Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Amma byrjaði í rallíkrossinu

Amma byrjaði í rallíkrossinu

Aðeins tvær konur í heim­inum eru for­menn akst­urs­í­þrótta­sam­banda sinna landa. Önnur þeirra er Helga Katrín Stef­áns­dóttir. Hún er fyrst kvenna til að leiða Akst­urs­í­þrótta­sam­band Íslands en hún tók við for­mennsk­unni af Tryggva Þórð­ar­syni í síð­asta mán­uði. Helga kemur af fullum krafti inn í mót­or­sport­sum­arið 2020 sem hófst fyrir alvöru um síð­ustu helgi.

Þeir eru senni­lega ekki margir sem geta greint frá því að amma þeirra hafi keppt í rallíkrossi. Helga getur það nú samt og þegar hún er spurð út í hvernig áhug­inn á akst­urs­í­þróttum kvikn­aði segir hún að þráð­ur­inn liggi í gegnum afa hennar og ömmu í upp­hafi. „Þetta byrj­aði eig­in­lega þannig að vinur ömmu minnar og afa keppti í rallíkrossi. Pabbi minn og fjöl­skylda voru í aðstoð­ar­lið­inu,“ útskýrir hún en það er nú einmitt þannig að akst­urs­í­þróttir verða mjög gjarnan að fjöl­skyldu­sporti þar sem liðs­heild og sam­heldni ríkir.

Áhuginn endurvakinn á sjúkrahúsinu

Fjöl­skyldan var mest í kringum rallíkrossið á árunum 1990-1994 og var Helga, sem er fædd árið 1988, því ósköp ung. En snemma beyg­ist krók­ur­inn. Á þessum árum var rallíkross ákaf­lega vin­sælt og í fréttum árið 1991 var til að mynda greint frá því að 3000 manns hefðu mætt til að fylgj­ast með keppni á nýrri braut við Krýsu­vík­ur­veg­inn.

Pabbi Helgu veikt­ist nokkrum árum síðar, árið 1998, og var lagður inn á sjúkra­hús. Þar kynnt­ist hann tor­færu­öku­mann­inum Gunnari Gunn­ars­syni sem keppti í tor­færunni á þeim tíma. Þeir urðu góðir félagar og þegar báðir höfðu náð heilsu var tor­færu­á­hug­inn heldur betur kvikn­aður hjá fjöl­skyldu Helgu. Fyrir þá sem það þekkja er fátt sem dregið getur úr þeim áhuga. Næstu árin var fjöl­skyldan mikið við­riðin keppn­is­hald í tor­færu og Helga fylgd­ist iðu­lega vel með þessu ramm­ís­lenska sporti sem tor­færan jú er.

Mistök leiddu til farsæls hjónabands

Helga er nú, auk þess að gegna for­mennsku í AKÍS, for­maður Tor­færu­klúbbs Suð­ur­lands og í stjórn situr meðal ann­arra Sigfús Þór Sig­urðs­son, eig­in­maður Helgu. Það er auð­velt að draga þá ályktun að þau Fúsi, eins og hann er kall­aður, hafi kynnst í gegnum mót­or­sportið en sú er ekki raunin. „Ég kynnt­ist manni á net­inu og við ætl­uðum að tala saman á MSN. Ég sló inn rangt not­enda­nafn og það nafn átti annar maður en sá sem ég ætl­aði að tala við. Þeim manni er ég gift í dag,“ segir Helga og þau Fúsi hafa nú verið saman í þrettán ár.

Þau byrj­uðu ekki saman strax heldur liðu nokkur ár og það var árið 2007 sem leiðir þeirra lágu saman fyrir til­viljun. Og hvar ann­ars staðar en á tor­færu­keppni á Akureyri. „Pabbi dró mig með á tor­færuna og þarna var hann. Við Fúsi höfum verið límd saman síðan þá,“ segir Helga um hina und­ar­legu vegi, eða í þessu til­viki, tor­færur ást­ar­innar. Faðir Fúsa, Sigurður Þór Jónsson, keppti í tor­færu á þeim tíma og Helga var umsvifa­laust orðin hluti af keppn­islið­inu í kringum tor­færu­bíl­inn Tröllið. „Hann var þá for­maður þess

klúbbs þar sem ég er for­maður í dag. Hann, ásamt fleirum, stofn­aði þann klúbb sem ég og mað­ur­inn minn sjáum um í dag,“ segir hún og vísar þar til Tor­færu­klúbbs Suð­ur­lands.

Lestu við­talið við Helgu Katrínu í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi