Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég var óþekk, hortug og hvatvís“

„Ég var óþekk, hortug og hvatvís“
Helga Vala Helga­dóttir.

„Lífið er ekki alltaf dans á rósum, sem er auð­vitað algjör mót­sögn því það getur ekki verið þægi­legt að dansa á rósum, en þetta er lífið og á því þroskumst við,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, sem seg­ist ótt­ast harðan nið­ur­skurð í haust í grunn­þjón­ustu vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19 far­ald­urs­ins og þá mest í heil­brigð­is­kerf­inu. Helga Vala er vön að svara fyrir sig á þingi og segir að í æsku hafi hún þótt vera kotroskin, óþekk og hvat­vís.

Alþingi­húsið. Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, er nýkomin af fjar­fundi vel­ferð­ar­nefndar vegna COVID-19. Gengið er upp á aðra hæð og sest inn í lítið fund­ar­her­bergi. Aust­ur­völlur og styttan af Jóni Sig­urðs­syni blasir við út um glugg­ann. Á A4-blaði sem límt er fyrir utan fund­ar­her­bergið stendur stórum stöfum: Haldið fjar­lægð. Það er við hæfi að hefja spjallið á COVID-19 ástand­inu.

„Mér þótti vera mjög ábyrgð­ar­laust af rík­is­stjórn­inni að til­kynna umheim­inum fyrir rúmum tveimur vikum að við ætl­uðum að opna landið 15. júní án þess að vera búin að ákveða hvernig þau ætl­uðu að haga fram­kvæmd og án þess að ræða við helstu aðila sem þurfa að koma að mál­inu, eins og stjórn­endur lyk­il­stofn­ana í heil­brigð­is­kerf­inu og ekki síður Íslenska erfða­grein­ingu sem hefur ann­ast 80% sýna­taka. Ég heyrði af fjöl­mörgum í inn­lendri ferða­þjón­ustu sem bein­línis hættu að bóka Íslend­inga í ferðir og gist­ingu af ótta við tví­bókun og því hefur þetta, að því er virð­ist, haft skað­leg áhrif á þau fyr­ir­tæki sem ég veit að var ekki til­gang­ur­inn. Það var ekki búið að skipa þennan við­bragðs­hóp þegar til­kynnt var um opnun lands­ins en að mínu viti hefði hóp­ur­inn átt að vera að störfum frá því í byrjun mars. Umræðan síð­ast­liðna daga hefur snú­ist um sýna­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli en hvernig á að standa að sýna­tökum á Seyð­is­firði þar sem Norræna kemur í land? Á að fljúga eða aka með sýni þaðan? Hvar á það fólk að bíða nið­ur­stöðu? Hvað ef ein­hver grein­ist smit­aður um borð í vél eða skipi? Hvað gerum við þá við ferða­fé­laga, áhöfn eða hót­el­starfs­fólk ef ferða­fólk er þegar farið af stað um landið? Hvar á að geyma það og hver borgar kostn­að­inn við það?“

„Ég hef bara brett upp ermar og farið í alls konar verk­efni en sem betur fer endað stand­andi úr þeim flestum og lært mjög mikið af því.“

Ofmat og kæruleysi

Það þurfti að bregð­ast hratt við þegar COVID-19 far­ald­ur­inn skall á og segir Helga Vala að sér hafi fund­ist aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vera fálm­kenndar og ómark­vissar. „Í byrjun var auð­vitað verið að draga upp úr hatt­inum aðgerðir sem farið var í eftir efna­hags­hrunið árið 2008 og enn þá, þremur mán­uðum síðar, finn­ast mér við­brögðin vera þar. Lítil grein­ing á fram­tíð­ar­á­hrifum virð­ist vera á bak við aðgerð­irnar. Stjórn­völd eru að dúndra út aðgerðum upp á hund­ruð millj­arða króna og mér skilst að fyrst núna í fyrra­dag hafi borist ein­hver sviðs­mynda­grein­ing til Alþingis og álit til dæmis fjár­mála­ráðs sem er óháður aðili. Mér finnst það bera vott um bæði mikið ofmat ráð­herra á eigin getu í bland við kæru­leysi rík­is­stjórnar. Þetta eru svo miklir fjár­munir sem er verið að skuld­binda lands­menn til fram­tíðar. Ekkert er svo minnst á tekju­hlið­ina,“ segir Helga Vala.

„Ég ótt­ast blóð­ugan nið­ur­skurð í haust í grunn­þjón­ustu og sem for­maður vel­ferð­ar­nefndar hef ég mestar áhyggjur af heil­brigð­is­kerf­inu sem hefur verið van­fjár­magnað árum og ára­tugum saman. Við verðum að finna út úr því hvernig við viljum afla tekna til þess að geta borgað niður þær millj­arða króna skuldir sem við erum núna að setja okkur í og þá hljótum við að horfa fyrst á sam­eig­in­legar auð­lindir okkar sem og þá efna­meiri; er eitt­hvað þar að finna? Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að halda sér­stökum hlífi­skildi yfir þeim sem nýta auð­lind­ina í sjónum og það finnst mér vera póli­tískt, efna­hags­lega og sam­fé­lags­lega mjög óheil­brigt.“

Helga Vala segir að hún sakni ein­hverrar fram­tíð­ar­sýnar frá rík­is­stjórn­inni. „Miðað við hvernig stjórn­ar­þing­menn tala virð­ast þeir heldur ekki fá neinar upp­lýs­ingar svo það ein­skorð­ast ekki við okkur í stjórn­ar­and­stöðu.“

„Mér þótti vera mjög ábyrgð­ar­laust af rík­is­stjórn­inni að til­kynna umheim­inum fyrir rúmum tveimur vikum að við ætl­uðum að opna landið 15. júní án þess að vera búin að ákveða hvernig þau ætl­uðu að haga fram­kvæmd og án þess að ræða við helstu aðila sem þurfa að koma að mál­inu, eins og stjórn­endur lyk­il­stofn­ana í heil­brigð­is­kerf­inu og ekki síður Íslenska erfða­grein­ingu sem hefur ann­ast 80% sýna­taka.“

Áhersla á sprotafyrirtæki

Sam­fylk­ingin hefur talað fyrir hags­munum lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja og segir Helga Vala í þessu sam­hengi að eitt af stóru verk­efn­unum í dag sé að tryggja þau störf sem eru til staðar og leita allra leiða til að fjölga störfum. „Meg­in­þorri fyr­ir­tækja á Íslandi eru lítil fyr­ir­tæki eða örfyr­ir­tæki og við sjáum það á list­anum sem kom frá Vinnu­mála­stofnun yfir þau fyr­ir­tæki sem nýta sér hluta­bóta­leið­ina að þar eru rúm 80% fyr­ir­tækja lítil fyr­ir­tæki. Mér hefur fund­ist vera lít­ill skiln­ingur hjá ein­staka þing­mönnum í stjórn­ar­lið­inu á rekstri fyr­ir­tækja. Athygli þeirra er aðal­lega á stóru fyr­ir­tækin og það hvernig þau bregð­ast við og aðgerðir mið­aðar að þeim, sem henta ekki endi­lega þeim litlu. Sprota­fyr­ir­tæki eru á meðal lít­illa fyr­ir­tækja og þar er fólk sem getur auð­veld­lega farið með kröft­ugum hætti inn í hvers konar nýsköpun til að skapa ný og fjöl­breytt störf um allt land og það er þar sem við eigum að vera með athygli okkar.“

Helga Vala segir að sér finn­ist gam­al­dags hugsun í við­brögðum ein­kenna rík­is­stjórn­ina og að það hafi valdið sér von­brigðum. „Það er verið að setja ein­hverja fjár­muni í nýsköpun en mér finnst svo lítið gert til að virkja allan þennan kraft sem er í sam­fé­lag­inu; að blása raun­veru­lega lífi í sprota út um allt land. Það mætti til dæmis búa til úrræði á meðal þeirra sem nú eru á atvinnu­leys­is­skrá, virkja þá krafta, skapa störf út um allt land og efla hvers kyns nýsköpun í öllum geirum. Ég tel að okkur muni ganga betur eftir því sem við getum horft meira á fram­tíð­ina og heild­ar­mynd­ina af því að við búum í frá­bæru sam­fé­lagi með ótrú­lega kraft­miklu fólki. Við erum að mörgu leyti mjög hug­rökk þjóð. Mér finn­ast Íslend­ingar vera mjög skap­andi og dríf­andi en að sama skapi eins og stjórn­völd séu á brems­unni hvað þetta varðar. Ég held að fram­tíðin bygg­ist á því hvenær við ætlum að virkja alla þessa krafta; þessa geggj­uðu krafta sem eru í íslensku sam­fé­lagi því þeir eru ein­stakir.“

Helga Vala er spurð hvort það sé ein­hver flokkur sem hún gæti ekki hugsað sér að starfa með í rík­is­stjórn ef til þess kæmi „Ég sé ekki að Sam­fylk­ingin ætti að vinna með flokkum sem við erum ósam­mála í grund­vall­ar­at­riðum. Íhalds­samt miðju­moð, eins og virð­ist vera lenskan hjá rík­is­stjórn­inni, þar sem sam­starfið gengur út á að við­halda gömlum og úrsér­gengnum kerfum er ekki það sem kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar kalla eftir.“

Námsmenn út undan

Helga Vala hefur bent á að náms­menn hafi orðið út undan í aðgerðum stjórn­valda. „Vel­ferð­ar­nefnd náði að breyta fyrra frum­varpi um hluta­bætur þannig að náms­menn í að minnsta kosti hálfu starfi með námi ættu rétt á hluta­bótum. Þegar kom svo að almennum atvinnu­leys­is­bóta­rétti náms­manna voru stjórn­ar­flokkar ekki til­búnir til þess og felldu til­lögu okkar í Sam­fylk­ing­unni. Námsmenn eru mjög fjöl­breyttur hópur. Lítill hópur býr hjá for­eldrum sínum sem geta veitt þeim hús­næði, fæði og klæði. Aðrir eru komnir með fjöl­skyldu, börn sem þarf að fram­fleyta. Hvernig sjá stjórn­völd fyrir sér að náms­maður fram­fleyti sér og fjöl­skyldu sinni í allan þennan tíma án þess að fá nokkurn stuðn­ing? Ég skil það ekki. Mér finnst vera mjög brút­alt af rík­is­stjórn­inni að hafa, ekki óvart heldur með­vitað, tekið ákvörðun um að skilja náms­menn eftir. Þau svör­uðu spurn­ing­unni um vonda stöðu náms­manna með því að þau ætl­uðu að útvega 3000 störf. Í vik­unni voru aug­lýst 1.500 störf. Það eru um 30.000 manns í fram­halds- og háskólum á Íslandi. Þetta fólk þarf meðal ann­ars að borga leigu, leik­skóla­gjöld, fæði og klæði fyrir börn sín. Hvar fær það hjálp?“

Jöfnuður

Helga Vala segir að það að auka jöfnuð á Íslandi sé stærsta málið að sínu mati. „Aukinn jöfn­uður drífur áfram hag­sæld fyrir allt sam­fé­lagið. Þess vegna segi ég að það sé verið að auka ójöfnuð þegar stjórn­ar­þing­menn neita að hækka grunnatvinnu­leys­is­bætur sem og þegar þeir hafna því að hækka grunn­líf­eyri til öryrkja og eldri borg­ara. Ef atvinnu­leys­is­bætur og líf­eyrir myndu hækka þá færu þessar fjár­hæðir beint út í hag­kerfið en ekki í sparnað. Þannig að efna­hags­lega er það óskyn­sam­legt að hækka ekki lægstu launin og lægsta líf­eyr­inn. Það velur sér eng­inn að vera öryrki eða á atvinnu­leys­is­bótum. Þetta er neyð og við getum aukið hér lífs­gæði umtals­vert hjá þeim hópum sem búa við lægstu inn­komu en við getum líka aukið hag­sæld almennt með því að auka jöfnuð því fátækt er kostn­að­ar­söm fyrir sam­fé­lagið. Fyrir mér er þetta stærsta póli­tíska málið á Íslandi og heim­inum öllum.“

Helga Vala segir að sam­fé­lags­mál hafi verið ástæða þess að hún fór upp­haf­lega út í póli­tík og valdi hún Sam­fylk­ing­una vegna hinnar frjáls­lyndu taugar og jafn­að­ar­mennsk­unnar sem hún segir að skipti sig máli.

„Ég held að ef maður nær að tækla von­brigði ein­hvern veg­inn geri það mann sterk­ari og að betri mann­eskju. Lífs­reynsla mín hefur bætt mig og gert mig víð­sýnni.“

Helga Vala var for­maður Sam­fylk­ing­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík á árunum 2009-2010 og þá virk í gras­rót flokks­ins. Hún var síðan kjörin á Alþingi fyrir Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í alþing­is­kosn­ing­unum árið 2017. Þess má geta að í aðdrag­anda þeirra hafði hún meðal ann­ars lagt áherslu á jafn­rétti, mál­efni flótta­manna og hæl­is­leit­enda, umhverf­is­mál og að Ísland fengi nýja stjórn­ar­skrá.
„Grund­vall­ar­réttur skiptir mig miklu máli; að við reynum eins og við getum að vera almenni­leg og tryggja jafnan rétt fólks. Þá skiptir ekki máli kyn, félags­leg staða, trú­ar­brögð eða kyn­þáttur.“

Mannfjandsamlegt kerfi

Helga Vala starf­aði um ára­bil sem lög­maður áður en hún sett­ist á þing og bæði í þeim störfum og á þingi hefur hún feng­ist við mál­efni brota­þola í kyn­ferð­is­brota­málum og mál­efnum inn­flyt­ejnda. Hún segir þessi mál­efni vera sér hug­leikin.
„Ég var lög­maður á neyð­ar­mót­töku og gekk þar vaktir í viku í senn á sex til sjö vikna fresti. Þetta eru erfið mál og þá skiptir öllu máli að rétt­ar­gæslu­maður sé vel vak­andi og brenni fyrir mála­flokk­inn. Sama má segja varð­andi fólk á flótta. Markmið mitt var fyrst og fremst að gera gagn til þess að líf skjól­stæð­inga minna yrði á ein­hvern hátt bæri­legra, lina þján­ingar þeirra og reyna að ná fram ein­hverju rétt­læti.

Varðandi umsækj­endur um alþjóð­leg vernd þá vantar mannúð í kerfið og það þarf aug­ljós­lega að sníða lögin þannig að það sé ekki svona auð­velt að túlka þau umsækj­endum í óhag. Rík­is­stjórnin leggur ítrekað fram frum­vörp sem sýna mann­fjand­sam­lega stefnu hennar og það frum­varp sem er núna í með­ferð þings­ins varð­andi breyt­ingu á útlend­inga­lögum gengur sýnu lengst og gefur lítið svig­rúm til að stjórn­völd skoði mál ein­stak­linga í sér­stak­lega við­kvæmum aðstæðum.

Við búum í ríku sam­fé­lagi og mis­tökin sem við höfum gert er að egna saman hópum; að láta eins og umsækj­endur um vernd séu að taka eitt­hvað af öryrkjum. Við getum alveg eins sagt að opin­berir starfs­menn eða rík­is­for­stjórar séu að taka af öryrkjum.“

Það vakti athygli á hátíð­ar­fundi Alþingis í júlí 2018, þegar Íslend­ingar fögn­uðu 100 ára full­veld­is­af­mæl­inu, að Helga Vala stóð upp þegar Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þjóð­þings­ins, steig á svið. Helga Vala seg­ist hafa gert það vegna þeirrar hörðu inn­flytj­enda­stefnu sem Pia og flokkur hennar rekur.

„Ég valdi að senda skýr skila­boð um að mann­fjand­sam­leg stefna hennar væri mér ekki að skapi en hún hefur grafið undan mann­rétt­indum ákveð­inna hópa í heima­landi sínu. Ég hafði enga rödd þarna til þess að mót­mæla en ég gat gert það með því að yfir­gefa svæðið undir ræðu hennar.“ Helga Vala hefur verið gagn­rýnd fyrir að mæta til veislu um kvöldið þrátt fyrir þetta og seg­ist fegin að fá að svara þeirri gagn­rýni „Veislan var ekki afmæli Piu né á nokkurn hátt henni til heið­urs. Um var að ræða 100 ára afmæli full­veldis sem er stór við­burður í sögu okkar. Hún var auka­leik­ari og ég kaus að hlusta hvorki á hana að deg­inum né um kvöldið. En hún átti hvorki hátíð­ina á Þing­völlum né hófið og því sýndi ég því til­efni virð­ingu mína.“

Helga Vala seg­ist ekki hafa tekið gagn­rýni á sig vegna þessa nærri sér. „Mér fannst þetta ekk­ert mál. Þetta voru bara gusur sem ég tek venju­lega lítið hátíð­lega. Mér finnst erf­ið­ara þegar fólk er bein­línis að ljúga upp á mig eða segja að ég sé til dæmis ómerki­legur iðju­leys­ingi sem mæti aldrei í vinnu því bæði ég og mínir nán­ustu vita að vinnu­dag­arnir eru langir og helg­ar­fríin fá. Í tengslum við umræðu um flótta­fólk er því til dæmis haldið fram að ég reki enn lög­manns­stofu og græði á flótta­mönnum. Þetta er bara lygi. Ég hætti í lög­mennsku eftir að ég fór á þing, hætti störfum sem tals­maður flótta­fólks 2014 og þau verk sem ég tók að mér eftir 2014 voru í sjálf­boða­vinnu, skrif­stofu­stjóra stof­unnar til mik­illar armæðu.“

Var mikill djammari

Helga Vala er dóttir leik­ar­anna Helgu Bachmann og Helga Skúla­sonar sem bæði eru látin. Hún á tvo eldri bræður, Skúla og Hallgrím, og eina eldri hálf­systur, Þórdísi, sem býr í Danmörku. Skúli, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi alþing­is­maður, er sjö árum eldri en Helga Vala. „Hann þurfti að þola það að drösl­ast með mig í eft­ir­dragi. Samband mitt við báða bræður mína er mjög gott og við erum mjög náin fjöl­skylda.“
Þess má geta að for­eldrar þeirra voru flokks­bundir í Sjálf­stæð­is­flokknum. „Við systk­inin höfum öll farið í átt­ina að jafn­að­ar­mennsk­unni. Við erum vinstri­s­inn­aðri.“
Það var ekki talað um póli­tísk á heim­il­inu heldur leik­list. „Það var alltaf verið að tala um leik­list. Alla daga. Allan árs­ins hring í öllum boðum. Þetta var svo­lítið flókið fyrir þá sem komu nýir inn í fjöl­skyld­una en þeir vönd­ust því fljótt að það var eig­in­lega bara talað um leik­list og aðrar listir.“

Helga Vala segir að upp­eldið hafi verið frjáls­legt og mik­ill sveigj­an­leiki ein­kenndi það sem hafi falist í pass­legu kæru­leysi og miklu sjálf­stæði. „Það var lítið um ramma en mikið um hvatn­ingu. Ég held að það að hvetja börn áfram sé besti heiman­mundur sem þau geti fengið og kenna þeim að það sé í lagi að gera mis­tök svo fremi sem það sé ekki á kostnað ann­arra.“

Hún segir að þau skila­boð úr upp­eld­inu að hún gæti gert allt hafi gert það að verkum að það vanti kannski pínu­lítið í sig þetta „hikgen“. „Ég hef bara brett upp ermar og farið í alls konar verk­efni en sem betur fer endað stand­andi úr þeim flestum og lært mjög mikið af því.“

„Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að halda sér­stökum hlífi­skildi yfir þeim sem nýta auð­lind­ina í sjónum og það finnst mér vera póli­tískt, efna­hags­lega og sam­fé­lags­lega mjög óheil­brigt.“

Helga Vala ólst upp í Vest­ur­bænum og gekk í Mela­skóla og Haga­skóla. „Mér gekk ágæt­lega í skóla en ég var ekk­ert fók­useruð á námið og skól­ann og eig­in­lega alls ekki og sér­stak­lega á ung­lings­ár­unum. Námið var neð­ar­lega á for­gangs­list­anum. Ég vildi bara skemmta mér með vinum mínum, ég var ekki í neyslu eða óreglu en Vest­ur­bæj­ar­krakk­arnir djömm­uðu mikið á þessum tíma. Að minnsta kosti í mínum vina­hópi.“

Helga Vala seg­ist hafa farið ful­loft til skóla­stjór­anna í þessum skólum. „Ég var óþekk, hortug og hvat­vís. Ég var líka upp­á­tækja- og afskipta­söm, klifraði utan á hús­bygg­ingum og gerði ýmsar til­raunir með mis­jöfnum árangri. Sumt hefur elst af mér, annað ekki.“

Lék peruna

Helga Vala ætl­aði sem barn að vinna í sjoppu vegna sér­staks dálætis á sæl­gæti en síðar dreymdi hana um að verða afbrota­fræð­ingur. Hún fór í MH og eign­að­ist sitt fyrsta barn, Snærós, 19 ára gömul. „Hún er líf mitt og yndi eins og önnur börn mín. Þetta var ynd­is­leg lífs­reynsla og ég var alger­lega til­búin þegar hún kom. Ein­hverjir vildu meina að ég væri of ung til þess að eign­ast barn en ég var og er enn ósam­mála. Það var engin röskun á lífi mínu að verða mamma. Þetta var bara dásam­legt og mikil gæfa enda er Snærós ein­stök.“
Helga Vala ákvað í lok mennta­skóla að sækja um í Leik­list­ar­skóla Íslands og komst inn í annarri til­raun. „Leik­listin er auð­vitað dásam­lega lokk­andi. Mömmu fannst það mjög skemmti­legt að ég ætl­aði að fara í leik­list en pabbi spurði mig hvort ég væri nú alveg viss, enda heim­ur­inn harður, en þau studdu mig bæði.“

Helga Vala útskrif­að­ist árið 1998. Fyrsta hlut­verk hennar var í Ávaxta­körf­unni, þar sem hún lék Pöllu peru, og svo í Snuðru og Tuðru en hún leysti af í báðum sýn­ingum. Hún hélt síðan norður og starf­aði sem leik­kona og leik­stjóri hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar árið 1999. Við kom­una suður aftur bauðst henni að leika með bresku far­and­leik­húsi, New Perspective Theatre Company, og það gerði hún í hálft ár árið 2000. Við heim­kom­una fann hún að hug­ur­inn leit­aði annað. Hún vann við fjöl­miðla í nokkur ár og segir að í því starfi hafi hún kom­ist að því að lög­fræðin sner­ist ekki um menn í jakka­fötum sem haldi á stresstösku heldur snú­ist lög­fræðin um lífið allt og rétt­indi borg­ar­anna, mann­rétt­indi og grund­vall­ar­rétt. Hún hafði aldrei leitt hug­ann að því að fara í lög­fræði og til­kynnti fjöl­skyld­unni það einn dag­inn að hún ætl­aði að læra lög­fræði og það gerði hún í fimm ár og útskrif­að­ist með meist­ara­próf í lög­fræði frá Háskól­anum í Reykja­vík 39 ára gömul árið 2011.

„Það að fara í þetta nám var skyndi­á­kvörðun eins og flest í lífi mínu. Framboð til Alþingis árið 2017 var til dæmis skyndi­á­kvörðun sem ég sé ekki eftir.“

Helga Vala segir að vinnu­dag­arnir séu oft langir og það hafi komið henni á óvart hvað því fylgi mikil vinna að vera alþing­is­maður. „Þegar ég vakn­aði dag­inn eftir kosn­ingar og átt­aði mig á að ég væri að fara að skipta um starf hafði ég mestar áhyggjur af því að ég mér myndi leið­ast en það hefur svo sann­ar­lega ekki orðið raunin.“

Lífið er alls konar

Eig­in­maður Helgu Völu er Grímur Atlason, fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar. Þau voru bæði í MH en kynnt­ust þó ekki fyrr en 1999 af alvöru og giftu sig ári seinna. Hún er spurð hvað hafi heillað hana við Grím. Hún horfir út á Aust­ur­völl. Segir svo bros­andi: „Grímur er svo fal­legur maður. Hann er bara svo spenn­andi karakter. Hann hefur gert mig að betri mann­eskju. Hann er að ein­hverju leyti víð­sýnni en ég og hann hefur meiri reynslu úr öllum kimum sam­fé­lags­ins. Svo er hann ótrú­lega umburð­ar­lyndur gagn­vart hvat­vísi konu sinnar sem á það til að fara í miklar aðgerðir innan og utan heim­ilis með engum fyr­ir­vara, eins og að ákveða skyndi­lega 14 dögum fyrir jól að láta saga niður vegg og umturna eld­hús­inu. Grímur er frá­bær pabbi og guð­dóm­legur afi og já, svo hefur hann kennt mér að meta körfu­bolta.“

Helga Vala segir að hún sé róm­an­tísk­ari heldur en Grímur. „Laug­ar­dags­morgnar þegar við náum að fá okkur kaffi saman og spjalla eru gæða­tímar okkar. Þetta þarf ekk­ert að vera flókið eða íburð­ar­mikið.“ Hvað með lagið þeirra? „Það er „Harvest Moon“ með Neil Young. Við hlustum mikið á tón­list og ekki síst nýja, óþekkta lista­menn. Hann hefur kynnt fyrir mér alls konar tón­list.“

Grímur átti fyrir son­inn Emil sem er núna 25 ára en Snærós, dóttir Helgu Völu, er 28 ára. Þá eiga hjónin saman Ástu Júlíu sem er 19 ára og Arnald sem er 17 ára. Snærós á tvö börn og tvö stjúp­börn. „Þannig að það eru fjögur barna­börn. Þetta er lífið! Ítölsk stór­fjöl­skylda! Ég vil helst að allir búi bara hérna rétt hjá mér og séu hér í kring en maður þarf að taka til­lit til þarfa fólks; sumir elska enda­lausa afskipta­semi en aðrir hafa minna gaman af því.“
Helga Vala fer í lík­ams­rækt nokkrum sinnu í viku og mætir um klukkan sex á morgn­ana. Það er mikið að gera en hún er samt að spá í að fara í kvöld­skóla í Tækni­skól­anum í haust og læra húsa­smíðar af því að hún hefur smíðað ýmis­legt en langar til þess að læra það. „Ég vona að ég geti þetta en þetta er enn þá á drauma­stig­inu. Þetta kallar á hressandi skipu­lag.“

Helga Vala seg­ist vera ham­ingju­söm og segir að lyk­il­inn að lífs­ham­ingj­unni sé að skilja ekki ágrein­ings­málin eftir. „Það þarf að mæta þeim og klára þau. Lífið er ekki alltaf dans á rósum, sem er auð­vitað algjör mót­sögn því það getur ekki verið þægi­legt að dansa á rósum, en þetta er lífið og á því þroskumst við. Við megum stundum vera sorg­mædd og stundum verðum við fyrir von­brigðum með okkur sjálf eða aðra. Stundum lendum við í ást­ar­sorg og það er hluti af líf­inu og við komum sterk­ari út úr svona reynslu. Ég held að ef maður nær að tækla von­brigði ein­hvern veg­inn þá geri það mann sterk­ari og að betri mann­eskju. Lífs­reynsla mín hefur bætt mig og gert mig víð­sýnni. Hún hefur líka orðið mér til góðs í störfum mínum bæði í lög­mennsk­unni og á Alþingi. Þannig breytir maður erf­iðri reynslu í styrk­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi