Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Allir vissu en enginn gerði neitt

Allir vissu en enginn gerði neitt
Mynd / Unnur Magna

Eftir því sem næst verður kom­ist kom mál fjöl­skyldu Ernu Marínar Bald­urs­dóttur fyrst á borð yfir­valda þegar brot stjúpans gegn systur Ernu var til­kynnt til lög­reglu þegar Erna er fimm ára.

Elstu gögn sem hún hefur kom­ist yfir um eigin mál eru frá 1987, þegar hún var 9 ára gömul. Þá var hún lögð inn á St. Jós­efs­spít­al­ann með kvið­verki en rann­sóknir skil­uðu litlu. Erna man hins vegar vel eftir veik­ind­unum:

„Þarna vorum við nýkomin úr úti­legu þar sem hann braut á mér og það var stans­laust fyllirí og van­rækslan algjör. Ég í blautum fötum og kalt. Ég fékk svaka­lega háan hita og lá bara í sóf­anum. Ég man eftir því að ég var marga daga ein og það var eng­inn heima til að sinna mér.“ Hana minnir að þetta hafi verið á sama tíma og lög­regla var kölluð til vegna ein­hverra átaka á milli stjúpans og ann­ars manns. Hann mis­not­aði Ernu enn á þessum tíma og hún man að hafa þarna í fyrsta sinn sagt opin­berum aðila, ein­hverjum á spít­al­anum, fyrst frá. Þess er þó hvergi getið í gögnum.

Og talandi um gögnin: þau eru fá og götótt en slá­andi engu að síður. Flest þeirra eru frá Hafn­ar­fjarð­arbæ en þau ná aðeins aftur til 1991, þegar Erna var orðin 13 ára, og urðu til í tengslum við „hegð­un­ar­vanda­mál“ Ernu. Eflaust eru fleiri gögn til, um systur hennar, en Erna fær ekki aðgang að þeim og ekki hennar að rekja þá sögu.

Það sem er sjokker­andi er ekki síst að af papp­ír­unum frá barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar að dæma var til staðar vit­neskja um aðstæður á heim­il­inu; m.a. um að þar hefði átt sér stað kyn­ferð­is­of­beldi og að þar byggju engu að síður enn börn á ýmsum aldri. Ekkert var hins vegar gert fyrr en Erna fór í upp­reisn og varð „vand­ræðaung­lingur“.

Í nótum starfs­manna barna­vernd­ar­nefndar er m.a. stað­fest að bæði móðir og stjúp­faðir Ernu hafi átt við áfeng­is­vanda­mál að stríða, að hann hafi leitað á systur hennar og að bæði hann og móðir Ernu hafi vitað að hún hafi verið beitt kyn­ferð­is­legu ofbeldi af stjúp­systur sinni. Í gögn­unum er einnig komið inn á brotin gegn systur Ernu sem kölluð eru „sifja­spell“, og segir m.a. í nótu starfs­manns barna­vernd­ar­nefndar eftir við­tal við móður Ernu: „Rætt um sifja­spellin gagn­vart X, kæruna og hugs­an­leg áhrif. [Stjúpinn] hefði farið í við­töl, hann hefði ekki verið dæmdur en þetta hefði verið mikið áfall fyrir sig. [Móðirin] var nokkuð viss um að hann myndi ekki fremja sifja­spell framar og taldi hann ekki hafa gert það.“

„Svo virð­ist að hún sé frekar afskipt heima fyrir og móð­irin heim­sótti hana lítið og spurð­ist lítið fyrir um hana hér inni á deild­inni.“

Vitnað er um mikla sam­skipta­örð­ug­leika á heim­il­inu og ofbeldi þegar Erna og systir hennar voru yngri. Fram kemur að Erna hafi upp­lifað sig milli steins og sleggju þegar kom að for­eldrum hennar en í gögn­unum er að finna margar stað­fest­ingar þess efnis að sam­skipti þeirra hafi ekki verið góð, ekki síst af hendi móður Ernu. Ein stærsta gloppan í gögn­unum varðar hins vegar fyrsta og ef til vill eina fund­inn sem stjúpi Ernu mætti á, auk Ernu, systur hennar og móður. Fram kemur í nótu að fund­ur­inn hafi staðið í þrjá tíma og að hann hafi haf­ist á umræðu um hina meintu nauðgun en meira stendur ekki í nót­unni. Ann­að­hvort var skýrsla um fund­inn aldrei kláruð eða hún hefur farið for­görðum. Hún hefði verið for­vitni­legur lestur, svo ekki sé meira sagt.

Ljóst er á gögn­unum að Erna átti á þessum tíma, frá 1991 til 1994, við marg­þætt vanda­mál að stríða. Hún upp­lifði örygg­is­leysi á heim­ili sínu, bæði til­finn­inga­legt og fjár­hags­legt, þannig að sá á henni. Árið 1992 lá hún inni á Barna­spít­ala Hrings­ins í um mánuð vegna lík­am­legra veik­inda en þá sagði í umsögn læknis: „Senni­legt er að mikið af hennar kvört­unum séu af psy­kosom­atiskum toga eins og reyndar var hér við fyrri innl. Svo virð­ist að hún sé frekar afskipt heima fyrir og móð­irin heim­sótti hana lítið og spurð­ist lítið fyrir um hana hér inni á deild­inni.“

Lestu umfjöll­una alla í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi