Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

15 ára sonur Guðmundu verður fyrir hrottalegu ofbeldi – „Ég verð að bjarga syni mínum frá þessu“

15 ára sonur Guðmundu verður fyrir hrottalegu ofbeldi – „Ég verð að bjarga syni mínum frá þessu“

„Þá var hann kall­aður nas­isti, og honum var sagt að hann yrði sendur heim í lík­kistu í sitt ógeðs­lega móð­ur­land,“ segir Guðmunda Þor­steins­dóttir í sam­tali við Mannlíf. Í færslu sem Guðmunda birti á Facebook í dag má sjá skjá­skot sem sonur hennar hefur fengið send og mynd­band af lík­ams­árás gegn honum sem tekið var upp á síð­asta ári. Lík­ams­árásin átti sér stað við kirkj­una í Grinda­vík.

Sonur hennar sem var að klára níunda bekk núna í vor, hefur ítrekað orðið fyrir ein­elti af hálfu bekkj­ar­systk­ina sinna, og jafn­vel ung­linga ann­ars staðar frá, og hefur ein­eltið stig­magn­ast í lík­am­legt ofbeldi. Að sögn Guðmundu byrj­aði ein­eltið strax við flutn­ing þeirra heim.  Guðmunda er fædd og upp­alin í Grinda­vík. Eftir 16 ára búsetu í Þýska­landi flutti hún aftur í heimabæ sinn árið 2016, með börn hennar sem fædd eru í Þýska­landi og eiga þýskan föður.

„Ég verð að bjarga syni mínum frá þessu,“ segir Guðmunda í sam­tali við Mannlíf. Fjöl­skyldan er að flytja úr Grinda­vík, og þó að ein­eltið í garð sonar hennar sé ekki eina ástæða flutn­ing­anna, þá á það stóran þátt í þeim. „Ég er sveita­mann­eskja og hef alltaf búið í sveit, ég var ein af þeim sem missti vinn­una núna í Bláa lón­inu og við ætlum að flytja og búa okkur betra líf.“

„Sonur minn er félags­lyndur og á góða vini í Grinda­vík, sem hafa staðið með honum alla tíð. En það er annar hópur ung­linga sem hefur lagt hann í ein­elti frá því að við fluttum heim.“

Skilaboð sem son­ur­inn hefur fengið send.

Guðmunda segir að í öll skipti hafi hún rætt við for­eldra við­kom­andi barna, talað hafi verið við skóla­stjóra grunn­skól­ans í ein­hverjum til­vikum, barna­vernd bæj­ar­ins og bar­smíðar verið kærðar til lög­reglu.

„Sonur minn fór að koma heim úr skól­anum einn og einn dag með blóð­nasir og gerði lítið úr þessu alltaf. Síðan var hann bar­inn af fjórum drengjum inni í skól­anum, sem byrj­aði á því að það var verið að henda mat í hann og aðra krakka. Kennari og skóla­stjóri voru í mat­salnum, en sögð­ust ekki hafa orðið varir við neitt. Eftir þessar bar­smíðar þá kom hann nef­brot­inn heim með mar­bletti út um allt, fékk heila­hrist­ing og var lengi veikur, og í langan tíma á eftir var hann að fá blóð­nasir bara upp úr þurru,“ segir Guðmunda. Að hennar sögn eru fjórar örygg­is­mynda­vélar í and­dyr­inu, en engin þeirra virk­aði í það skipti eftir því sem skóla­stjór­inn sagði.

„Þá var þetta orðið það alvar­legt að ég segi nú er þetta komið gott,“ segir Guðmunda. „Við kærðum til lög­regl­unnar og það er ekk­ert búið að ger­ast í mál­inu, það er ekki búið að tala við dreng­ina, eða for­eldra þeirra. Þegar ég kanna feril máls­ins hjá lög­regl­unni þá eru alltaf ein­hverjar afsak­anir: „það eru jarð­skjálfar,“ „það er covid,“ og svo fram­vegis. Við erum með lög­fræð­ing í mál­inu líka, sem hefur heldur ekki náð í eða fengið svör frá lög­regl­unni yfir þessum seina­gangi.“

Guðmunda segir að sonur hennar hafi oft gert lítið úr ein­elt­inu og bar­smíð­unum. „Til að ekki yrðu fleiri bar­smíðar. Hann er búinn að blokka þessa drengi á sam­fé­lags­miðlum, en það stoppar þá ekki í að fá síma hjá öðrum og senda honum skila­boð þar, með myndum af sér, hót­unum og „fokk-merkjum“.

Það er þó ekki bara sonur Guðmundu sem hefur orðið fyrir aðkasti af hálfu hóps­ins. „Í eitt skipti kom 20 ung­linga hópur hér í garð­inn hjá okkur, og þar sem að þeir hittu ekki á son minn þá réð­ust þeir bara á þann næsta, vin hans úr Reykja­vík, sem var hér. Bróðir minn varð vitni að árásinni á hann og gekk hér á milli þeirra.“

Í annað skipti var vitni að því að hóp­ur­inn braust inn á heim­ili þeirra, með því að fara í gegnum glugga á heim­il­inu. Gerði hóp­ur­inn sig síðan heima­kom­inn í her­bergi sonar Guðmundu.

„Börnin okkar verða ekk­ert meira í þessu,“ eru svörin sem ég fæ frá for­eldrum ung­ling­anna þegar ég tala við þá,“ segir Guðmunda. „Það breyt­ist samt ekki neitt. Ofbeldið versnar bara ef eitt­hvað er.“

Sjálf segir hún að henni hafi liðið vel í Grinda­vík og verið með góða vinnu. „En börn­unum mínum leið ekki vel þar, en syni mínum finnst erfitt að vera að flytja frá vinum sínum.“

Færslu Guðmundu má sjá hér fyrir neðan, við vörum við mynd­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi