Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þjóðfélagsstaða skýrir lægri einkunnir á landsbyggðinni

Ný rann­sókn fræði­manns við Háskól­ann á Akureyri skýrir að stærstu leyti hvers vegna ein­kunnir nem­enda á sam­ræmdum prófum og PISA eru lægri á lands­byggð­inni en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Ég vona að þessi grein dragi aðeins úr þess­ari hug­mynd að skóla­starf sé ekki í lagi á lands­byggð­inni,“ segir höf­und­ur­inn.

Þjóðfélagsstaða skýrir lægri einkunnir á landsbyggðinni
Vonir standa til að samn­ingar náist við kenn­ara fyrir haustið svo ekki komi til verk­falla|Sigríður Björk Ein­ars­dóttir

Þjóð­fé­lags­staða nem­enda fer langt með að skýra þann mun sem gjarnan sést á árangri nem­enda í PISA á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ann­ars vegar og lands­byggð­inni hins vegar. Þetta er meg­in­nið­ur­staða nýrrar fræði­greinar Þorláks Axels Jóns­sonar, aðjúnkts við Háskól­ann á Akureyri. Hann sýnir þar fram á að veru­legur munur sé á þjóð­fé­lags­stöðu nem­enda á lands­byggð­inni og höf­uð­borg­ar­svæð­inu og að sá munur hafi mest áhrif á mun á frammi­stöðu á prófum eftir lands­svæðum. Félags­leg sam­setn­ing svæð­anna sé ekki sú sama.

„Valdið býr til mynd af því hvernig hlut­irnir hanga saman,“ segir Þorlákur Axel Jónsson um fram­setn­ingu mennta­mála­yf­ir­valda á nið­ur­stöðum prófa.

Þorlákur segir í sam­tali við Mannlíf að sam­fé­lagið hafi lengi staðið frammi fyrir þeirri mynd að náms­ár­angur á sam­ræmdum könn­un­ar­prófum og í PISA-rann­sóknum sé slak­ari á lands­byggð­inni, án þess að yfir­völd mennta­mála hafi greint frá þeim þáttum sem skýri þann mun. Hann segir iðu­lega gefið til kynna að búseta sé önnur lyk­il­breytan til skýr­ingar á náms­frammi­stöðu, ásamt kyni. Þennan takt hafi yfir­völd mennta­mála slegið lengi og hann hafi haft mót­andi áhrif á sam­fé­lags­um­ræð­una. „Þessi sam­an­burður sýnir alltaf sömu slöku frammi­stöð­una. Þó hefur iðu­lega fylgt þess­ari fram­setn­ingu ábend­ing um að álykta um of,“ útskýrir Þorlákur.

Í rann­sókn­inni rýnir hann í gögn og frétta­flutn­ing allt aftur til átt­unda ára­tugar síð­ustu aldar. Hann tekur í grein sinni dæmi um fyr­ir­sögn úr Helg­ar­póst­inum árið 1983: „Útkoma dreif­býl­isunga á sam­ræmda próf­inu mun lak­ari en reyk­vískra“.

Skoðanabundið vald stjórnsýslunnar

Munur hefur lengi verið á frammi­stöðu nem­enda á lands­byggð­inni ann­ars vegar og höf­uð­borg­ar­svæð­inu hins vegar, þegar kemur að sam­ræmdum prófum og prófum PISA. Hefð­bund­inn sam­an­burður á ein­kunnum í 10. bekk út frá tví­skipt­ingu Mennta­mál­stofn­unar í tvö svæði, lands­byggð og höf­uð­borg­ar­svæði, sýni lak­ari náms­ár­angur í öllum greinum á lands­byggð­inni. Munurinn reikn­ast töl­fræði­lega mark­tækur.

Þorlákur bendir á að búsetu­munur sé ekki sá sem lýst hefur verið af hálfu stjórn­sýslu mennta­mála og gengið sé út frá í þjóð­mála­um­ræð­unni, þegar ólík þjóð­fé­lags­staða sé tekin með í reikn­ing­inn. Hann bendir á kenn­ingar um skrifræðis­kúgun og tákn­rænt ofbeldi í þágu ríkj­andi þjóð­fé­lags­á­stands. „Þannig heldur stjórn­sýslan í stofn­ana­bundið vald sitt til að skil­greina hið félags­lega rými skóla­starfs. Æskilegt væri að rann­saka skóla­starf á lands­byggð­unum með frek­ari grein­ingu á gögnum PISA að teknu til­liti til mis­mun­andi félags­legs bak­grunns svæða og grunn­skóla þar.“

Þorlákur segir við Mannlíf að með þess­ari fram­setn­ingu séu mennta­mála­yf­ir­völd ekki að bera saman sömu hluti. „Þetta virkar þannig að Mennta­mála­stofnun, og for­verar hennar, búa til þennan sann­leika með því að sleppa því að setja nið­ur­stöð­urnar í félags­legt sam­hengi. Það er það sem valdið gerir. Það býr til mynd af því hvernig hlut­irnir hanga saman. Það er ekk­ert endi­lega víst að sú mynd sé til að skerpa skiln­ing okkar á við­fangs­efn­inu.“

Hefur vantað upplýsingar um þjóðfélagsstöðu

Upp­lýs­ingum um þjóð­fé­lags­stöðu hefur ekki verið safnað á Íslandi. Þorlákur bendir á að Hagstofa Íslands gefi ekki út neinn kvarða þar sem hægt sé að flokka nem­endur eftir stöðu – heldur frekar menntun eða öðrum þáttum. „Í stóru lönd­unum er fólk iðu­lega flokkað eftir þjóð­fé­lags­stöðu. Hag­stofan safnar bara gögnum sem aðrir hafa búið til. Þessa breytu hefur vantað hér í ein­hverja ára­tugi en í PISA er hins vegar mæli­kvarði á þjóð­fé­lags­stöðu. Þar er meðal ann­ars spurt um störf for­eldra, menntun for­eldra og eigur og heim­ili. Úr þeim svörum er búinn til kvarði sem hægt er að nota í sam­an­burð á milli landa,“ útskýrir hann.

Spurður hverju hann von­ist til að þessi rann­sókn skili svarar Þorlákur: „Ég vona að þessi grein dragi aðeins úr þess­ari hug­mynd að skóla­starf sé ekki í lagi á lands­byggð­inni; að það sé hægt að álykta að það sé ekki í lagi vegna lak­ari útkomu á prófum. Menn þurfa að forð­ast að álykta sjálf­krafa um skóla­starf út frá með­al­tölum.“

Landsbyggðin þarf nýja greiningu

Í grein­inni bendir Þorlákur á að þessar nið­ur­stöður geti í stærra sam­hengi dýpkað skiln­ing á þeim áskor­unum sem skólar á lands­byggð­unum standa frammi fyrir. Þær geti styrkt sveit­ar­stjórnir, skóla­stjóra og kenn­ara í því að fylgja stefnu um skóla fyrir alla. Mik­il­vægt sé að stefnu­mótun í mennta­málum hvíli á sem bestri þekk­ingu. Þörf sé á rann­sóknum sem greini áskor­anir skóla­starfs á lands­byggð­inni í ljósi þess að búsetu­mun­ur­inn, sem þjóð­fé­lags­um­ræðan gangi út frá, sé ekki til staðar þegar þjóð­fé­lags­staða hafi verið tekið með í reikn­ing­inn.

Þorlákur segir að þrátt fyrir að þjóð­fé­lags­staða nem­enda skýri að mestu leyti þann mun sem er á milli ein­kunna nem­enda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og lands­byggð­inni skýri sú breyta ekki alveg allan mun­inn. Mik­il­vægt sé að kanna hvaða aðrir þættir hafi áhrif á árang­ur­inn. „Dæmi eru um að búsetu­mun­ur­inn sé áfram fyrir hendi þrátt fyrir að reiknað sé með þjóð­fé­lags­stöðu en einnig að þá komi fram töl­fræði­lega mark­tækur munur lands­byggð­inni í vil sem ekki virt­ist áður vera að finna.“

Stjórnsýslan alltaf hafnað kenningunni

Þóroddur Bjarna­son, pró­fessor við Háskól­ann á Akureyri, gerir grein Þorláks að umtals­efni á Facebook. Hann bendir á að fréttir um lak­ari árangur nem­enda lands­byggð­ar­innar dynji á sam­fé­lag­inu á hverju ein­asta ári. Í fram­hald­inu sé oft talað um lak­ari mannauð í skólum, áskor­anir fámennra skóla og svo fram­vegis.

Þóroddur Bjarna­son.

„Í kjöl­farið viðrar stofnun í Reykja­vík svo yfir­leitt þá hug­mynd að hún þurfi að fá meiri völd yfir þessum slak­ari skólum úti á landi, í þágu bless­aðra barn­anna.“

Hann bendir á að lengi hafi verið vitað að menntun for­eldra sé einn sterkasti for­spár­þátt­ur­inn fyrir náms­ár­angur barna og að börnum háskóla­mennt­aðra for­eldra gangi mun betur á prófum en öðrum börnum. Að sama skapi hafi verið vitað að mjög mik­ill munur sé á mennt­un­ar­stigi á milli lands­hluta. „Hlutfall háskóla­mennt­aðra er þannig almennt tvö­falt hærra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og utan þess.“ Þóroddur segir að stjórn­sýslan hafi alltaf vísað því á bug að munur á frammi­stöðu nem­enda skýrist fremur af bak­grunni for­eldra en gæðum skól­anna. Í því ljósi séu nið­ur­stöður Þorláks Axels afar merki­legar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi