem af því stafa. Hingað til hafa ekki verið gerðar telj­andi úrbætur á þessu sviði,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í til­lög­unni er ráð­herra iðn­aðar-, ferða­mála- og nýsköp­unar falið að und­ir­búa nokkrar breyt­ingar á lögum til að bæta stöðu neyt­enda í fast­eigna­við­skiptum. Lögð er áhersla á að ástand hús­næðis verði kunn­ugt öllum sem að við­skipt­unum koma; kaup­endum, selj­endum og milli­liðum. Með því megi draga veru­lega úr líkum á því að leyndir gallar komi upp „með til­heyr­andi kostn­aði fyrir kaup­endur, selj­endur og sam­fé­lagið“, eins og segir í grein­ar­gerð­inni. Settar verði skýrar reglur um ábyrgð vegna galla sem ekki koma fram í ástands­skýrslum.

Margir taki út sömu eignina

Björn Leví bendir á að í dag tíðk­ist að vænt­an­legir kaup­endur láti ein­hvern taka út eign­ina áður en hún er keypt. Oft ger­ist það í kjöl­farið þess að til­boðs­að­il­inn hætti við kaupin. Þegar nýr hugs­an­legur kaup­andi leggi fram til­boð láti hann gera aðra ástands­skýrslu. Þá sé fyrri skýrsla honum ekki aðgengi­leg. Þannig séu stundum gerðar margar ástands­skýrslur fyrir sömu eign­ina í einu og sama sölu­ferl­inu. Í grein­ar­gerð­inni segir að í þeim til­vikum þar sem eign sé eft­ir­sótt geti mynd­ast hvati til að láta kyrrt liggja að gera slíkar skýrslur. „Sem dæmi má nefna að þegar mikil eft­ir­spurn er eftir hús­næði getur fyr­ir­vari um ástands­skoðun fast­eignar verið talið kauptil­boði til frá­dráttar.“ Æskilegt sé að ástands­skýrsla sé meðal sölu­gagna.

Fátt að vanbúnaði

Björn Leví er nokkuð bjart­sýnn á fram­gang máls­ins á yfir­stand­andi þingi. Hann segir að sú regla hafi tíðkast þegar líði að þing­lokum að hver flokkur á þing­inu fái að koma í gegn einu til tveimur málum, óháð mik­il­vægi þeirra. „Þegar allt kemur til alls snýst þetta um fjölda mála. Það þurfa allir flokkar að fá jafn­mörg mál,“ útskýrir hann. Björn bendir á að málið sé nú komið í nefnd og hann telur líkur á að þetta geti gengið í gegn á yfir­stand­andi þingi, njóti málið for­gangs. „Það virt­ust allir vera til­búnir að afgreiða þetta úr nefnd á þar­síð­asta þingi, en á end­anum komust mjög fá þing­manna­mál í gegn.“

Mynd / Unsplash

Hann segir að nú sé búið að lofa þing­mönnum áherslu­breyt­ingum á starfi efna­hags- og við­skipta­nefndar. Meiri áhersla verði lögð á svokölluð þing­manna­mál. Ef ekki ber­ist nýjar umsagnir við umrætt mál ætti nefndin að geta afgreitt það með nefnd­ar­á­liti, án þess að kalla til gesti. „Þetta er gríð­ar­lega mik­il­vægt mál og gott næsta skref í kjöl­far þess að teknar voru upp raf­rænar þing­lýs­ingar. Ef fólk væri að vinna í þessu máli út frá efn­is­legum for­sendum þess, þá ætti þetta að geta farið í gegn í vor,“ segir hann. Björn tekur þó fram að póli­tíkin sé óút­reikn­an­leg.

Smurbók heimilisins

Það felst að mati Björns ákveðið öryggi í því að vita hvar ábyrgðin liggur, ef gallar koma upp. Það sé einn stærsti kostur þess ef til­lagan nær fram að ganga. Einnig sé með henni komið í veg fyrir tví­verknað, með því að láta þær ástands­skýrslur sem gerðar eru fylgja hús­inu. Hann sér fyrir sér að það verði selj­and­ans að greiða fyrir ástands­skoð­un­ina, sem er þá gerð af við­ur­kenndum aðila, eins og áður hefur komið fram. „Hún fylgir þá bara með í útboðs­gögnum. Ef ein­hver vill gera auka ástands­skoðun, þá er honum frjálst að gera það,“ útskýrir þing­mað­ur­inn.

Hann segir að einnig sé mik­il­vægt að halda dag­bækur um þau verk sem unnin eru í hús­inu og að upp­lýs­ingar um þau fylgi þegar eignin er seld. „Þetta er ekk­ert mikið öðru­vísi en smur­bók í bílum. Nema fjár­fest­ing í hús­næði er miklu stærri en í bílum.“

Björn segir að raf­rænar við­halds­bækur fyrir heimlin geti dregið úr hvata til að stunda svarta atvinnu­starf­semi.

Björn nefnir líka þann kost að raf­rænar við­halds­bækur fyrir heimlin dragi úr hvata til að stunda svarta atvinnu­starf­semi. „Þegar þú kaupir við­halds­þjón­ustu af pípara eða múr­ara þá viltu fá það skráð í ástands­skýrslu heim­il­is­ins. Það eru verð­mæti í þeirri vinnu seinna meir. Og ef þú ætlar að skrá þetta í smur­bók­ina þá getur það ekki verið svart. Það verða að fylgja reikn­ingar og kvitt­anir. Þetta er þess vegna líka aðgerð gegn svartri atvinnu­starf­semi.“

Stórt skref stigið í neytendavernd

Kallað hefur verið eftir umsögnum frá ríf­lega 20 aðilum um til­lög­una. Í umsögn Mats­manna­fé­lags Íslands kemur fram að það styðji ein­dregið mark­mið til­lög­unnar um að ástands­skýrslur fylgi sölu­yf­ir­litum íbúð­ar­hús­næðis. Félagið telur hins vegar ekki rétt að und­an­skilja nýjar fast­eignir, eins og til­lagan mælir fyrir um. „Því miður sýnir reynslan einnig, að nýjar fast­eignir hér á landi hafa alls ekki alltaf reynst galla­lausar.“

„Í lög­unum er þó hvergi gerð krafa um þekk­ingu lög­gildra fast­eigna­sala á bygg­inga­tækni og eru þeir því mis­jafn­lega hæfir til þess að standa við þessa ábyrgð sína.“

Félagið bendir á að í lögum um fast­eigna­sölu frá 2015 sé fast­eigna­sal­anum gert skylt að skrá ástand og eig­in­leika fast­eigna sem séu í sölu­með­ferð. Hann beri lögum sam­kvæmt ábyrgð á því að þessar upp­lýs­ingar séu réttar. „Í lög­unum er þó hvergi gerð krafa um þekk­ingu lög­gildra fast­eigna­sala á bygg­inga­tækni og eru þeir því mis­jafn­lega hæfir til þess að standa við þessa ábyrgð sína.“ Kröfur á hendur fast­eigna­sala séu því afar óraun­hæfar. „En með til­komu sér­hæfðra fag­að­ila sem ætlað er að skoða og meta ástand fast­eigna eins og þings­á­lykt­unin hvetur til, verður stigið stórt skref í neyt­enda­vernd á fast­eigna­mark­aði.“

Mats­manna­fé­lagið telur brýnt að ástands­skoð­unin sé fram­kvæmd af óháðum fag­að­ilum sem hafi víð­tæka þekk­ingu á mann­virkja­gerð. Grund­vall­ar­at­riði sé að fram­kvæmdin fylgi sam­ræmdum mats­að­ferðum og að inni­hald þeirra sé sam­ræmt. Slíkt kerfi hafi verið notað í Noregi í um 20 ára skeið. Félagið bendir á að ástands­skýrslur hafi verið ríkur þáttur í fast­eigna­við­skiptum hinum Norð­ur­lönd­unum um ára­tuga skeið.

Fasteignasalar styðja málið

Félag fast­eigna­sala er á meðal þeirra sem skil­aði umsögn um til­lög­una á fyrri stigum. Í umsögn­inni kemur fram sú skoðun félags­ins að mik­il­vægt sé að koma ástands­skýrslum í gagnið, en að þó þurfi að setja um það umgjörð sem styður við gæði skýrsln­anna.

Fram kemur að ástands­skýrslur hafi lengi þekkst á Norð­ur­lönd­unum en þar hafi þær reyndar sætt nokk­urri gagn­rýni. Fast­eigna­salar og ýmis sam­tök neyt­enda vinni að úrbótum þannig að aðeins þeir sem hafi lög­gild­ingu til starfans geri ástands­skýrslur og að trygg­ingar séu að baki skýrsl­unum.

Fram kemur í umsögn­inni að slíkt séu grunn­for­sendur þess að svona fyr­ir­komu­lag eigi rétt á sér hér á landi. „Mik­il­vægt er að reyna að nálg­ast málin eins ein­falt og kostur er. Í frum­varpi til laga um fast­eigna­kaup á árinu 2002 var mælt fyrir um ástands­skýrslur en þau ákvæði tekin út í með­förum þings­ins vegna óheyri­legs kostn­aðar sem talið var að slíkar skýrslur myndu kosta vegna þeirra krafna er þær áttu að upp­fylla,“ segir í umsögn­inni.

Tillagan í heild

Alþingi ályktar að fela ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra að láta und­ir­búa laga­frum­varp sem feli í sér end­ur­skoðun á lögum um sölu fast­eigna og skipa, nr. 70/2015, lögum um fast­eigna­kaup, nr. 40/2002, og þing­lýs­inga­lögum, nr. 39/1978, með eft­ir­far­andi mark­mið að leið­ar­ljósi:
     a.      að stuðla að því að ástands­skýrslur fylgi sölu­yf­ir­litum not­aðra fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar,
     b.      að aðilar sem útbúa ástands­skýrslur vegna sölu fast­eigna verði ábyrgir fyrir göllum sem rýra verð­mæti þeirra svo nokkru varði og ekki voru til­greindir í skýrslum þeirra og skuli hafa starfs­á­byrgð­ar­trygg­ingu sem tryggi skað­leysi kaup­enda og selj­enda fast­eigna þegar mis­tök þeirra leiða til bóta­skyldu,
     c.      að stuðla að því, án þess þó að gera það að beinni laga­skyldu, að eig­endur fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar haldi við­halds­dag­bók sem sé færð raf­rænt undir fasta­núm­eri eignar,
     d.      að hægt verði að ganga frá ein­földum lög­gern­ingum á borð við umboð vegna sölu fast­eignar, und­ir­ritun leigu­samn­ings og kaup­samn­ings um fast­eign raf­rænt með notkun þjón­ustu á borð við island.is.

Texti / Baldur Guð­munds­son
Myndir / Hákon Davíð Björns­son og úr safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi