Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þingið þorði ekki í þetta sinn“

Frum­varp Pírata um af­nám refs­inga fyr­ir vörslu neyslu­skammta fíkni­efna var fellt á Alþingi aðfara­nótt þriðju­dags þegar 18 þing­menn greiddu mál­inu atkvæði en 28 greiddu atkvæði gegn því. Níu þing­menn greiddu ekki atkvæði og átta þing­menn voru fjar­ver­andi. Málið hefur vakið athygli og skapað mikla umræðu.

„Þau við­brögð sem ég hef fengið eru jákvæð, þ.e.a.s. ég hef fengið mikið af þökkum og hvatn­ingu,“ segir Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, í sam­tali við Mannlíf þegar hún er spurð út í þau við­brögð fólks við nið­ur­stöð­unni sem hún hefur orðið vör við. „Ég finn fyrir stuðn­ingi og kær­leika. Það er ynd­is­legt og hvetur mann áfram að sjá að þetta skiptir fólk miklu máli.“

Hjakkað í sama farinu í áratugi

Halldóra seg­ist telja að margt fólk van­meti hversu stórt og mik­il­vægt skref það yrði að afglæpa­væða neyslu­skammta. „Umræðan er oft byggð á mis­skiln­ingi á því hvað fíkn er. Þetta er ekki þannig að þegar fólk prófar vímu­efni þá breyt­ist það sjálf­krafa í fíkla. Fíkn snýst um til­finn­inga­legt ástand þar sem fólk er á flótta, oft vegna áfalla. Og þegar verið er að refsa fólki með fíkni­sjúk­dóma fyrir að nota vímu­efni, þá hefur það ekki þau áhrif að fólk hætti að nota. Það er verið að jað­ar­setja ein­stak­ling­ana meira í stað þess að aðstoða þá við að ná bata. Þegar maður áttar sig á þess­ari grund­vall­ar­hug­mynd um hvað fíkn er þá sér maður að refsi­stefnan er galin,“ útskýrir Halldóra.

Halldóra telur að nú sé búið að hjakka í sama far­inu of lengi og nú sé kom­inn tími á breyt­ingar. Hún segir refsi­stefn­una ein­ungis hafa dýpkað vanda fólks með fíkni­sjúk­dóma.

„Fíkni­efna­stríðið er ekk­ert annað en stríð gegn fólki.“

„Fíkni­efna­stríðið er ekk­ert annað en stríð gegn fólki. Árang­ur­inn er nákvæm­lega eng­inn. Þegar við erum búin að reyna eitt­hvað í 40 plús ár án þess að ná árangri þá hlýtur að vera kom­inn tími til að prófa eitt­hvað nýtt.“

Hún segir að málið snú­ast að miklu leyti um að byggja upp traust á milli fólks með fíkni­sjúk­dóma og lög­reglu. „Við viljum t.d. geta treyst því að fólk geti haft sam­band við lög­reglu ef það þarf aðstoð. Fíklar geta ekki gert það eins og staðan er núna.“

Ekkert heyrt um vinnu heilbrigðisráðherra fyrr er núna

Margir þeirra þing­manna sem greiddu atkvæði gegn mál­inu sögðu að þeir væri efn­is­lega sam­mála inni­haldi frum­varps­ins en að móta þyrfti umgjörð­ina betur.

„Við vorum alveg til í að fara væg­ari leið,“ segir Halldóra og vísar til þess að Píratar lögðu til að breyta frum­varp­inu í þings­á­lyktun og fela heil­brigð­is­ráð­herra að leggja fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu á vörslu neyslu­skammta vímu­efna næsta haust. Hún segir Pírata hafa viljað fá trygg­ingu fyrir að eitt­hvað yrði gert í mál­inu. „Það var ekki áhugi fyrir því. Þetta var eina leiðin,“ segir hún.

„Annars er núna að koma fram sögu­þráður frá meiri­hlut­anum þar sem Píratar eru mál­aðir upp líkt og okkar fókus hafi verið að neyða þau til að taka afstöðu til máls­ins ein­ungis til að láta þau líta illa út þegar raunin er sú að við fórum ein­fald­lega fram á að frum­varp­inu yrði ekki vísað til ráð­herra án full­vissu um að sú leið myndi skila frum­varpi um afglæpa­væð­ingu til þings­ins,“ segir Halldóra og vísar meðal ann­ars í pistil Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé, þing­manns Vinstri grænna. Í pistil sinn skrifar hann m.a.: „Það sér­kenni­lega hér var þó aðPíratar heimt­uðu að þing­menn ann­arra flokka afsöl­uðu sér rétti sínum til að greiða atkvæði í þing­sal eftir sam­visku sinni. Þannig vorum við ansi mörg sem töldum frum­varpið ekki tækt til afgreiðslu en studdum hug­mynd­ina að baki því.“

Hann skrifar einnig um vinnu heil­brigð­is­ráð­herra að afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta, hann segir ráð­herra ætla að leggja málið fram á næsta þingi.

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri af þess­ari vinnu.“

„Allt í einu er ég farin að heyra og sjá í pistlum frá meiri­hluta­þing­mönnum að það sé eitt­hvað frum­varp í vinnslu hjá heil­brigð­is­ráð­herra. Að það sé ein­hver vinna í gangi. Ég vona inni­lega að það sé rétt og við Píratar myndum styðja það heils­hugar ef svo væri. En þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri af þess­ari vinnu.“

Jákvætt að sjá umræðu eiga sér stað

Halldóra segir kost­ina vera þá að málið hefur vakið margt fólk til umhugs­unar. „Það er fal­legt að sjá hvað almenn­ingur er orð­inn með­vit­aður um þennan mála­flokk og hvað það er skýrt að íslenskt sam­fé­lag er til­búið til að velja mann­úð­lega stefnu sem virkar. Þingið þorði ekki í þetta sinn en ég finn að almenn­ingur er búinn að hafna refsi­stefn­unni og það er mik­il­væg­asta skrefið í átt að enda­lokum hennar,“ segir Halldóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi