Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur segir engan óhultan fyrir skaðlegum áhrifum pólitísks réttrúnaðar

Sigmundur segir engan óhultan fyrir skaðlegum áhrifum pólitísks réttrúnaðar
Sig­mundur Davíð

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir áhrif póli­tísks rétt­trún­aðar vera skað­leg sam­fé­lag­inu. Nú sé í gangi ný menn­ing­ar­bylt­ing­ sem ýti undir kyn­þátta­hyggju og fel­i í sér end­ur­skoðun sög­unnar, fórn­ar­lambs­menn­ingu og sam­fé­lags­legar aftökur.

„Nú þarf að standa vörð um grunn­gildi vest­rænn­ar sið­menn­ing­ar. Þau gildi sem skilað hafa sam­fé­lög­um meiri ár­angri en nokkuð annað í mann­kyns­sög­unni. Þar ber hæst hug­sjón­ina um að all­ir skuli telj­ast jafn­rétt­há­ir óháð lík­am­leg­um ein­kenn­um … Byggj­um áfram á því besta sem síð­ustu árþús­und hafa skilað okk­ur en köst­um því ekki á glæ til að þókn­ast þver­sagna­kennd­um og göln­um tíð­ar­anda sum­ars­ins 2020,“ segir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag, undir yfir­skrift­inni Sumarið 2020 og nýja menn­ing­ar­bylt­ingin.

Í grein­inni fjallar Sig­mundur Davíð um skað­leg áhrif póli­tísks rétt­trún­aðar, sem virð­ast tröll­ríða öllu á Vest­ur­löndum að mati for­manns­ins. Tilefni skrif­anna virð­ist meðal ann­ars vera bar­átta hreyf­ing­ar­innar Black Lives Matter gegn ofbeldi stjórn­valda og lög­reglu á svörtu fólki í Banda­ríkj­unum, en hreyf­ingin hefur sér­stak­lega látið til sín taka eftir að morð lög­reglu á George Floyd í Minn­ea­polis náð­ist á mynd­band og var dreift á sam­fé­lags­miðlum í lok maí á þessu ári.

Virðist Sig­mundur Davíð telja að hreyf­ingin end­ur­veki kyn­þátta­hyggju og sé hluti af nýrri menn­ing­ar­bylt­ingu sem beri m.a. með sér öll ein­kenni öfga­trú­ar, „þ.m.t. at­hafn­ir sem fólki er ætlað að und­ir­gang­ast til að sanna und­ir­gefni sína gagn­vart rétt­trún­að­inum“.

„Menn­ing­ar­bylt­ing Vest­ur­landa er byggð á því sem kallað hef­ur verið fórn­ar­lamba­menn­ing. Til­hneig­ingu til að skipa fólki í hópa sem njóta mis­mik­illa rétt­inda eft­ir því hversu hátt þeir skora á óform­leg­um fórn­ar­lamba­skala,“ skrifar Sig­mundur Davíð meðal ann­ars í grein sinni.

Þótt leið­tog­ar nýju menn­ing­ar­bylt­ing­ar­inn­ar hafi ekki vald til að taka fólk af lífi séu þó af­tök­ur eitt helsta ein­kenni hreyf­ing­ar­inn­ar, það er að segja sam­fé­lags­leg­ar af­tök­ur, bendir hann á. All­ir sem fjalli á gagn­rýn­inn hátt um at­b­urðarás­ina geti átt von á að verða „tekn­ir af lífi“ á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum. Þar sé eng­inn óhult­ur. Meira þeir sem taki þátt í henni geti vænst þess að verða skot­mörk síðar meir. „Bylt­ing­in étur börn­in sín“. Til við­bót­ar við rit­skoðun sam­tímaum­ræðu felist mik­il­væg­ur þátt­ur menn­ing­ar­bylt­ing­ar­inn­ar síðan í því að end­ur­skrifa sög­una. Þar sé ekk­ert óhult, hvorki sígildar kvik­myndir né sögu­leg minn­is­merki.

Telur Sig­mundur Davíð tíma­bært að spyrna við fótum og standa vörð um grunn­gildi vest­rænn­ar sið­menn­ing­ar. Gildin sem skilað hafa sam­fé­lög­um meiri ár­angri en nokkuð annað í mann­kyns­sög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi