Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Einhverja daga húkti ég á bensínstöðinni“

„Einhverja daga húkti ég á bensínstöðinni“
Menn­ing­ar­setrið Gimli á Stokks­eyri

Berg­ljótu Arnalds rit­höf­undi var vísað á dyr í menn­ing­ar­hús­inu Gimli á Stokks­eyri þar sem hún hafði leigt sér lista­manna­að­stöðu. Páll Ásgeir Dav­íðs­son, lög­maður og barns­faðir hennar, fékk úthlutað aðstöðu í sama hús­næði og Bergljót en hún hefur sakað hann um heim­il­is­of­beldi í áraraðir. Um er að ræða vinnu­að­stöðu í menn­ing­ar­setri á Stokks­eyri en Bergljót ákvað að flytja til Eyr­ar­bakka á sínum tíma til að vera sem fjærst eig­in­mann­inum fyrr­ver­andi.

Páll Ásgeir Dav­íðs­son, lög­maður og barns­faðir Berg­ljótar Arnalds, vísar því alfarið á bug að honum hafi gengið slæmt til þegar hann óskaði eftir vinnu­að­stöð­unni og telur sig hafa komið þangað inn á undan Berg­ljótu þó að hann hafi vissu­lega vitað að hún hefði hug á því. Að hann sé elti­hrellir segir hann ekki eiga nokkra stoð í raun­veru­leik­anum. „Fyrir það fyrsta var ég kom­inn þarna inn langt á undan henni. Hún hafði ein­hvern tím­ann haft það á orði að hún vildi fara þarna inn en það var bara eitt­hvað hugs­an­lega og kannski. Þar sem Bergljót var ekki með aðstöðu á menn­ing­ar­setr­inu og heim­ili hennar á Eyr­ar­bakka var ekki til­búið hafði ég enga ástæðu til að ætla að hún myndi vera þarna. Ástæðan fyrir því að mig vant­aði aðstöðu er sú að Bergljót skráir barn okkar í skóla á Stokks­eyri. Þetta var gert án nokk­urs sam­ráðs við mig og gerir það að verkum að ég þarf að keyra alla leið austur til að fara með barnið úr skóla og svo aftur heim til Reykja­víkur. Ég þurfti þessa aðstöðu ein­fald­lega þess vegna. Ein­hverja daga húkti ég á bens­ín­stöð­inni en svo var mér bent á að þarna væri hægt að fá húsa­skjól til að vinna. Þetta er ekki flókn­ara,“ segir Páll Ásgeir.

„Sjálfur hef ég engan áhuga á því að eiga í sam­skiptum við Berg­ljótu en við eigum saman barn og ég þarf vinnu­að­stöðu þegar ég keyri hana í skól­ann. Það er bara ekki þannig að mér hafi gengið illt til, viljað klekkja á henni eða elta. Dóttir mín hefur verið mjög kát með að pabbi hennar sé þarna á staðnum en ég get alveg trúað því að Berg­ljótu hafi þótt þetta óþægi­legt. Hins vegar vissi ég ekki að hún væri þarna líka og sendi henni strax upp­lýs­ingar um hvaða daga ég væri þarna svo hún gæti ákveðið hvort hún vildi koma eða ekki. Ég lagði til að við finndum leið til að láta dæmið ganga upp og ég fengi að vera þarna þá daga sem ég þurfti að keyra barnið til og frá skóla, þetta eru ekki nema 4 dagar í mán­uði. Það er því­lík fásinna að ég hafi verið að elt­ast við Berg­ljótu á meðan ég er bara að bíða eftir barni okkar á mínum umgengnis­tíma og vinna með þær erf­iðu aðstæður að barnið er í skóla langt frá heim­ilum sínum. Ég bauðst svo til að bakka þegar ég sá hvaða vesen þetta væri.“

Lestu nánar um málið í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi