Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sema Erla óánægð með aganefnd KSÍ: „Rasismi drepur. Það veit KSÍ“

Sema Erla Serdar stjórn­mála- og Evr­ópu­fræð­ingur og bar­áttu­kona fyrir mann­rétt­indum greinir frá því í færslu á Facebook að hún sé afar óástt við úrskurð aga­nefndar KSÍ í máli Atla Steinars Inga­sonar, leik­manns Skalla­gríms í knatt­spyrnu.

Atli Steinar var nýlega dæmdur í fimm leikja keppn­is­bann fyrir að hafa við­haft rasísk ummæli um leik­mann Berserka í leik á móti Skalla­grím, og banni frá Skalla­grím­svelli í Borg­ar­nesi á meðan bannið varir. Þá var knatt­spyrnu­deild Skalla­gríms einnig dæmd til að greiða 100.000 kr. í sekt til KSÍ.

Þetta er í annað sinn sem aga­nefnd KSÍ úrskurðar Atla Steinar í keppn­is­bann fyrir rasísk ummæli. Sema Erla segir að aga­nefndin hafi haft tæki­færi til að setja sterkt for­dæmi fyrir slík mál fram­vegis.

Niðurstaða aganefndar vonbrigði

Sema Erla telur upp nokkrar ástæður þess að nið­ur­staða nefnd­ar­innar sé von­brigði:

„Í fyrsta lagi, þá er um minnstu mögu­legu refs­ingu að ræða sam­kvæmt reglu­gerð KSÍ um aga- og úrskurð­ar­mál (grein 16.1) fyrir mis­munun. Leikmenn sem ger­ast einu sinni sekir um ras­isma eru yfir­leitt dæmdir í slíkt bann. Atli Steinar hefur hins vegar áður verið dæmdur fyrir ras­isma á vell­inum af aga­nefnd KSÍ. Árið 2015 var hann sem áhorf­andi dæmdur í tveggja ára vall­ar­bann fyrir ras­isma í garð dóm­ara (grein 16.5). Það virð­ist ekki hafa verið tekið til­lit til þess í nið­ur­stöðu aga­nefnd­ar­innar nú (það er hvergi minnst á fyrri dóm í úrskurð­inum) sem er með öllu óskilj­an­legt og í raun alveg frá­leitt. Ítrekuð brot hljóta að þýða þyngri refs­ing,“ segir Sema Erla og segir að eftir því sem hún best veit sé leik­maður hér á landi í fyrsta skipti fá sitt annað bann fyrir ras­isma.

„Því hefði verið hægt að setja mik­il­vægt for­dæmi hér og senda skýr skila­boð um að ras­ismi er lit­inn alvar­legum augum innan fót­bolt­ans og KSÍ. Það var ekki gert. Frekar var gert lítið úr vand­anum sem aug­ljós­lega er til staðar og bar­átt­unni gegn ras­isma í leiknum og í sam­fé­lag­inu öllu.“

Sema Erla segir í öðru lagi að Atli Steinar hafi nokkrum dögum eftir leik­inn gefið frá sér yfir­lýs­ingu, „þar sem hann baðst afsök­unar „á óvið­eig­andi ummælum“ sem þó áttu „alls ekki að vera rasísk að neinu leyti.“ Ummælin skrifar hann á keppn­is­skap sitt og hita leiks­ins sem eru elstu og útþynnt­ustu afsak­an­irnar fyrir ras­isma. Atli Steinar „við­ur­kennir síðan mis­tök sín (sem er ekki skýrt hver eru þar sem þau eru ekki ras­ismi sam­kvæmt honum) og ætlar að bæta ráð sitt.“

Telur Sema Erla að aga­nefnd KSÍ hefði átt að vera ljóst eftir yfir­lýs­ingu Atla Steinars að hann gang­ist ekki „við rasískri hegðun sinni með nokkrum hætti, hann biðst ekki afsök­unar á ras­isma sínum og sér ekki að sér. Atli Steinar sér ras­isma sinn ekki sem vanda­mál. Hann telur sig ekki vera ras­ista þrátt fyrir að hafa núna verið dæmdur tvisvar í bann fyrir ras­isma og eiga nokkrar slíkar twitter færslur,“ segir Sema Erla og telur það mjög alvar­legt því „fyrsta skrefið í því að breyta hug­ar­fari og hegðun sinni og fá aðstoð með það er að við­ur­kenna vand­ann og horfast í augu við hann. Það virð­ist Atli ekki vera til­bú­inn til þess að gera og KSÍ hefði að sjálf­sögðu átt að líta til þess í úrskurði sínum.“

Telur niðurstöðu aganefndar geri lítið úr vandanum

Sema Erla segir að lokum að nið­ur­staða aga­nefnd­ar­innar séu mikil von­brigði því hún geri lítið úr vand­anum sem ras­ismi í fót­bolta er og dregur úr bar­áttu þeirra sem vilja losa íþrótt­ina við slíkt sam­fé­lags­mein.

„Ég elska fót­bolta. Fótbolti er frá­bær íþrótt sem getur sam­einað fólk, hópa og þjóðir. Fótbolti getur verið sam­ein­ing­ar­tákn, hann getur verið for­vörn gegn áhættu­hegðun og búið til fyr­ir­myndir og leið­toga. Fótbolti getur líka verið vett­vangur ofbeldis eins og ras­isma og ann­arra öfga.“

Segir hún knatt­spyrnu­sam­bandið þurfa að taka skýra afstöðu gegn hinu síð­ast­nefnda og það verði ekki gert með því að horfa fram­hjá eða hunsa vand­ann.

„Það er gert með zero tolerance gegn ras­isma og öðru ofbeldi þó það geti þýtt erf­iðar og óþægi­legar ákvarð­anir. Þar má KSÍ fara að bæta sig. Rasismi er ofbeldi. Rasimi er hættu­legur. Rasismi drepur. Það veit KSÍ.“

Ánægð með afstöðu Skallagríms

Sema Erla er hins vegar ánægð með afstöðu og fram­gang knatt­spyrnu­deildar Skalla­gríms í mál­inu, sem greindi frá því að Atli Steinar myndi ekki leika meira með lið­inu þetta tíma­bil.

„Það er jákvætt því ein­stak­lingar með rasískt hug­ar­far eiga ekk­ert erindi á íþrótta­völl­inn. Það er ekk­ert per­sónu­legt. Það snýst um gildi og við­mið sam­fé­lags­ins. Rasismi er lærð hegðun og ras­isma er hægt að aflæra,“ segir Sema Erla, sem skorar á Skalla­grím að aðstoða Atla Steinar með við­eig­andi fræðslu, upp­lýs­ingum og með­ferð­ar­þjón­ustu, „sem hann þarf á að halda til þess að kom­ast yfir ras­isma sinn, það er að segja ef hann vill. Það er sorg­legt að sjá ungan mann búa yfir svo miklum rang­hug­myndum, for­dómum og hatri eins og hann hefur nú ítrekað sýnt af sér. Megi honum farn­ast sem allra best.

Baráttan fyrir fót­bolta án ras­isma heldur áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi