Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Að vera eða ekki vera … sekur

Að vera eða ekki vera … sekur
Starfs­menn þings­ins

Ákær­urnar gegn Donald Trump Banda­ríkja­for­seta og með­ferð máls­ins í þing­inu end­ur­speglar nýjan raun­veru­leika og hina miklu sundr­ung sem ríkir í banda­rísku sam­fé­lagi og stjórn­málum. Nið­ur­staðan virð­ist fyrir fram gefin en málið gæti þó reynst afdrifa­ríkt til lengri og skemmri tíma.

„Það ríkti líka sundr­ung þá en stóri mun­ur­inn er að nú skortir sam­eig­in­legan skiln­ing á raun­veru­leik­anum.“ Þetta segir demókrat­inn Zoe Lofgren um and­rúms­loftið á banda­ríska þing­inu þegar Bill Clinton var ákærður árið 1998 og nú, þegar Donald Trump hefur verið ákærður. Lofgren er einn fimm þing­manna sem átti sæti í alls­herj­ar­nefnd neðri deildar þings­ins þegar Clinton var ákærður fyrir að hafa logið eið­svar­inn um kyn­ferð­is­legt sam­band hans við Monicu Lewinsky, og situr enn. Full­trúa­deildin sendi í gær ákærur á hendur Trump til öld­unga­deild­ar­innar en hann er sak­aður um að hafa þrýst á úkra­ínsk stjórn­völd að grafa upp óhróður um and­stæð­inga sína heima fyrir með því að tefja greiðslu fjár­hags­að­stoðar vegna örygg­is­mála.

Banda­rískir miðlar hafa síð­ustu daga birt grein­ingar og sam­an­burð á mál­unum tveimur og segja einna helst vekja athygli að þrátt fyrir að rétt­ar­höldin yfir Clinton á sínum tíma hafi þótt afar póli­tísk sé afstöðu­munur milli flokk­anna enn meira áber­andi nú. Árið 1998 studdi 31 full­trúa­deild­ar­þing­maður Demókra­ta­flokks­ins að rann­saka fram­göngu Clintons og margir flokks­bræðra for­set­ans gagn­rýndu hann harð­lega, þrátt fyrir að þeir styddu ekki sak­fell­ingu eða emb­ætt­is­missi. Trump hefur hins vegar reynst hafa ótrú­legt vald yfir þing­mönnum Repúblikana­flokks­ins og ekki einn ein­asti greiddi atkvæði með sak­fell­ingu í neðri deild­inni.

Lítil von um málefnalega meðferð

Eitt munu Clinton og Trump eiga sam­eig­in­legt, segja spek­úlantar. Trump, líkt og Clinton, verður sýkn­aður af öld­unga­deild­inni. Þing­deildin er skipuð 53 repúblikönum, 45 demókrötum og tveimur óháðum. Þing­menn­irnir munu á næstu dögum sverja þess eið að vera hlut­lægir í hlut­verkum sínum sem kvið­dóm­endur en Mitch McConnell, leið­togi meiri­hlut­ans, hefur frá upp­hafi verið afar gagn­rýn­inn á rann­sókn­ina og ákær­urnar á hendur for­set­anum og gefið litla von um að umfjöllun öld­unga­deild­ar­innar verði á mál­efna­legum nótum. Hann hefur m.a. þverskall­ast við því að verða við óskum nokk­urra sam­flokks­manna sinna um að heim­ila vitna­leiðslur við með­ferð máls­ins en þrátt fyrir ótrú­lega holl­ustu repúblik­ana við for­set­ann ótt­ast margir þeirra að öll við­leitni til að kæfa málið niður muni koma niður á flokknum, m.a. vegna almenn­ings­á­lits­ins. Vin­sældir Trumps eru til að mynda mun minni en vin­sældir Clintons á sínum tíma, 44% sam­an­borið við 73%, og þá ótt­ast margir um þing­sætið sitt í næstu kosn­ingum ef þeir neyð­ast til að kasta trú­verð­ug­leika sínum á glæ fyrir vel­þóknun for­set­ans.

Báðir for­setar voru ákærðir fyrir að hafa lagt stein í götu rann­sak­enda.

Hvað er og verður

Nancy Pelosi, leið­togi meiri­hlut­ans í full­trúa­deild­inni, sagði í vik­unni að Trump hefði með fram­göngu sinni gerst sekur um árás á banda­rísku stjórn­ar­skrána. „Við lítum þetta mjög alvar­legum augum. Þetta er ekki per­sónu­legt. Þetta er ekki póli­tískt. Þetta snýst ekki um flokka. Þetta er föð­ur­lands­ást,“ sagði hún. McConnell sagði ákvörðun neðri deild­ar­innar hins vegar „for­dæma­lausa og hættu­lega.“ Báðir flokkar segj­ast ótt­ast það for­dæmi sem málið setur; demókratar segja ótækt að for­set­inn fái að kom­ast upp með þá hegðun sem hann hefur sýnt en repúblikanar saka demókrata um að hafa gert ákæru­vald þings­ins gagn­vart for­set­anum að póli­tísku vopni.

Málið gegn Clinton átti sér stað á tíma þegar vin­sældir Fox News fóru vax­andi og and­stæð­ingar for­set­ans gátu lekið sam­sær­is­kenn­ingum og slúðri á Inter­net­inu. Við blasti nýr póli­tískur raun­veru­leiki og ljót­leiki, segir Peter Baker, blaða­maður New York Times. Sundr­ungin í sam­fé­lag­inu og gagn­vart raun­veru­leik­anum var hins vegar rétt að slíta barns­skónum. „Sam­sær­is­kenn­ing­arnar eru út um allt og sam­sær­is­kenn­inga­smiðir í Hvíta hús­inu og á þingi. Clinton hafði kost á því að koma fram fyrir sjón­varps­mynda­vél­arnar en hann hafði ekki Twitter til að senda út 123 skila­boð á dag eða Fox News til að hamra á hans útgáfu af atburðum kvöld eftir kvöld,“ segir Baker.

Sannleikurinn á tímum Trump

Það má sjá fyrir sér að nið­ur­staða þings­ins í mál­inu gegn Trump muni hafa marg­vís­legar afleið­ingar. Valdatíð Trumps og stjórn­ar­hættir eru for­dæma­lausir og margir velta fyrir sér hvaða þýð­ingu það mun hafa ef nálgun hans og fram­ganga verður látin við­gang­ast og í raun sam­þykkt sem ásætt­an­legt norm. „For­set­inn er ekki haf­inn yfir lög,“ sagði Pelosi. „Hann verður gerður ábyrgur. Hann hefur verið fund­inn sekur. Hann hefur verið fund­inn sekur fyrir lífs­tíð. Þeir geta aldrei tekið það til baka.“

Sömu sögu má segja um Clinton en málið gegn honum gerði lítið til að draga úr vin­sældum hans eða varpa skugga á arf­leifð hans sem for­seta. Þeirri spurn­ingu er hins vegar ósvarað hvaða áhrif mála­ferlin munu hafa á mögu­leika Trumps á end­ur­kjöri. Fram­ganga demókrata gegn for­set­anum mun að öllum lík­indum styrkja stöðu hans meðal hörð­ustu stuðn­ings­manna hans hvernig sem fer en stjórn­mála­spek­ingar segja marga repúblik­ana greini­lega ugg­andi yfir áhrifum máls­ins á kjós­endur sem eru ekki jafn­ein­arðir í stuðn­ingi sínum. Þeir hafa þegar hafnað til­lögu Trumps um að vísa ákær­unum frá án umfjöll­unar. Þá er mikil eft­ir­vænt­ing í loft­inu vegna vænt­an­legrar ákvörð­unar um að kalla John Bolton, fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa Trumps, til vitnis en hann nýtur virð­ingar þvert á póli­tískar línur.

„Sann­leik­ur­inn er óum­breyt­an­legur. Ill­girnin kann að gera atlögu að honum og fávísin hæða hann en, á end­anum, þá stendur hann,“ hefur laga­pró­fess­or­inn Laurence H. Tribe eftir Winston Churchill í Boston Globe. Hvort það á við um Trump á eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta