Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnhildur um viðbrögð Seðlabankans: „Hefði mátt gerast fyrr“

Gunnhildur um viðbrögð Seðlabankans: „Hefði mátt gerast fyrr“

Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir seg­ist vera ánægð með að verk­ferlar Seðla­banka Íslands í ráðn­ing­ar­málum hafi verið styrktir í kjöl­far þess að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði brotið jafn­rétt­islög með ráðn­ingu upp­lýs­inga­full­trúa í fyrra­sumar. Gunn­hildur sótti um stöð­una en fékk ekki. Í stað­inn réði bank­inn karl með minni menntun og reynslu og því kærði Gunn­hildur ráðn­ing­una til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að Seðla­banki Íslands hefði haft sam­band við Gunn­hildi Örnu Gunn­ars­dóttur í kjöl­far þess að nið­ur­staða kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála lá fyrir. Þetta stað­festir Gunn­hildur Arna í sam­tali við Mannlíf. „Ég er ánægð að fá stað­fest að ófag­lega var staðið að ráðn­ing­ar­ferl­inu og að bank­inn hafi haft sam­band við mig í kjöl­farið,“ segir hún, spurð að því hvernig henni líði með nið­ur­stöð­una og hvað henni finn­ist um við­brögð bank­ans í mál­inu.

Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum var nið­ur­staða kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála sú að Seðla­bank­inn hafi brotið gegn jafn­rétt­is­lög­um með því að hafa ekki sýnt fram á að aðrar ástæður en kyn­ferði hafi legið til grund­vall­ar ákvörðun um ráðn­ingu í starf upp­lýs­inga­full­trúa.

Einnig taldi nefnd­in að Gunn­hild­ur hafi staðið um­rædd­um karli fram­ar varð­andi bæði mennt­un og reynslu af kynn­ing­ar­starfi og fjöl­miðlun, en Gunn­hildur Arna, sem starfar í dag sem dag­skrár­gerð­ar­kona í Morg­un­út­varpi Rásar 2 og sem blaða­maður hjá Lækna­blað­inu, gegndi um tíma stöðu upp­lýs­inga­full­trúa Símans og hefur starfað við fjöl­miðla frá árinu 2004 og stýrt frétta­stofum, meðal ann­ars sem rit­stjóri dag­blaðs. Karlinn sem um ræðir, Stefán Rafn Sig­ur­björns­son, hefur hins vegar lokið BA-gráðu í stjórn­mála­fræði og meðal ann­ars starfað sem sjón­varps­frétta­maður frá árinu 2018, útvarps­frétta­maður í tvö ár og blaða­maður á Frétta­blað­inu í rúmt ár. Kær­u­nefnd­in tók ekki gild rök bank­ans að Stefán hafi staðið Gunn­hildi fram­ar varð­andi tungu­málak­unn­áttu og þekk­ingu á efna­hags- og pen­inga­mál­um og fjár­mála­mörk­uðum, sem hvort tveggja séu þætt­ir sem unnt sé að meta með frem­ur hlut­læg­um hætti.

„Ég legg áherslu á mik­il­vægi þess að bank­inn skapi sér fag­lega umgjörð og fari að lögum og vona að ný yfir­stjórn komi starf­semi bank­ans í rétt horf.“

Kjarn­inn greindi frá því á mið­viku­dag að Seðla­bank­inn ætli að una nið­ur­stöð­unni. Í aðdrag­anda þess var þeirri fyr­ir­spurn beint til bank­ans hvort hann ætl­aði að grípa til breyt­inga á verk­lagi sínu við ráðn­ingar í störf með hlið­sjón af því að þetta er í þriðja sinn frá árinu 2012 sem að bank­inn brýtur jafn­rétt­islög. Þá var svar bank­ans á þá leið að til stæði að fara yfir málið með það fyrir augum að tryggja að farið yrði að þeim við­miðum sem um þetta gilda.  Annað væri ekki hægt að segja að svo stödd­u. Í gær sendi bank­inn síðan Kjarnannum nýtt svar. Þar kom fram að verk­ferlar í þessum efnum hafi verið styrktir í kjöl­far nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

„Mér finn­ist jákvætt að bank­inn hafi styrkt ráðn­ing­ar­ferlið sitt frá brot­inu,“ segir Gunn­hildur, þegar þetta svar bank­ans berst í tal. „Það hefði mátt ger­ast fyrr,“ tekur hún þó fram.

Spurð út í fyrr­nefnd sam­skipti hennar við bank­ann segir hún málið ekki ná lengra að svo stöddu en svo að bank­inn hafi haft sam­band. „Ég hef því ekki tekið afstöðu til fram­halds­ins,“ segir hún.

Hún und­ir­strikar þó hversu brýnt henni þyki að bank­inn stundi fag­leg vinnu­brögð. „Ég legg áherslu á mik­il­vægi þess að bank­inn skapi sér fag­lega umgjörð og fari að lögum og vona að ný yfir­stjórn komi starf­semi bank­ans í rétt horf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi