Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lét spinna garn úr hári hundsins Fróða – „Held að hann sé bara stoltur að hafa lagt þetta til“

„Hún er alveg rosa­lega hlý,“ segir rit­höf­und­ur­inn Unnur Þóra Jök­uls­dóttir um peysu sem hún prjón­aði úr garni sem var spunnið úr hárum af hund­inum hennar Fróða. Fróði er tveggja ára og af teg­und­inni Samoyed. Sú teg­und er með tvö­faldan feld.

„Þegar ég er í peys­unni fæ ég aðeins að upp­lifa hvernig Fróða líður með þennan mikla feld. Hann elskar kuld­ann og vill helst sofa úti þegar það er frost. Veturinn er hans Kanarí­eyjar,“ segir Unnur.

„Það er svo mjúkt og hárin spretta út eins og í pels.“

Spurð nánar út í garnið sem spunnið var úr hári Fróða segir Unnur: „Ég heim­sótti Jóla­húsið á Akureyri síð­asta sumar. Í einu horni Jóla­húss­ins eru alls konar hespur af garni til sýnis og sölu, garn sem eig­andi Jóla­húss­ins spinnur. Ég var akkúrat með poka af hári af Fróða úti í bíl, hári sem hefur safn­ast í kamb­inn hans. Ég spurði hvort það væri hægt að gera eitt­hvað úr því og henni fannst þetta spenn­andi. Nokkrum vikum seinna fékk ég þessar fínu hespur sendar í pósti.“

Unnur segir garnið koma afar vel út í peysu. „Það er svo mjúkt og hárin spretta út eins og í pels.“ Þess má geta að Unnur not­aði garnið Alpaca Queen úr Stork­inum í peys­una á móti Fróða-garn­inu.

Aðspurð hvernig Fróði hafi brugð­ist við þegar hún fékk garnið í pósti segir Unnur það hafi verið aug­ljóst að honum hafi þótt þetta athuga­vert. „Þegar ég tók garnið upp úr pakk­anum var hann fyrst ráð­villtur og hissa. Svo held ég að hann sé bara stoltur að hafa lagt þetta til,“ segir Unnur og hlær. „Hann þef­aði mikið af garn­inu fyrst en hefur svo ákveðið að taka því ekki sem keppi­naut.“

Safnar sögum um áhrif handavinnu á líf fólks

Peysan sem Unnur prjón­aði úr garn­inu er glæsi­leg. Hún seg­ist hafa stuðst laus­lega við upp­skrift úr prjóna­blað­inu Tinnu. „Ég fór frjáls­lega eftir upp­skrift­inni, ég er ekki nógu klár prjóna­kona til að hanna eigin upp­skrift. Ég er samt alltaf að læra eitt­hvað nýtt. Ég ætla t.d. að læra að prjóna kaðla­munstur í sumar,“ segir Unnur. „Annars hef ég kom­ist að því að YouTube er besta kennslu­konan,“ bætir hún við.

Þótt Unnur telji sig ekki mikla prjóna­konu seg­ist hún hafa mik­inn áhuga á prjóna­mennsku út frá sam­fé­lags­legum sjón­ar­miðum. Hún segir merki­legt að sjá að margt fólk byrjar að prjóna í auknum mæli þegar krísur koma upp. „Eins og þegar árásin á Tví­bura­t­urn­ana í New York var gerð, í efna­hag­skrepp­unni 2008-2011 og núna á tímum COVID-19, þá er eins og áhugi fólks á prjóni og handa­vinnu auk­ist. Fólk leitar meira inn á við.“

Hún segir róandi að sitja við og prjóna eða hekla en tekur fram að það geti líka verið krefj­andi. „Þetta er svona iðja sem leyfir fólki að gleyma stund og stað en hún er ekki alltaf afslapp­andi. Þetta er ákveðin þraut og maður er ein­hvern veg­inn alltaf að telja út þannig að ein­beit­ingin þarf að vera í lagi.“

Unnur safnar nú sögum um hvernig prjóna­skapur og hekl hefur haft áhrif á líf fólks í krísum og gleði. Hún bendir á að hægt sé að senda henni sögur á net­fangið [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi