Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Donna Cruz: „Fáfræði er engin afsökun“

Borið hefur á því að fólk af asískum upp­runa verði fyrir aðkasti og áreiti á Íslandi í kjöl­far þess að kór­óna­veiran greind­ist fyrst í borg­inni Wuhan í Kína. Þau Brynjar Steinn Gylfason og Donna Cruz, sem bæði eiga ættir að rekja til Fil­ipps­eyja, eru meðal þeirra sem tekið hafa málið upp á sam­fé­lags­miðlum og hvatt til þess að fólk hugsi sinn gang.

Donna Cruz: „Fáfræði er engin afsökun“
Donna Cruz segir óskap­lega mik­il­vægt að vekja athygli á þessum for­dómum

Málið náði flugi á sam­fé­lags­miðlum eftir að tón­list­ar­mað­ur­inn Brynjar Bark­ar­son birti á Instagram-síðu sinni mynd af sér með önd­un­ar­grímu frammi fyrir afgreiðslu­manni af græn­lenskum upp­runa við kassa í Bónus, nokkuð sem mörgum þótti bera vott um kyn­þátta­for­dóma. Meðal þeirra sem deildu færsl­unni á Twitter og Instagram og gagn­rýndu hana var Brynjar Steinn Gylfason sem þekktur er á sam­féla­smiðlum sem Binni Glee. Í kjöl­farið rigndi yfir hann póstum þar sem fólk af asískum upp­runa sagði frá reynslu sinni af for­dómum vegna umræðu um kór­óna­veiruna.

Brynjar Steinn Gylfason, sem er þekktur á sam­fé­lags­miðl­unum sem Binni Glee, hefur varla tölu á póstum sem hann hefur fengið frá fólki af asískum upp­runa sem seg­ist hafa upp­lifað for­dóma á Íslandi vegna kór­óna­veirunnar.

„Ég ætl­aði ekk­ert að blanda mér í þetta,“ segir Brynjar Steinn. „Ég var alltaf að bíða eftir að honum yrði bent á hvað þetta var óvið­eig­andi og að hann tæki færsl­una niður og bæð­ist afsök­unar, en þegar það gerð­ist ekki gat ég ekki á mér setið að vekja athygli á þessum for­dómum. Þetta er svo langt frá því að vera í lagi.“

„Er svona fólki hleypt inn?“

Við­brögðin við færslu Brynjars Steins voru gríð­ar­leg og mörg þeirra sem svör­uðu honum höfðu sjálf upp­lifað aukna kyn­þátta­for­dóma eftir að kór­óna­veiran greind­ist. Meðal þeirra sem tjáði sig var sextán ára stúlka sem var ætt­leidd frá Kína sem sagð­ist hafa orðið fyrir kyn­þátta­for­dómum og áreiti eins lengi og hún man eftir sér, en aldrei eins og nú síð­ustu vik­urnar.

„Hún sagð­ist lenda í því hvað eftir annað að fólk bæði hana að koma ekki nálægt sér vegna þess að hún myndi smita það af kór­óna­veirunni,“ útskýrir Brynjar Steinn. „Sem er auð­vitað fárán­legt vegna þess að hún er Íslend­ingur og hefur búið hér alla sína ævi. Hún seg­ist vera orðin hrædd við að fara út úr húsi og að hún skammist sín fyrir að vera frá Asíu, eftir að nán­ast allir sem hún hittir tali um að hún geti verið smit­beri, ekki bara krakkar á hennar aldri heldur ekk­ert síður full­orðið fólk. Og hún var alls ekki sú eina sem hafði þessa sögu að segja, það voru ótrú­lega margir sem höfðu lent í ein­hverju álíka eða orðið vitni að því. Ein stúlka sagði mér frá því að hún hefði verið að afgreiða í bak­aríi þar sem tveir kín­verskir ferða­menn komu inn og full­orðin íslensk kona hefði orðið mjög reið og spurt hvort „svona fólki“ væri virki­lega hleypt inn í versl­anir þessa dag­ana.“

„Hún seg­ist vera orðin hrædd við að fara út úr húsi og að hún skammist sín fyrir að vera frá Asíu, eftir að nán­ast allir sem hún hittir tali um að hún geti verið smit­beri.“

Áfall hvað sögurnar eru margar

Brynjar Steinn seg­ist auð­vitað hafa vitað að ras­ismi gegn fólki af asískum upp­runa væri algengur á Íslandi, enda oft orðið fyrir honum sjálfur, en það hafi engu að síður verið hálf­gert áfall að lesa allar þessar sögur og kom­ast að því að sumir not­uðu kór­óna­veiruna til að fá útrás fyrir for­dóma sína.

„Það er eins og fólk haldi að það að veiran hafi upp­haf­lega verið greind í Kína gefi því leyfi til að sýna öllum af asískum upp­runa opin­beran fjand­skap og fyr­ir­litn­ingu,“ segir Brynjar Steinn. „Ég skil ekki hvernig fólk getur varið svona fram­komu fyrir sjálfu sér, fyrir utan hvað þetta er ótrú­lega heimsku­legt og sýnir mikla fáfræði.“

Brynjar Steinn seg­ist ekki sjálfur hafa orðið skot­spónn for­dóma fólks vegna kór­óna­veirunnar, enda hafi hann búið á Akureyri alla sína ævi og fólk þar viti að hann sé ekki frá Kína heldur hálfur Fil­ipps­ey­ingur og hálfur Íslend­ingur, en það sé engu að síður hræði­legt að verða vitni að þessum ras­isma. Honum sé því mjög mikið í mun að vekja athygli á þessu ástandi og reyna að fá fólk til að hugsa sinn gang.

„Ég deildi þessu öllu á mínum sam­fé­lags­miðlum til að vekja athygli á þessu,“ útskýrir hann. „Ég er með mjög marga fylgj­endur og mig langar til að stuðla að því að fólk fræð­ist meira um þetta og skilji hvað ras­ism­inn er algengur hér á Íslandi, þótt það sé ekki talað mikið um það. Ég verð að taka fram að ég fékk líka ótrú­lega mörg skila­boð frá fólki sem þakk­aði mér fyrir að vekja athygli á þessu og sagð­ist ekki hafa vitað að ástandið væri svona slæmt. Eins og með alla for­dóma eiga þessir auð­vitað upp­runa sinn í fáfræði fólks og því betur sem við drögum þetta fram í dags­ljósið því meiri von er um að eitt­hvað breyt­ist í þessum málum. Fólk reynir svo oft að verja svona rasískar athuga­semdir á þeim for­sendum að þær séu sagðar í gríni, en þetta er ekk­ert fyndið og særir þá sem fyrir því verða virki­lega djúpt.“

Donna Cruz segir óskap­lega mik­il­vægt að vekja athygli á þessum for­dómum, því það sé ekki hægt að stöðva það sem eng­inn tali um. Mynd / Íris Dögg

Hvers konar afsökunarbeiðni er það?

Donna Cruz, sem hreif þjóð­ina með leik sínum í kvik­mynd­inni Agnes Joy, tekur í sama streng og Brynjar Steinn.

„Ég hef ekki lent í þessum for­dómum vegna kór­óna­veirunnar,“ segir hún. „En ég held að það stafi meðal ann­ars af því að ég er ekki feimin við að láta fólk heyra það þegar það segir eitt­hvað óvið­eig­andi. En ég hef heyrt frá vinum mínum og fjöl­skyldu að fólk segi þeim það hreint út að ef það sjái fólk af asískum upp­runa taki það stóra U-beygju til að smit­ast ekki af veirunni og ýmis­legt í þeim dúr.“

Donna segir mynd­ina sem Brynjar Bark­ar­son póstaði hafa verið hræði­lega og hún tekur ekk­ert mark á því þegar fólk reynir að verja mynd­birt­ing­una á þeim for­sendum að þetta hafi verið grín. Og hún á líka erfitt með að kyngja afsök­un­ar­beiðni hans sem hún segir ekki hafa birst fyrr en mörgum dögum eftir að myndin birt­ist.

„Ef þú biðst afsök­unar á ein­hverju vegna þess að fólk hefur haft eitt­hvað á móti því sem þú gerðir, er þá eitt­hvað að marka það?“ spyr hún. „Ég á erfitt með að taka mark á svo­leiðis afsök­un­ar­beiðni. Ég veit auð­vitað að kveikjan að þessum for­dómum er bara fáfræði en það er engin afsökun, það er mjög auð­velt að verða sér úti um fræðslu og réttar upp­lýs­ingar ef fólk hefur áhuga á því.“

Skiptir öllu að vekja fólk til umhugsunar

Spurð hvort hún upp­lifi kyn­þátta­for­dóma sem við­var­andi vanda­mál á Íslandi segir Donna engan vafa leika á því.

Fjallað er um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

„Kyn­þátta­for­dóm­arnir eru alltaf þarna,“ segir hún. „Ég hef fundið fyrir þeim í gegnum tíð­ina, alveg síðan ég flutti til Íslands fjög­urra ára gömul og allir af asískum upp­runa sem ég þekki hafa sömu sögu að segja.“

Donna segir óskap­lega mik­il­vægt að vekja athygli á þessum for­dómum, því það sé ekki hægt að stöðva það sem eng­inn tali um.

„Mjög oft þegar svona rasísk ummæli koma fram er það frá fólki sem gerir sér kannski ekki grein fyrir því að það sem það er að segja er óvið­eig­andi og þá þurfum við að vera dug­leg við að benda á að svona segi maður ekki. Ég er alls ekki að segja að fólk sem segir svona hluti sé vont fólk, en það þarf að vekja það til umhugs­unar um það hvað það er að segja. Það er aldrei í lagi að nota útlit eða ein­kenni fólks sem ástæðu til þess að nið­ur­lægja það og þótt fólk sé kannski ekki að reyna að særa við­kom­andi þá gerir það það samt. Það verður kannski aldrei hægt að útrýma kyn­þátta­for­dómum en það er hægt að minnka þá ef við erum öll vak­andi fyrir því að benda hvert öðru á hvað er við­eig­andi eða óvið­eig­andi að segja við annað fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi