Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Yfirvöld bregðist fljótt við

Yfirvöld bregðist fljótt við
Mynd af Uglu / Sharon Kil­gannon|

„Lögin eru skýr og það er nú í höndum stjórn­valda og Land­spít­ala að tryggja að lög­bundnu hlut­verki þeirra sé fylgt eftir,“ segir Ugla Stefanía, for­maður Trans Ísland, stuðn­ings- og bar­áttu­sam­taka fyrir trans fólk á Íslandi, um stöð­una hjá BUGL.

Fram kemur í nýjasta tölu­blaði Mannlífs að fjöl­skyldur trans barna og ung­menna séu ugg­andi vegna þess að frá ára­mótum hefur ekki verið hægt að halda úti trans teymi á Barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans, sem er mik­il­væg stoð fyrir þennan hóp.

Hún segir að Trans Ísland líti málið mjög alvar­legum augum, enda sé um að ræða grund­vall­ar­þjón­ustu fyrir trans börn. „Þegar lög um kyn­rænt sjálf­ræði voru unnin var það eitt af mik­il­væg­ustu mál­efn­unum að það yrði ritað í lög að slíkt teymi væri starf­andi, en fyrir þann tíma voru engin lög sem tryggðu aðgengi trans barna og ung­linga að þjón­ust­unni.

Á Íslandi, sem og ann­ars staðar, stíga sífellt fleiri fram á unga aldri og þessi þjón­usta þarf því að vera til staðar til að tryggja vel­ferð þeirra sem þurfa á henni að halda.“ Ugla segir að vinna verði hratt til að koma í veg fyrir alvar­legar afleið­ingar á þau trans börn sem þurfa á lyfjum að halda til að stöðva kyn­þroska. Þau séu á mjög við­kvæmum stað og þurfi aðgengi að „horm­óna­blokkerum“ til að hægja á áhrifum kyn­þroska sem geti valdið þeim ama og ang­ist. Vinna verði hratt og örugg­lega til að koma í veg fyrir frek­ari and­lega van­líðan þessa hóps.

Ugla var á meðal þeirra sem fund­uðu með BUGL í lið­inni viku. „Trans Ísland hefur því fundað með BUGL um stöð­una ásamt Sam­tök­unum ‘78 og Trans vinum, og hefur sett sig í sam­band við for­stjóra Land­spít­ala, Land­lækni og heil­brigð­is­ráð­herra. Mik­il­vægt er að byggð sé upp þekk­ing og reynsla í þessum mála­flokki, svo allt fari ekki í upp­nám og þjón­ustan legg­ist niður vegna skorts á starfs­fólki. Þetta mál þarf að taka alvar­lega og við von­umst til að yfir­völd bregð­ist fljótt við og sýni vilja í verki, enda vel­ferð barna og unlinga í húfi.“

„Það er verið að brjóta lög með þessu“

„Heil­brigð­is­ráðu­neytið þarf að breyta þessu til að fylgja lögum í land­inu,“ segir Daníel Arn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Sam­tök­unum ’78, um stöð­una hjá BUGL. Hann bendir á að stjórn­völd fylgi ekki þeim lögum sem sett voru í júní í fyrra. „Það er verið að brjóta lög með þessu.“

Daníel bendir á að með því að leggja af teymi sé verið að taka skref til baka í þessum málum. „Við höfum heyrt að fólk hafi af þessu miklar áhyggjur.“ Hann bendir á að mörg trans börn og ung­menni séu tíðir gestir í félags­mið­stöð sam­tak­anna, í ein­stakl­­ings­ráð­gjöf eða sæki stuðn­ings­hópa. Ný rann­sókn sýni að trans börn séu mun lík­legri til að skaða sig en önnur. Grípa þurfi hratt inn í. „Mér skilst að þrjár mann­eskjur með sér­þekk­ingu á þessum hlutum hafi hætt hjá BUGL á síð­ustu 18 mán­uðum. Þessir krakkar fá ekki þá þjón­ustu sem ríkið hefur skuld­bundið sig til að veita.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi