Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýtt spil um íslensk stjórnmál: „Fyrir fólk sem þolir ekki spillingu nema það fái að spila með“

Nýtt spil um íslensk stjórnmál: „Fyrir fólk sem þolir ekki spillingu nema það fái að spila með“

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, hefur hannað nýtt partý­spil sem kemur á markað fyrir næstu jól. Spilið, sem kall­ast Þingspilið, hendir gaman að íslenskum stjórn­málum og er unnið í sam­vinnu við engan annan en Halldór Bald­urs­son teikn­ara, sem hefur slegið ræki­lega í gegn með skop­myndum sínum.

Jón Þór Ólafsson og Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna. Á mynd­inni sést Katrín með sitt spil.

„Ég er búinn að prufu­keyra þetta víða, fyrst með krökk­unum mínum, svo þing­flokknum, stjórn­málanör­dum, spilanör­dum og fólki sem ekki til­heyrir þeim hópum og fólk­inu í mal­bik­inu og allir skemmta sér kon­ung­lega,“ segir þing­mað­ur­inn Jón Þór Ólafsson, sem hefur hannað nýtt partý­spil, Þingspilið, sem hann ætlar að setja á markað fyrir næstu jól.

Að sögn Jóns Þórs er um að ræða partý­spil þar leik­menn stjórna for­mönnum flokka á þingi sem kepp­ast við að koma sem flestum þing­mönnum í eigin vasa. „Hver spil­ari dregur sinn for­mann úr for­manna­bunk­anum, svo dregur hann tvö spil á hendi í byrjun umferðar og er eitt mál­efni lagt á borðið. Svo byrja póli­tísku átökin og spill­ingin. Mark­miðið er að klára sem flestar umferðir með sem flesta þing­menn,“ útskýrir hann léttur í bragði, en slag­orð spils­ins er: „Fyrir fólk sem þolir ekki spill­ingu nema það fái að spila með“ .

„Ég er búinn að prufu­keyra þetta víða og allir skemmta sér kon­ung­lega.“

Spurður hvernig hug­myndin hafi kviknað seg­ist Jón Þór lengi hafa gengið með þá hug­mynd í mag­anum að hanna ein­hvers konar stjórn­mála­spil. „Hug­myndin kvikn­aði í hita­kófi í des­em­ber á þar­síð­asta ári. Mig hafði lengi langað til að gera spil sem fangar raun­veru­leik­ann á þingi og stuttu áður rakst ég á Gísla í Nexus sem sagði mér að svokölluð partý­spil væru mjög vin­sæl þar sem fólk kæm­ist yfir­leitt fljótt upp á lagið með að spila þau, þau væru fljót­spiluð og það skemmti­leg að fólk vill spila þau aftur og aftur. Þingspilið er hugsað þannig og kost­irnir eru þeir að maður dettur ekki út og getur hætt eða byrjað að spila hvenær sem er.“

Jón Þór bætir við að hönnun spils­ins hafi verið unnin um þar­síð­ustu jól, en spilin eru skreytt með myndum eftir sjálfan Halldór Bald­urs­son teikn­ara. „Skop­mynd­irnar hans Halldórs vekja alltaf kátínu. Enda end­ur­spegla þær svo vel stjórn­málin; hegðun stjórn­mála­manna, smjör­klíp­urnar, inn­an­flokksá­tökin, hneyksl­is­málin og fleira. Halldór gaf grænt ljós á að mynd­irnar hans yrðu not­aðar í spil­inu og eftir það skrif­aði spilið sig eig­in­lega sjálft. Ég þurfti bara að fara í gegnum mynd­irnar hans og finna þeim við­eig­andi stað,“ segir Jón Þór.

Þingspilið er vænt­an­legt í vetur.

En hvernig hafa for­menn flokk­an­ana eig­in­lega tekið upp­á­tæk­inu? „Ég kynnti hug­mynd­ina fyrir þeim í jan­úar fyrir ári,“ svarar hann. „Síðan hitti ég þá alla og leyfði þeim að draga sín spil. Þeim var nú bara skemmt. Einn horfði vel og lengi á mig eftir að hafa dregið sitt spil og sagði: Þú ert nú ekki alslæmur,“ segir Jón Þór og hlær. „Annar var mjög ánægður með sitt spil eftir að hafa fengið að sjá hvaða stjórn­mála kænsku hinir for­menn­irnir hafa skrifuð á spilin sín og einn vildi fá „sel­fie“ með mér og spil­inu sínu. Það tóku þessu allir bara mjög vel og höfðu gaman af.“

Jón Þór seg­ist nú stefna á að setja spilið á markað í vetur. „Í allra síð­asta lagi í des­em­ber svo það rati nú í jóla­pakk­ana,“ segir hann sposkur og tekur fram að spilið fari í hóp­fjár­mögnun hjá Karolina Fund bráð­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi