Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nova efst farsímafyrirtækja í ánægjuvoginni ellefta árið í röð

Nova efst farsímafyrirtækja í ánægjuvoginni ellefta árið í röð
Hluti starfs­manna NOVA

Við­skipta­vinir Nova mæl­ast þeir ánægð­ustu þegar kemur að far­síma­þjón­ustu sam­kvæmt nið­ur­stöðum Íslensku ánægju­vog­ar­innar, sem veitt var á við hátíð­lega athöfn á Grand Hótel í morgun. Er þetta ell­efta árið í röð sem Nova hlýtur þessa við­ur­kenn­ingu.

Nið­ur­stöður rann­sóknar Zenter sýna einnig að Nova er með besta appið á fjar­skipta­mark­aði að mati not­enda. Að auki kom fram í nið­ur­stöðum rann­sókn­anna að ánægja með þjón­ustu á íslenskum mark­aði fer vax­andi milli ára og eru konur almennt ánægð­ari en karlar.

„Frá því að Nova kom inn á mark­að­inn árið 2007 hefur fjar­skipta­kostn­aður heim­ila og fyr­ir­tækja lækkað um tugi pró­senta. Við erum enda­laust ánægð og stolt en fyrst og fremst þakk­lát við­skipta­vinum fyrir þessa við­ur­kenn­ingu í Íslensku ánægju­vog­inni. Markið okkar er að við­skipta­vinir fái alltaf mest fyrir pen­ing­inn og bestu þjón­ust­una. Nova appið sam­einar þetta og eru nið­ur­stöður rann­sókna Zenter, þar sem Nova er með besta appið á fjar­skipta­markði, einnig hvatn­ing til okkar að gera betur hvort sem er í fleiri 2fyrir1 til­boðum, fríu stöffi, Nova upp­lifun eða þjón­ustugæðum. 5G er handan við hornið hjá Nova og hver ný far­síma­kyn­slóð hefur haft í för með sér marg­földun á hraða og þar með á notk­un­ar­mögu­leikum far­síma, úrvali smá­forrita og öðrum sam­skiptum. Notendur gera sífellt meiri kröfur og nú þegar bílar, arm­bandsúr og nýj­ustu heim­il­is­tækin eru öll tengd við netið. Við viljum þjón­usta við­skipta­vini betur í dag en í gær. Þessar við­ur­kenn­ingar eru sam­eig­in­legt stolt allra starfs­manna og sendum við stærsta TAKK í heimi til þeirra, því án þeirra værum við ekki hér,” segir Margrét Tryggva­dóttir, for­stjóri Nova.

Nova fékk ein­kunn­ina 75.1 af 100 mögu­legum sem skil­aði Nova í 2. sæti í könn­un­inni þegar horft er til allra fyr­ir­tækja á Íslandi sem könn­unin nær til.

Íslenska ánægju­vogin er félag í eigu Stjórn­vísi og er fram­kvæmd í höndum Zenter rann­sókna. Markmið verk­efn­is­ins er að láta fyr­ir­tækjum í té sam­ræmdar mæl­ingar á ánægju við­skipta­vina en einnig öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana svo sem ímynd, mat á gæðum og tryggð við­skipta­vina. Mæling sem þessi er talin mjög mik­il­væg þar sem rann­sóknir hafa sýnt fram á að því ánægð­ari sem við­skipta­vinir fyr­ir­tækis eru því betri afkomu getur fyr­ir­tækið gert sér vonir um. Nánari upp­lýs­ingar um Íslensku Ánægju­vog­ina má finna á stjorn­visi.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi