Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristjón Kormákur kveður heim fjölmiðla: „Tilfinningin að vera frjáls verður ekki lýst í orðum“

Kristjón Kormákur kveður heim fjölmiðla: „Tilfinningin að vera frjáls verður ekki lýst í orðum“
Kristjón Kormákur Guð­jóns­son. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson.

Kristjón Kormákur Guð­jóns­son hefur sagt skilið við heim fjöl­miðla. Kristjón, sem hefur verið í veik­inda­leyfi í tæpa tvo mán­uði, greinir frá því færslu á Facebook að honum hafi verið sagt upp störfum sem rit­stjóri fretta­bla­did.is.

„Ég átti að snúa aftur til starfa um miðjan júlí en af því verður ekki. Staða mín hefur verið lögð niður,“ skrifar Kristjón Kormákur á Facebook. „Mun ég ekki snúa aftur á Frétta­blaðið eftir að mér var sagt upp störfum í síð­ustu viku. Mér var tjáð að mitt starf hefði verið lagt niður og ráð­inn verður sér­fræð­ingur í sam­skipta­miðlum. Jón Þórisson ber nú ábyrgð á bæði neti og blaði sem aðal­rit­stjóri.“

Kristjón tók við starfi rit­stjóra fretta­bla­did.is í febr­úar síð­ast­liðnum eftir skipu­lags­breyt­ingar og rit­stýrði bæði vef Frétta­blaðs­ins og Hring­brautar. Hann tók við starfi rit­stjóra vefs Hring­brautar í apríl á síð­asta ári eftir að starfað sem aðal­rit­stjóri DV í rúmt ár og hóf störf á Frétta­blað­inu í nóv­em­ber í fyrra. Í fyrr­nefndri færslu seg­ist hann fyrir hálf­gerða til­viljun hafa villst inn í þennan bransa og orðið ást­fang­inn af fag­inu á fyrsta degi. Þetta sé í fyrsta sinn frá árinu 2012 sem hann er atvinnu­laus í fag­inu.

„Eftir því sem árin liðu, til að takast á við álagið, slökkva á hausnum á mér, drakk ég og slíkur flótti eykur aðeins á van­líðan.“

„Ég hef notið þeirra gæfu að fá tæki­færi til að stýra fjórum fjöl­miðlum á átta árum. Það sem stendur upp úr er fólkið sem ég hef kynnst. Ég hef notið þess að kenna fólki og sjá það blómstra í starfi.“

Ræðir opinskátt veikindaleyfið

Þá ræðir Kristjón á opin­skáan hátt ástæður þess að hann þurfti að fara í veik­inda­leyfi. „Eins og margir vita sem þekkja mig á ég það til að keyra mig út í vinnu. Í raun má segja að ég hafi gert það frá árinu 2012, unnið frá morgni til kvölds. Það flýtti fyrir frama mínum en bitn­aði á þeim sem standa mér næst og á heilsu minni. Eftir því sem árin liðu, til að takast á við álagið, slökkva á hausnum á mér, drakk ég og slíkur flótti eykur aðeins á van­líðan.“

Hann við­ur­kennir að eftir á að hyggja hefði hann átt að fara í veik­inda­leyfi á síð­asta ári. „Ég lét loks verða að því fyrir um tveimur mán­uðum. Lækn­ir­inn minn skip­aði mér í frí. Sagði ég væri í kulnun. Ég væri að skemma nýrna­hettur með stöðugri adrena­lín-fram­leiðslu og við þessar aðstæður fer lík­am­inn að ganga á sjálfan sig, heil­inn skreppur t.d. saman. Ég varð að taka hvíld áður en afleið­ing­arnar yrðu óaft­ur­kræfar. Þetta var orðið spurn­ing um að glíma við heilsu­brest það sem eftir væri af þessu lífi.“

Hætti að drekka og hefur aldrei liðið betur

Tímann und­an­d­arið seg­ist Kristjón hafa notað til að rækta sam­band við börnin sín og fjöl­skyldu. „Ég ákvað að leggja áfengi alfarið á hill­una á meðan þessu bata­ferli stæði, hugsa um sjálfan mig, leita inná við, fara í slökun og íhugun, vera í nátt­úr­unni, ganga á fjöll og ferð­ast um landið. Læra að fljúga!“ Staðan í dag sé sú að hann hafi ekki verið í eins góðu formi frá því hann hóf störf í fjöl­miðlum. „Mér hefur aldrei liðið betur. Ég er samt ekki kom­inn á áfanga­stað. Ég ætla að styrkja mig og efla enn frekar enda veik­inda­fríi ekki lokið.“

„Mér hefur aldrei liðið betur. Ég er samt ekki kom­inn á áfanga­stað.“

Hann kveður að eigin sögn Fétta­blaðið kátur og bjart­sýnn. Það eina sem honum finn­ist erfitt við brott­hvarf af þeim miðli er að hafa ekki tek­ist eins og hann hefði viljað að miðla af reynslu sinni til þeirra ungu en frá­bæru blaða­manna sem starfa á miðl­inum og eiga eftir að láta mikið á sér kveða í brans­anum. Fyrir því sé ýmsar ástæður sem hann geti ekki á þessum tíma­punkti rakið nánir og ætli ekki kryfja að sinni. Það geri hann síðar, við betra tæki­færi.

Margt spennandi í pípunum

Í haust stefnir hann á bóka­skrif með syni mínum. „Mér standa ótal dyr opnar. Það er margt spenn­andi í píp­unum og enda­lausir mögu­leikar handan við hornið. Hvar ég sting niður fæti næst kemur í ljós síðar. Lífið er fal­legt. Til­finn­ingin að vera frjáls verður ekki lýst í orðum,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi