Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Binni Glee: „Hún segist vera orðin hrædd við að fara út úr húsi“

Borið hefur á því að fólk af asískum upp­runa verði fyrir aðkasti og áreiti á Íslandi í kjöl­far þess að kór­óna­veiran greind­ist fyrst í borg­inni Wuhan í Kína. Brynjar Steinn Gylfason, sem á ættir að rekja til Fil­ipps­eyja, er meðal þeirra sem tekið hafa málið upp á sam­fé­lags­miðlum og hvatt til þess að fólk hugsi sinn gang.

Binni Glee: „Hún segist vera orðin hrædd við að fara út úr húsi“
Brynjar Steinn Gylfason
Brynjar Steinn Gylfason, sem er þekktur á sam­fé­lags­miðl­unum sem Binni Glee, hefur varla tölu á póstum sem hann hefur fengið frá fólki af asískum upp­runa sem seg­ist hafa upp­lifað for­dóma á Íslandi vegna kór­óna­veirunnar.

Málið náði flugi á sam­fé­lags­miðlum eftir að tón­list­ar­mað­ur­inn Brynjar Bark­ar­son birti á Instagram-síðu sinni mynd af sér með önd­un­ar­grímu frammi fyrir afgreiðslu­manni af græn­lenskum upp­runa við kassa í Bónus, nokkuð sem mörgum þótti bera vott um kyn­þátta­for­dóma. Meðal þeirra sem deildu færsl­unni á Twitter og Instagram og gagn­rýndu hana var Brynjar Steinn Gylfason sem þekktur er á sam­féla­smiðlum sem Binni Glee. Í kjöl­farið rigndi yfir hann póstum þar sem fólk af asískum upp­runa sagði frá reynslu sinni af for­dómum vegna vegna umræðu um kór­óna­veiruna.

„Ég ætl­aði ekk­ert að blanda mér í þetta,“ segir Brynjar Steinn. „Ég var alltaf að bíða eftir að honum yrði bent á hvað þetta var óvið­eig­andi og að hann tæki færsl­una niður og bæð­ist afsök­unar, en þegar það gerð­ist ekki gat ég ekki á mér setið að vekja athygli á þessum for­dómum. Þetta er svo langt frá því að vera í lagi.“

„Er svona fólki hleypt inn?“

Við­brögðin við færslu Brynjars Steins voru gríð­ar­leg og mörg þeirra sem svör­uðu honum höfðu sjálf upp­lifað aukna kyn­þátta­for­dóma eftir að kór­óna­veiran greind­ist. Meðal þeirra sem tjáði sig var sextán ára stúlka sem var ætt­leidd frá Kína sem sagð­ist hafa orðið fyrir kyn­þátta­for­dómum og áreiti eins lengi og hún man eftir sér, en aldrei eins og nú síð­ustu vik­urnar.

„Hún sagð­ist lenda í því hvað eftir annað að fólk bæði hana að koma ekki nálægt sér vegna þess að hún myndi smita það af kór­óna­veirunni,“ útskýrir Brynjar Steinn. „Sem er auð­vitað fárán­legt vegna þess að hún er Íslend­ingur og hefur búið hér alla sína ævi. Hún seg­ist vera orðin hrædd við að fara út úr húsi og að hún skammist sín fyrir að vera frá Asíu, eftir að nán­ast allir sem hún hittir tali um að hún geti verið smit­beri, ekki bara krakkar á hennar aldri heldur ekk­ert síður full­orðið fólk. Og hún var alls ekki sú eina sem hafði þessa sögu að segja, það voru ótrú­lega margir sem höfðu lent í ein­hverju álíka eða orðið vitni að því. Ein stúlka sagði mér frá því að hún hefði verið að afgreiða í bak­aríi þar sem tveir kín­verskir ferða­menn komu inn og full­orðin íslensk kona hefði orðið mjög reið og spurt hvort „svona fólki“ væri virki­lega hleypt inn í versl­anir þessa dag­ana.“

Lestu umfjöll­un­ina í heild sinni í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi