Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Unga fólkið reiðubúnara til að leita aðstoðar

Unga fólkið reiðubúnara til að leita aðstoðar
||||

Fjöl­skyldan er lif­andi fyr­ir­bæri. Hún vex þegar nýir ein­stak­lingar koma til sög­unnar og dregst saman þegar ást­vinir hverfa á braut. Í raun er rétt­ast að tala um fjöl­skyldur, frekar en fjöl­skyldu, þar sem sam­setn­ing þeirra er fjöl­breytt­ari en nokkru sinni fyrr. Allar eiga þær það þó sam­eig­in­legt að ganga í gegnum erf­iða tíma og krefj­andi áskor­anir.

„Það er þráð­ur­inn hjá okkur að hjálpa fólki að eiga betra sam­tal og betri sam­skipti, það er ýmis­legt sem leys­ist úr læð­ingi við það. Og að hjálpa fólki að þok­ast áfram; það er mjög algengt að þegar fólk kemur til okkar þá er það fast í ein­hverju sam­skipta­mynstri sem virkar ekki.“ Þetta segir Rannveig Guð­munds­dóttir, félags­ráð­gjafi hjá Fjöl­skyldu­þjón­ustu kirkj­unnar.

Fjöl­skyldu­þjón­ustan veitir ein­stak­lingum, pörum og fjöl­skyldum ráð­gjöf um hvað­eina sem snýr að sam­skiptum og Rannveig segir hóp­inn sem leitar sér aðstoðar fjöl­breyttan en meðal algeng­ustu við­fangs­efn­anna séu para­sam­bandið og stjúp­fjöl­skyldur.

„Það er langal­geng­ast að fólk komi af því að því líður illa í sam­band­inu, ann­að­hvort af því að það vill laga sam­bandið eða hjón­bandið eða af því að það er búið að taka ákvörðun um skilnað eða er í skiln­að­ar­hug­leið­ingum,“ segir Rannveig. Hún segir algeng­ara að unga fólkið leiti sér aðstoðar í tíma. „Það er meira vak­andi og þykir eðli­legra og sjálf­sagð­ara að vinna með sam­bandið. Eldra fólkið reynir frekar að þrauka og þreyja og svo kannski er það orðið of seint.“

En hvað er það sem veldur erf­ið­leikum í sam­böndum?

„Við finnum fyrir því að fólk er undir miklu álagi. Ungt fólk er að hefja sinn starfs­ferli og er kannski með langa menntun að baki. Það á erfitt með að finna svig­rúm til að sinna fjöl­skyldu­líf­inu og það er krefj­andi og oft á kostnað ást­ar­sam­bands­ins því börnin verða að ganga fyrir. Og ég tala nú ekki um þegar fjár­hag­ur­inn er erf­iður.“

Rannveig segir fjár­hags­á­hyggjur raunar algenga ástæðu þess að fólk leitar sér aðstoðar. Þær og álagið á ein­stak­ling­inn og fjöl­skyld­una í nútíma­sam­fé­lagi. „Ef allir hefðu laun sem hægt væri að lifa af og sveigj­an­leik­inn í atvinnu­líf­inu væri meiri þá myndi það létta mikið undir,“ segir hún og nefnir sem dæmi fyr­ir­komu­lagið hjá mörgum fyr­ir­tækjum á Norð­ur­lönd­unum þar sem fólki gefst kostur á að vinna heima einn dag í viku.

„Það getur hjálpað mjög mikið að fá nýja sýn“

„Fólk kemur líka þegar það hefur lent í áföllum eða sorg og það er einnig mjög algengt að fólk vilji fá aðstoð í tengslum við stjúp­fjöl­skyld­una og stjúp­tengsl. Það verður allt flókn­ara þegar fólk er að hefja sam­búð í annað eða jafn­vel þriðja sinn og það fylgja börn báðum megin,“ segir Rannveig. Hún segir svo­kall­aðar sam­settar fjöl­skyldur á leið með að verða algeng­asta fjöl­skyldu­formið en það krefj­ist mik­ils sveigj­an­leika og ekki síst skiln­ings á líðan barn­anna. Hvað varðar börnin segir hún kvíða eitt stærsta vand­málið sem þau glíma við.

En hvað með pörin, hvernig er hægt að hjálpa þeim?

„Vanlíðan í sam­band­inu snýst um það að til­finn­ingar hafa dofnað, að ástin sé ekki jafn­stór þáttur og var í upp­hafi. Fólk saknar þess og vill reyna að vinna í því í þeirri von að það sé hægt að laga sam­bandið. Þetta er stundum áfall og erfitt að koma ef þú ert að hugsa um að ljúka sam­band­inu. En þá getur hvoru tveggja gerst; að við aðstoðum fólk til að finna lausn eða við að hefja nýjan kafla,“ segir Rannveig.

„Það getur hjálpað mjög mikið að fá nýja sýn og hreyfast eitt­hvað áfram. Stór þáttur í því þegar við eigum við ein­hvern vanda að etja er að við erum föst í eins­konar gildru og sjáum ekki leið­irnar út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi