Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jónína Ben opnar sig um meðferð í Krýsuvík og „kirkjupólitík“ í Krossinum

Jónína Ben opnar sig um meðferð í Krýsuvík og „kirkjupólitík“ í Krossinum
Mynd / Heiðdís

„Í jan­úar gerði ég það og fór inn á þann umdeilda stað Krýsuvík sem er eina með­ferða­stöðin sem býður upp á lang­tíma með­ferð og 12 spora­vinnu sem fólk eins og ég gefum okkur aldrei tíma til þess að vinna heima hvað þá í stuttum heim­sóknum á Vog eða Vík.“ Þetta skrifar Jónína Bene­dikts­dóttir meðal ann­ars í langa færslu sem hún birtir fyrr í dag á Facebook. Í færsl­unni opnar hún sig um dvöl­ina á Krýsuvík, Krossinn og fyrr­ver­andi eig­in­mann sinn, Gunnar í Kross­inum.

Hún segir erfitt að lýsa líðan sinni þegar hún upp­lifið upp­gjöf og fór í með­ferð.

Hún segir marga hafa for­dóma fyrir Krýsuvík og segir margt fólk hafa sagt sér að hún ætti ekk­ert erindi inn á það með­ferð­ar­heim­ili.

„…margir líta á sem enda­stöð, þangað fer bara fólk sem eru verstu dópistar jafn­vel rónar lands­ins, fólk frá fang­elsum, heim­il­is­lausir, fólk sem hefur misst frá sér börnin sín, verið beitt ofbeldi frá barn­æsku, fólk sem hefur ekki lært að lesa, ekki fengið ást frá fyrsta degi, ekki séð neitt framundan nema næsta skammt­inn sem sumir hafa þurft að selja lík­ama sinn fyrir og þá um leið sjálfs­virð­ing­una,“ skrifar Jónína.

Hún segir Guð hafa leitt sig á Krýsuvík og kveðst hafa hlustað á hjartað.  „Ég þoli ekki snobb og hlust­aði því ekki á marga sem sögðu mér að ég ætti ekk­ert erindi þangað, fann í hjarta mínu að það var rangt. Hjartað mitt lýgur aldrei og ég fór !“

„Hjartað mitt lýgur aldrei og ég fór !“

Í færsl­unni skrifar Jónía einnig um skiln­að­inn við Gunnar Þor­steins­son, sem er oft­ast kenndur við Krossinn, og það sem hún kallar „kirkjupóli­tík“ í Kross­inum.

Segir andlegu ofbeldi beitt í Krossinum

„Áföllin voru afgreidd í róleg­heitum, skref fyrir skref, aðkoma mína að Baugs­mál­inu og fjöl­miðla­menn sem unnu á bak við tjöldin og tættu æru mína dag eftir dag í sig í eigin fjöl­miðlum manna sem ég opinn­ber­aði að væru glæpa­menn í jakka­fötum, að vísu kóka­ein­fíklar margir hverjir og svo seinni­tíma skelf­ingin og enn verri kirkjupóli­tíkin í Kross­inum, and­legt ofbeldi sem þar ríkti og ríkir enn því sumt kærir Guð sig ekki um að leysa og verður því aldrei leyst þótt allir séu í sárum. Gunnari var um megn að halda í köllun sína eftir óupp­gerðan skilnað en þau lifa með því ekki ég.

Flóttinn frá sann­leik­anum í hámarki og ég neydd til þess að ljúga og ljúga til þess að sjálf halda haus í þess­ari enda­lausu óskiljan­elgu þvælu allri. Mesti flótt­inn frá sjálfum sér er þroska­þjóf­ur­inn að taka setn­ingar út Bibl­í­unni og henda þeim í and­litið á fólki fyrir tíund og sjálfs­upp­hafn­ingu sem margir predik­arar þríf­ast á. Gunnar á mikla vinnu fyrir höndum já eða upp­gjör á sínum sjúk­dómum-líkt og við mörg sem vorum í kirkj­unni,“ skrifar Jónína meðal ann­ars.

Jónína tjáir sig um mál sem kom upp innan fjöl­skyld­unnar, hún segir málið hafa gert það að verkum að hún glímdi við hatur gagn­vart dóttur Gunnars.

„Að þykj­ast vera góður en vera í raun mjög vondur-sið­laus, til­finn­inga­laus án sam­kenndar er algeng­ari í kirkjum en ég hefði trúað. Að þurfa að sitja undir rann­sókn Sérstaks Sak­sókn­ara í tvö ár vegna þess að dóttir manns­ins þín kærir þig/hann er lam­andi en þá þurfti ég að vera sterk sem ég var ekki alltaf-og þó. Ég glímdi við hatur og heift sem og rosa­lega reiði út í kon­una. Gunnar var stung­inn í bakið af dóttur sinni og ég reyndi að hjálpa honum út úr þeirri gröf en það gekk ekki. Gröfin er enn tóm og engin upp­risa svo mikið er víst bara nýir djöflar nú þegar ég er farin. Sorglegt.“

Jónína lofar Krýsuvík í hástert í færsl­unni og segir það vera fal­legt heim­ili.

„Það er skoðun mín að þeim sem líði illa og eru búnir að missa tökin á líf­inu ætti að hjálpa inn á Krýsuvík þar er agi, fal­legt heim­ili, kær­leik­ur­inn sem við köllum Guð, for­dóma­laust umhverfi, nátt­úr­feg­urðin algjör, mat­ur­inn eins og á lúxus veit­inga­stað.“

Færsluna má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi