Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Maður þarf að eltast við drauma sína sjálfur“

„Maður þarf að eltast við drauma sína sjálfur“
Svala Björg­vins Mynd / Unnur Magna

Svala Björg­vins var alin upp við tón­list frá blautu barns­beini og tón­listin tog­aði hana til sín strax í mennta­skóla. Fram undan er EP-plata með íslenskum lögum byggðum á per­sónu­legri reynslu síð­ustu ára.

Í við­tali við Mannlíf ræðir Svala tón­list­ar­fer­il­inn, æsku­árin og fjöl­skyld­una, skiln­að­inn, bílslysið sem breytti sýn hennar á lífið, ást­ina sem fann hana,

„Fólk er alls konar, lífið er alls konar og það er líka erfitt. Það er ekk­ert til að skamm­ast sín fyrir og gerir mann ekki að minni mann­eskju, við erum öll mann­leg og eng­inn á full­komið líf.“ Mynd / Unnur Magna

Aðspurð um hvort hún eigi sér fyr­ir­myndir í líf­inu þá nefnir Svala móður sína og ömmur, Siggu og Svölu, sem hún seg­ist hafa verið náin alla tíð, en Sigga föð­ur­mamma hennar, lést í vetur.

Sjá einnig: Svala varð ást­fangin á núll einni: „Gauti er stór­kost­leg mann­eskja og við erum rosa­lega ást­fangin“

„Pabbi er svo klár­lega fyr­ir­mynd mín þegar kemur að tón­list­inni. Hann er mik­ill fag­maður og gerir allt 100 pró­sent og ætl­ast til að þeir sem hann vinnur með séu það líka. Ég hef lært það af honum að gera alltaf mitt besta. Það kemur ekk­ert upp í hend­urnar á manni. Það þarf að vinna fyrir hlut­unum og vinna mikið að því að sá þessum fræjum þá kemur upp­skeran. Maður þarf að elt­ast við drauma sína sjálfur.“

Svala seg­ist vera mik­ill vinur for­eldra sinna og bræðra, sér­stak­lega Krumma bróður síns, enda bara tvö ár á milli þeirra. Sigurður hálf­bróðir hennar er einnig náinn vinur hennar og gott sam­band á milli þeirra.

„Hann kom oft til okkar sem krakki og miklu meira eftir að hann varð ung­lingur. Hann og pabbi eru mjög nánir og eiga gott sam­band, hann er rosa­lega líkur pabba og syngur alveg eins, er með sömu rödd,“ segir Svala og kveðst þakk­lát fyrir að hafa verið alin upp við traust og vin­áttu, þar sem öll mál voru uppi á borðum og rædd.

Sjá einnig: „Platan er í raun og veru bara dag­bókin mín en allir geta fundið sig í lög­unum“

Svala prýðir for­síðu Mannlífs. Mynd / Unnur Magna

Lestu við­talið við Svölu í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi