Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Móðir Heklu Lindar segir mál George Floyd „rífa upp sárið“

Móðir Heklu Lindar segir mál George Floyd „rífa upp sárið“
Ljós­mynd­ari Mannlífs

„Þetta rífur upp sárið,“ segir Guðrún Har­alds­dóttir, móðir Heklu Lindar Jóns­dóttir sem lést í apríl 2019 við hand­töku, um mál Banda­ríkja­manns­ins George Floyd. Floyd lést 25. maí við hand­töku þegar lög­reglu­mað­ur­inn Derek Chauvin lét þunga sinn hvíla á hálsi hans. Mikil mót­mæli hafa brot­ist út í Banda­ríkj­unum og víðar í kjöl­far and­láts Floyd.

„Ég vil ekk­ert blanda þessum tveimur málum saman en ég verð að við­ur­kenna að þetta rífur upp sárið. Þarna erum við með tvo jað­ar­hópa, hann var svartur Banda­ríkja­maður, og hún var fík­ill, og bæði verða þau fyrir lög­reglu­of­beldi og láta lífið við hand­töku. Það er ljótt að segja það, en það er eins og ákveðnir hópar hafi ekki mann­rétt­indi,“ segir Guðrún.

„Í til­felli Heklu er eins og lög­reglan leyfi sér að koma illa fram við hana af því að hún var fík­ill. Hún var bara venju­leg stelpa en var veik,“ útskýrir Guðrún.

Hekla Lind lést þann 9. apríl 2019 við hand­töku og rann­sókn rétt­ar­meina­fræð­ings leiddi í ljós að harka­legar aðgerðir lög­reglu við hand­töku áttu þátt í dauða hennar.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hóf rann­sókn á mál­inu en málið var látið niður falla í lok sum­ars 2019. Guðrún og fjöl­skylda Heklu eru ósátt við það. „Við erum auð­vitað ósátt við að málið hafi verið fellt niður en það er núna komið inn á borð umboðs­manns Alþingis.“

Engin upptaka af handtökunni

Mikil umræða hefur skap­ast í kringum mál Floyd um þá stað­reynd að hand­takan náð­ist á mynd­band þar sem Floyd sést berj­ast fyrir lífi sínu. Guðrún segir hand­töku Heklu ekki hafa náðst á mynd­band en veltir fyrir sér hvort málið hefði þró­ast öðru­vísi hefðu lög­reglu­menn­irnir tveir sem hand­tóku hana verið með mynda­vélar á sér.

„Enginn veit hvað gerð­ist nákvæm­lega. Það sem við vitum er hvað rétt­ar­mein­inga­fræð­ingur segir og hver nið­ur­staða krufn­ing­ar­skýrslu er,“ útskýrir Guðrún og tekur fram að þær upp­lýs­ingar bendi til að lög­reglu­menn­irnir hafi farið offari við hand­tök­una.

„Við vitum að aðgerðir þeirra áttu þátt í því að hún lést. Hún var lítil og nett en þeir báðir yfir 100 kílóum.“

Reynt að „svæfa málið“

Guðrún og aðrir fjöl­skyldu­með­limir Heklu vöktu athygli á máli hennar á sam­stöðu­fund­inum sem var hald­inn á Aust­ur­velli í vik­unni. Hún segir margt fólk hafa komið upp að þeim og sýnt þeim stuðn­ing.

„Fólk sem við þekkjum ekki neitt kom upp að okkur og sýndi okkur sam­stöðu. Maður fann fyrir stuðn­ingnum,“ segir Guðrún.

Hún segir fjöl­skyld­una eiga fullt í fangi með að halda máli Heklu á lofti í von um að ná fram ein­hverju rétt­læti. „Hún á að fá rödd en það er eins og það sé verið að reyna að svæfa málið. Við getum ekki sætt okkur við það.“

Hún bætir við að það sem fjöl­skylda Heklu vilji sé að yfir­völd við­ur­kenni að um mis­tök við hand­töku hafi verið að ræða. „Þó að við­ur­kenndar hand­töku­að­ferðir hafi verið not­aðar, eins og lög­reglan heldur fram, þá þarf að spá í hvern er verið að hand­taka. Það þarf að lesa í aðstæður. Hún var eng­inn glæpa­maður, hún gerði ekk­ert af sér en hún var í slæmu geð­rofi.“

„Hún á að fá rödd en það er eins og það sé verið að reyna að svæfa málið.“

Eins og áður sagði er mál Heklu Lindar á borði umboðs­manns Alþingis. „Við erum þakk­lát fyrir að það sé verið að skoða málið. Það sem við viljum er að lög­reglan við­ur­kenni að mis­tök við hand­töku hafi valdið dauða hennar.“ Guðrún bætir við að það sé sárt að standa í þess­ari bar­áttu ofan á allt annað sem á undan er gengið.

Hún von­ast líka til að mál Heklu Lindar veki fólk til umhugs­unar um rétt­indi fólks með fíkni­sjúk­dóma. „Með­ferðin sem Hekla hlaut þegar hún var hand­tekin … ég er ekki viss um að ég eða þú myndum hljóta svona með­ferð. Fólk sem glímir við fíkn er oft fár­sjúkir ein­stak­lingar og að þarf að við­ur­kenna það og skoða hvernig á að koma fram við þessa ein­stak­linga. Þetta er fólk sem þarf á hjálp að halda og það þarf að koma vel fram við það.“

Guðrún segir hvern sem er geta leiðst út í fíkn og segir dóttur sína vera gott dæmi um það. „Fíkn spyr ekki um stétt né stöðu. Það hefði engan grunað að þessi flotta stelpa myndi fara út í eitt­hvað rugl. Hún átti fjöl­skyldu sem studdi hana, var afburða­nem­andi og stóð sig alltaf vel. Svo fór hún eitt­hvað að fikta og var greini­lega með þennan fíkil í sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi