Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna segir Hörð segja ósatt

Sólveig Anna segir Hörð segja ósatt

Sólveig Anna, for­maður Eflingar, segir Hörð Ægisson, rit­stjóra Mark­að­ar­ins, segja ósatt í leið­ara hans í Frétta­blað­inu í dag. Í leið­ar­anum skrifar Hörður um mál Icelandair og þátt­töku líf­eyr­is­sjóð­anna í end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins.

„Í árásar-leið­ara dags­ins í Frétta­blað­inu segir Hörður Ægisson í mik­illi van­still­ingu sinni ósatt,“ segir Sólveig Anna og segir eft­ir­far­andi full­yrð­ingu hans ranga.

„Ákvörðun líf­eyr­is­sjóð­anna, sem komu síð­ast að end­ur­reisn Icelandair fyrir hart­nær ára­tug, að leggja félag­inu til aukið fjár­magn, getur aðeins verið tekin á við­skipta­legum for­sendum með arð­sem­is­mark­mið að leið­ar­ljósi.“

Segir Sólveig Anna flesta líf­eyr­is­sjóði hafa sett sér sið­ferði­leg mark­mið í fjár­fest­ingum, og vísar í stefnu Gildis, þar segir meðal ann­ars að með ábyrgum fjár­fest­ingum er átt við að litið sé til umhverf­is­mála, félags­legra mál­efna og stjórn­ar­hátta í fjár­fest­ingum.

„Semsagt að sér­stak­lega sé gætt að því að ákvarð­anir séu ekki aðeins teknar á „við­skipta­legum for­sendum með arð­sem­is­mark­mið að leið­ar­ljósi“ eins og hinn ídeólógíski öfga­maður og leið­ara­höf­undur full­yrðir, heldur að gætt sé að því að ekki sé unnin skaði á því sem skiptir mann­fólk veru­legu máli (flest okkar í það minnsta): Umhverf­inu sem við lifum í, sam­fé­lagi því sem við byggjum hvert með öðru og því hvernig fyr­ir­tækjum er stjórnað,“ segir Sólveig Anna.

Segir hún að öllum ætti að vera aug­ljóst að ef Gildi ætlar að geta staðið við sín eigin grunn­gildi hefði sjóð­ur­inn ekki getað tekið þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair, eftir lög­brot for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins þegar flug­freyjum var sagt upp störfum í miðri vinnu­deilu.

„Það getur ekki annað verið en að Hörður þekki þessi sið­ferði­legu við­mið og gildi líf­eyr­is­sjóð­anna. Ég tel senni­legt að hann sé með full­yrð­ingu sinni aðeins að afhjúpa það sem honum raun­veru­lega finnst: Sið­ferði­leg gildi og við­mið í kap­ít­al­ism­anum eru aðeins sett til að friða almenn­ing sem enn trúir því að sið­ferði sé mögu­lega ein­hvers virði. Þegar allt gengur sæmi­lega í „frjálsu mark­aðs­hag­kerfi“ er í lagi að spila með og taka undir barna­legt þvaðrið en þegar að því kemur að stjór­arnir þurfa að fá aðgang að líf­eyri vinnu­aflsins á ögur­stundu veit Hörður að það fyrsta sem fýkur út um glugg­ann eru sið­ferði­leg við­mið og „grunn­gildi,“ segir Sólveig Anna.

Ofstækisfull herferð íslenskrar auðstéttar

Sólveig Anna segir að ljóst sé að nota eigi COVID-19 til að stjórna vinnu­afl­inu.

„Ofstæk­is­full her­ferð íslenskrar auð­stéttar og útsend­ara hennar gegn því fólki sem kjörið hefur verið til að leiða verka­lýðs­fé­lög og árásir á þau lög eru ríkja á Íslandi um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur er með algjörum ólík­indum. Ljóst er að nú skal nota Covid-19 og hið efna­hags­lega upp­nám sem fylgir far­aldr­inum til að keyra í gegn Thatcher-íska óra um tótal stjórn á vinnu­afl­inu,“ segir Sólveig Anna og bætir við að menn trúi því að versti óvin­ur­inn sé vinnu­aflið:

„Um leið og við horfum á hvernig sjúk hug­mynda­fræði nýfrjáls­hyggj­unnar liggur eins og ógeðs­lega mara á Banda­ríkj­unum og Bret­landi, „flagg­skipum kap­ít­al­ism­ans,“ og leggur þar heilsu og hag­sæld í rúst er engan bil­bug á tals­mönnum hinnar eitr­uðu hug­mynda­fræði á Íslandi að finna. Hér ræður veru­leikafirr­ingin ríkjum og menn trúa því að þeirra versti óvinur sé vinnu­aflið sem skapar auð­inn sem gerir þeim og félögum þeirra kleyft að lifa eins og blóm í eggi. Enn sann­ast hið forn­kveðna: Kúgarinn hatar þá kúg­uðu meira en þeir hann.“

Grunngildin

Sólveig Anna nefnir að grunn­gildin séu ekki þau sömu hjá vinnu­afl­inu og auð­magns­eig­endum, hjá þeim fyrri skipti þau sið­ferði­legu máli, meðan gildi kap­ít­al­ism­ans ráði öllu hjá þeim seinni.

„Þegar kreppan kemur og bankar á glugga auð­magns-eig­end­anna eru aðeins ein grunn­gildi sem skipta máli og það eru hin ísköldu gildi kap­ít­al­ism­ans. Í ver­öld Harðar er þetta eins aug­ljóst og hugs­ast getur og því á hann erfitt með að skilja að fyrir aðra, t.d. vinn­andi fólk, skipta önnur gildi meira máli. Þau sem stundum eru köllum sið­ferði­leg og jafn­vel grunn­gildi: Að öruggt sé að ekki sé aðeins litið til „við­skipta­legra for­senda með arð­sem­is­mark­mið að leið­ar­ljósi“. Vegna þess að ver­öld þar sem þau sjón­ar­mið ráða ein för er algjör­lega óbæri­leg fyrir mann­fólk. Ég veit að við erum í það minnsta ansi mörg sam­mála um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi