Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Almennt fæ ég mér alltaf það skrítnasta á hverjum matseðli“

Alma Dagbjört Möller land­læknir hefur sann­ar­lega verið í sviðs­ljós­inu und­an­farnar vikur og fram­tak þrí­eyk­is­ins í fram­lín­unni vakið athygli á heims­vísu. Alma er fyrsta konan til að gegna emb­ætti land­læknis og fyrra var hún í léttu við­tali í Gest­gjaf­anum um mat­ar­minn­ingar og -venjur en hún hefur meðal ann­ars smakkað skor­dýr, naggrís og krókó­díl sem hún segir að sé afbragðs­matur.

„Almennt fæ ég mér alltaf það skrítnasta á hverjum matseðli“
Alma Dagbjört Möller

1. Hver er þín fyrsta mat­ar­minn­ing? „Að fylgj­ast spennt með ann­ars vegar slát­ur­gerð og hins vegar smáköku­bakstri mömmu fyrir jólin en á þeim árum voru sko bak­aðar margar sortir.“

2. Hvað er alltaf til í eld­hús­inu þínu? „Egg, hafra­mjöl, ban­anar, blá­ber og kaffi.“

3. Hver er upp­á­halds­mat­ur­inn þinn? „Humar og hvers kyns skel­dýr, hangi­kjöt með makkar­ón­u­jafn­ingi og slátur.“

4. Eldar þú eftir upp­skriftum eða til­finn­ingu? „Ég styðst almennt við upp­skriftir þótt ég fylgi þeim ekki upp á punkt og prik. Síðan eftir því sem ég elda upp­skriftir oftar byrja ég að breyta og taka útúr­dúra. Þó reynum við hjónin, sér­stak­lega eig­in­mað­ur­inn, að herma eftir upp­skriftum sem við höfum fengið á veit­inga­húsum.“

5. Hver er þín fyr­ir­mynd í eld­hús­inu? „Mamma sem eldar ein­göngu góðan mat. Mesta visku hef ég fengið frá sænska tíma­rit­inu „Allt om mat“.“

6. Hvað er það flókn­asta sem þú hefur eldað? „Að baka frönsk horn (croissant) og makkar­ónur er flókið í fyrsta sinn. Okkur hjónum finnst rjúp­urnar okkar á jólum geta flokk­ast sem flóknar; fyrst er að veiða, sem getur flækst fyrir bestu veiði­mönnum, svo hengja, reyta, fylla og sauma, steikja og svo elda allt með­lætið, m.a. brún­kál. En gott og gaman er það. Svo er Humar Pick Me Up hrika­lega góður réttur sem var í Sjáv­ar­kjall­ar­anum í gamla daga – eld­aður í mjög mörgum skrefum.“

7. Hvað er það skrítn­asta sem þú hefur borðað? „Almennt fæ ég mér alltaf það skrítn­asta á hverjum mat­seðli. Get nefnt naggrís, þjóð­ar­rétt Perú, alls ekki slæmur matur. Flest sem ég borð­aði í Kína var skrítið, skor­dýr og margt fleira. Krókó­díll er afar ljúf­fengur.“

8. Áttu þitt upp­á­halds­nesti? „Geita­osta-hvít­lauks­baka Ott­o­lenghi er frá­bært nesti. Flat­brauð með hangi­kjöti, lifr­ar­pylsa og frönsk horn með góðum osti.“

9. Hvaða skyndi­biti verður oft­ast fyrir val­inu? „Sushi.“

10. Áttu upp­á­halds­eld­hús­græju? „Súkkulaði­bræðslu­pott­ur­inn og bland­ar­inn fyrir morg­un­verð­arlummm­urnar.“

11. Áttu þér ein­hverja veika hlið í eld­hús­inu? „Mér leið­ist frekar að elda stór­steikur en eig­in­mann­inum finnst það gaman að sama skapi – ég er „með læti“.“

12. Kanntu gott sæl­ker­at­rix? „Smakka til – krydda pass­lega og gjarnan nota ferskt krydd. Fallegur borð­bún­aður.“

13. Hvaða þrjú hrá­efni tæk­irðu með þér á eyði­eyju? „Egg, ólífur og app­el­sínur, til varnar skyr­bjúg.“

14. Hvaða tón­list mynd­irðu setja á fón­inn með góðri mál­tíð? „Dave Brubeck eða Þjóð­legan fróð­leik eftir Guðmund Ing­ólfs­son.“

15. Hvaða mann­eskju myndir þú bjóða í veislu ef þú gætir boðið hverri sem er? „Barack Obama og Xi Jinping.“

16. Hvert væri heitasta umræðu­efnið? „Hlýnun jarðar væri klár­lega heitasta umræðu­efnið en lofts­lags­breyt­ingar eru stærsta heilsuvá þess­arar aldar og við verðum að spyrna við fótum. Það snertir m.a. hvaða mat við borðum.“ (Rétt er að taka fram að svarið er frá jan­úar 2019).

17. Hver er upp­á­halds­sæl­gæt­is­mol­inn þinn? „Brúni mol­inn eða túkall­inn í Mackintosh Quality Street.“

18. Ertu sæl­keri eða salt­ari? „Hvorugt, nema þegar salt­kara­mellur eru ann­ars vegar. Fer var­lega með salt og er alls ekki hrifin af sætu, sem betur fer.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni