Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einn stærsti hjólreiðaviðburður sumarsins verður á Laugarvatni

Einn stærsti hjólreiðaviðburður sumarsins verður á Laugarvatni

KIA Gull­hring­ur­inn ein umfangs­mesta og vin­sælasta hjól­reiða­keppni lands­ins. verður haldin á Laug­ar­vatni á laug­ar­dag­inn. Keppnin er haldin ár hvert og hjólað um margar þekkt­ustu nátt­úruperlur Íslands um leið og hjólað er um þekkt­ustu sögu­slóðir þjóð­ar­innar, Skálholt, Bræðra­tungu og Þing­velli.

Mynd / Aðsend

Mottó KIA Gull­hrings­ins er „Allir hjóla, allir vinna og allir vel­komnir“ og er hægt að velja sér vega­lengd eftir getu hvers og eins úr þremur mis­mun­andi keppn­is­stigum. Í ár er svo boðið upp á raf­magns­hjóla­flokk í fyrsta sinn og er það í fyrsta sinn í hjól­reiða­keppni á Íslandi sem það er í boði. Þá er keppnin hluti af móta­röð­inni Víkingar ásamt keppn­unum Hengil Ultra, Landsnet MTP og Eld­s­lóð­inni.

Mynd / Aðsend

Umferð um uppsveitirnar í sögulegu lágmarki um helgina

„Allt þekktasta hjól­reiða­fólk lands­ins hefur hjólað KIA Gull­hring­inn og það sem skemmti­legra er að nýliðar í sport­inu hafa notað KIA Gull­hring­inn sem fyrstu keppn­ina sína og þannig form­lega inn­komu sína í sportið. Það sem gerir keppn­ina í ár frá­brugðna keppnum síð­ustu ára er að umferð í upp­sveitum Árnes­sýslu verður vænt­an­lega í sögu­legu lág­marki á laug­ar­dags­kvöld, en keppnin er ræst milli 17:00 og 18:00 frá Laug­ar­vatni. Stórar rútur og ferða­þjón­ustu tengd umferð verður lík­lega engin og tíma­bundnar lok­anir gera braut­ina örugg­ari en nokkru sinni fyrr,“ segir Einar Bárð­ar­son skipu­leggj­andi keppn­innar.

Mynd / Aðsend

Gestir hvattir til að njóta Laugarvatns og Bláskógarbyggðar

Þá hafa skipu­leggendur keppn­innar hvatt kepp­endur að koma með fjöl­skyldu sína og nýta sér ferða­gjöf stjórn­valda til að gista og njóta fjöl­breyttrar afþrey­ingar sem er í boði í upp­sveit­unum og öllum þeim frá­bæru veit­inga­stöðum sem þar er að finna. Fyrir utan lands­þekkt nátt­úru­undur eru veit­inga­staðir á borð við Lindina, Frið­heima og Efstadal. Fontana boðin sem hafa sjaldan verið vin­sælli, stand­bretti og fjalla­hjóla­braut á Laug­ar­vatni, svo fátt eitt sé nefnt.

Mynd / Aðsend

Hámarksfjöldi keppenda vegna Covid 19

Skráðir kepp­endur eru um 340 tals­ins en gert er ráð fyrir að sú tala fari vel yfir 400 þegar nær dregur helg­inni en ekki verða fleiri skráðir til keppni en 475. Keppn­inni er svo skipt upp í fimm ræs­ingar flokka og farið að leið­bein­ingum almanna­varna. Þannig er mið­punktur keppn­innar í ár ekki niður við vatnið og Fontana böðin heldur uppi við Mennta­skól­ann á Laug­ar­vatni sem gerir það mun auð­veld­ara að fara að fyrr­nefndum reglum.

Mynd / Aðsend

Dagskráin byrjar á tónleikum leynigesta

Skrif­stofa keppn­inar opnar klukkan 12:00 á hádegi á laug­ar­dag á Laug­ar­vatni en keppn­is­hald hefst svo klukkan 16:00 með tón­leikum þar sem sjóð­heitir leynig­estir stíga á svið og koma kepp­endum í keppn­is­gír­inn.

Mynd / Aðsend

Pottar og pönnur barðar við þjóðveginn

Sú hefð hefur skap­ast að sum­ar­bú­staða­eig­endur og íbúar upp­sveit­anna hafa safn­ast saman við sín gatna­mót við Laug­ar­vatns­veg og Bisk­ups­tungna­braut þar sem keppnin fer um og barið þar potta og pönnur til hvatn­ingar kepp­end­unum. En skipu­lagðar hvatn­ing­ar­stöðvar verða við gatna­mót Bisk­ups­tungna­brautar og Mikla­holts upp undir Reyk­holti í Bisk­ups­tungum, Á mal­bik­aða útsýnis­plan­inu við Brúará og svo á horni Bisk­ups­tungna­brautar (34) og Laug­ar­vatns­vegar (37).

Mynd / Aðsend

Gott samstarf við Vegagerðina og verktaka

Ein­hverjar vega­fram­kvæmdir eru á þeim spotta sem telja um 3 km af braut­inni en góð sam­skipti og sam­ráð hafa verið höfð við Vega­gerð­ina og verk­taka þeirra og verður leiðin gerð keppn­is­fær fyrir helg­ina og fyllsta öryggis gætt. Örygg­is­stjóri keppn­innar KIA Gull­hrings­ins er Ólafur Kr. Guð­munds­son sér­fræð­ingur í umferð­ar­ör­yggi á Íslandi, fyrrum tækni­stjóri EuroRAP á Íslandi og alþjó­legur FIA dóm­ari í for­múlu.

Dagskrá verður sem hér segir:
13:00 Skrif­stofa mót­stjórnar opnar í ML. Afhend­ing gagna og sala á síð­ustu skrán­ingum sem og fjöl­skyldu­miðum í grillið
16:00 Góða ferð tón­leik­arnir
17:00 Braut­ar­fundur. Allir kepp­endur mæta
17:30 Ræsingar hefj­ast
18:00 Allir flokkar verða komnir af stað
20:00 Grillið ræst við ML
21:00 Verðlaun og úrdrátt­ar­verð­laun
22:30 Formleg mót­slit

Öllum kepp­endum er boðið í Fontana eftir keppni, ávís­unin gildir svo út sum­arið ef hún nýt­ist ekki á móts­dag. Öllum kepp­endum er boðið að nýta sund­laug­ina ef það fyllist í Fontana eins og við höfum haft það í gegnum árin. Öllum kepp­endum er boðið í grill og drykk á eftir og fjöl­skyldu­með­limir geta keypt fjöl­skyldu miða á 1.000 kr. á meðan birgðir end­ast.

Mynd / Aðsend
Mynd / Aðsend
Mynd / Aðsend
Mynd / Aðsend
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi