Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll Óskar vill elskhugann aftur

Páll Óskar vill elskhugann aftur

Páll Óskar hefur sent frá sér nýtt lag, Djöfull er það gott, það fyrsta sem hann sendir frá sér í þrjú ár. Óhætt er að segja að ferskur tónn sé í lag­inu sem er nokkuð frá­brugðið fyrri tón­list söngv­ar­ans. Sjálfur segir hann að það hafi algjör­lega verið kom­inn tími á nýjan hljóm.

„Þetta er svona platónskt en ljúft „sexy break up“-lag, sem fjallar um sam­bands­slit og gengur út á það að ég er að reyna að ná elsku­hug­anum til baka“ segir Páll Óskar. „Það fjallar um höfnun, sem er auð­vitað til­finn­ing sem margir hafa upp­lifað og tengja við, en fyrir mig per­sónu­lega fer þetta lag með mig á sama stað og lögin Love to love you baby, með Donnu Summer, og Any time, Any place með Janet Jackson. Þetta eru lög sem eiga það sam­eig­in­legt að kyn­lífið lekur af þeim.“

Djöfull er það gott, er fyrsta lagið sem Páll Óskar sendir frá sér í þrjú ár. Það er sexí, ansi fönkað og með mikla sál og þykir vera tölu­vert frá­brugðið þeirra tón­list sem hann hefur áður sent frá sér. „Það var kom­inn tími á nýtt sound,“ segir hann hrein­skil­inn og bætir við að hann hafi prófað tólf mis­mun­andi útgáfur af lag­inu, tólf texta og tólf við­lög, þannig að lagið hafi verið tals­vert lengi í vinnslu. „En þetta er útkoman,“ segir hann hreyk­inn, „og ég gæti ekki verið ánægð­ari.“

„Þegar svona ástand skellur á eru við­brögðin í þínum höndum.“

Það eru tón­list­ar­menn­irnir og bernsku­vin­irnir Sveinn Marteinn Jónsson og Egill Örn Rafnsson, trommari Dimmu, sem koma að gerð lags­ins ásamt Páli Óskari. „Þeir buðu mér í heim­sókn og leyfðu mér að heyra nokkur demo og ég stökk á þetta strax og byrj­aði að skrifa texta,“ segir hann.

Læsti sig inni í hljóðveri

Líkt og aðrir fór Páll Óskar ekki var­hluta af áhrifum COVID-10 far­ald­urs­ins, en hann seg­ist hafa notað tím­ann vel í sam­komu­banni; hann hafi ein­fald­lega læst sig inni í hljóð­veri og samið mikið. „Þegar svona ástand skellur á eru við­brögðin í þínum höndum,“ bendir hann á. „Þú ræður hvort þú breytir þessu í gott eða eitt­hvað hræði­legt og mig lang­aði að skapa eitt­hvað fal­legt úr þessu.“

Spurður hvort von sé á nýrri plötu seg­ist hann ekki reikna með því þar sem hann sé að vinna með svo ólíku tón­list­ar­fólki. „Ég held það sé skyn­sam­legra að gefa bara út eitt lag í einu og gefa kannski út ein­hvers konar safn­plötu, jafn­vel á föstu formi. Það væri gaman að eiga þessi nýju lög á vínyl.“

En ætlar að hann gera meiri tón­list af þessu tagi. „Já, alveg klár­lega,“ svarar hann. „Mér finnst þetta hrika­lega skemmti­legt og held að ég hafi bara svo­lítið gott af því. Þetta er skref í rétta átt fyrir mig.“

Laus og liðugur í sumar

Hvað er ann­ars fram undan? „Í fyrsta sinn í mörg ár er ég að horfa á tóma dag­bók yfir sum­arið. Öllum bæj­ar­há­tíðum sem ég átti að spila á í sumar hefur verið frestað eða þeim frestað fram til næsta árs. En aftur á móti þá er sept­em­ber fram til des­em­ber pakk­bók­aðir mán­uðir nú þegar vegna þess að allt sem ég átti að gera í mars og apríl var fært yfir til sept­em­ber og októ­ber. En eftir situr júní, júlí og ágúst eins og óskrifað blað. Þannig að nú vona ég bara að sím­inn hringi,“ segir hann og kímir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu