Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir skrif efnahagsráðgjafa VR vekja furðu: „Stenst enga skoðun“

Segir skrif efnahagsráðgjafa VR vekja furðu: „Stenst enga skoðun“
Ásdís Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­stjóri Kópavogs

Aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins furðar sig á skrifum efna­hags­ráð­gjafa VR um Samtök atvinnu­vinnu­lífs­ins í tengslum við kjara­við­ræður Flug­freyju­fé­lags Íslands og Icelandair. Henni finnst nær að sam­mæl­ast um að bjarga störfum í land­inu heldur en að bera á sam­tökin til­hæfu­lausar ásak­anir.

„Það er auð­vitað frá­leitt að halda því fram að við séum að hafna samn­ingum við íslenskt launa­fólk. Ég skil ekki hvernig það getur verið nið­ur­staða efna­hags­ráð­gjafa VR. Það stenst bara enga skoðun,“ segir Ásdís Krist­jáns­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins um pistil Guðrúnar Johnsen, dokt­ors í hag­fræði og efna­hags­ráð­gjafa VR, Veröld sem verður, sem birt­ist á Kjarn­anum þann 20. júlí.

„Í stað þess að saka okkur um að mæra samn­inga umfram aðra væri ekki lag ef við sam­mæl­umst um að bjarga störfum í land­inu.“

Gagnrýndi forystu Samtaka atvinnulífsins

Í pistl­inum gerir Guðrún athuga­semdir við skoð­anapistil Ásdísar, Veröld sem var, sem birt­ist á Vísi þann 14. júlí, þar sem Ásdís segir að þau flug­fé­lög, sem Icelandair ber sig helst saman við, hafi á liðnum árum gert veiga­miklar breyt­ingar á kjara­samn­ingum við flug­á­hafnir, flug­menn og flug­freyjur, sem fela í sér minni kostnað fyrir fyr­ir­tækin.

„Sú þróun er nauð­syn­leg og eðli­legt fram­hald af því að síð­ustu tutt­ugu ár hefur fjöldi flug­fé­laga sprottið upp með allt annað og ódýr­ara launa­fyr­ir­komu­lag en áður þekkt­ist,“ skrifar Ásdís í pistli sínum í Frétta­blað­inu og bætir við að dor­svars­menn Play hafi gefið út að félagið hafi gert kjara­samn­ing um störf flug­freyja og flug­þjóna sem fela í sér allt að 27 pró­sent lægri launa­kostnað en tíðk­að­ist hjá Wow air vegna sömu starfa. „En Wow air var með um 30 pró­sent hag­stæð­ari samn­inga við FFÍ en Icelandair.“

Guðrún staldrar við þessi ummæli Ásdísar og segir að „með því að mæra samn­inga milli flug­fé­lags sem ekki hefur hafið dag­legan rekstur um veru­lega lækkun launa þeirra starf­stétta ófag­lærðra, sem einmitt er fjallað um í rann­sóknum Case og Deaton, niður á ósjálf­bært plan miðað við íslenskan veru­leika er ekki hægt að skilja það öðru vísi en svo að núver­andi for­ystu­fólk SA hvetji aðild­ar­fé­lög sín til að hafna samn­ingum við íslenskt launa­fólk.“

Brýnt að bjarga störfum í landinu

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Ásdís vera undr­andi á þessum skrifum Guðrúnar og segir það lengi hafa legið fyrir að Icelandair þyrfti að aðlag­ast breyttu lands­lagi í flug­heim­inum líkt og önnur erlend flug­fé­lög hafa verið að gera.

„Hjá Icelandair eru greidd há laun og hærri en þau sem við sjáum hjá öðrum erlendum flug­fé­lögum fyrir sam­bæri­leg störf,“ bendir hún á. „Ef Icelandair bregst ekki við breyttum veru­leika verður félagið ein­fald­lega undir í sam­keppn­inni og þá verða engin laun greidd áfram til þeirra fimm þús­und starfs­manna sem starfa í dag hjá félag­inu.

Í stað þess að saka okkur um að mæra samn­inga umfram aðra væri ekki lag ef við sam­mæl­umst um að bjarga störfum í land­inu. Hjá Icelandair starfa þús­undir félags­manna VR og það verður að segj­ast eins og er að þessi skrif efna­hags­ráð­gjafa VR vekja furðu.“

Rangt að SA sé loka á aðgang aðildarfélaga að íslensku fjármagni

Í sam­tali við Mannlíf segir Ásdís enn­fremur að flug­freyjur og flug­þjónar hjá Icelandair fái jafnan hærri laun en hjá sam­bæri­legum flug­fé­lögum fyrir sömu störf. Þá séu laun þeirra í dag almennt hærri en með­al­laun í land­inu og laun háskóla­mennt­aðra ein­stak­linga, enda lengi verið mikil ásókn í þessi störf m.a. hjá háskóla­mennt­uðu fólki. Gangi áform Icelandair eftir verði flug­freyjur og flug­þjónar áfram með há laun en félagið þó sam­keppn­is­hæf­ara á alþjóða mörk­uðum.

„Það er því óskilj­an­legt hvernig efna­hags­ráð­gjafi VR kemst að þeirri nið­ur­stöðu að með breyt­ingum á kjörum starfs­manna verði nið­ur­þjöppun launa hér á landi svo mikil að hún leiði til auk­innar fátæktar og ójöfn­uðar sem sam­ræm­ist ekki mark­miðum SÞ,“ segir Ásdísar og vísar þar til þeirra orða Guðrúnar að SA loki leiðum fyrir aðild­ar­fé­lög sín til að njóta aðgengis að íslensku fjár­magni, að stærstum hluta, „enda sam­ræm­ist nið­ur­þjöppun launa sem leiðir til auk­innar fátæktar og ójöfn­uðar ekki mark­miðum SÞ um sjálf­bæra þróun, sjálf­bæran hag­vöxt án aðgrein­ingar, fullri, arð­bærri og mann­sæm­andi atvinnu fyrir alla, né heldur meg­in­reglum um ábyrgar fjár­fest­ingar, sem íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa geng­ist undir í fjár­fest­ing­ar­stefnum sínum. Það geti varla verið vilji aðild­ar­fé­lag­anna sjálfra?“

„Það er því óskilj­an­legt hvernig efna­hags­ráð­gjafi VR kemst að þeirri nið­ur­stöðu að með breyt­ingum á kjörum starfs­manna verði nið­ur­þjöppun launa hér á landi svo mikil að hún leiði til auk­innar fátæktar og ójöfn­uðar sem sam­ræm­ist ekki mark­miðum SÞ.“

Ásdís furðar sig á þessum skrifum Guðrúnar. „Ég myndi fremur ætla að ef félagið hefði ekki gripið til nauð­syn­legra aðgerða þá væri eng­inn fjár­festir, hvorki líf­eyr­is­sjóðir né aðrir, að fara að setja fjár­magn inn í ósjálf­bæran rekstur, hvort sem er hjá Icelandair ná öðrum fyr­ir­tækjum sem þurfa að sækja sér fjár­magn. Það er því ill­skilj­an­lega full­yrð­ing hjá ráð­gjafa VR að halda því fram að SA sé að loka á aðgang aðild­ar­fé­laga að íslensku fjár­magni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi