Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Viltu vinna með Þórólfi? – Hér er tækifærið

Viltu vinna með Þórólfi? – Hér er tækifærið
Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, hefur ekki stórar áhyggjur af veirunni enn sem komið er.

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, er einn umtal­að­asti maður árs­ins og það af góðu einu. Þórólfur hefur ásamt Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra og Ölmu Möller land­lækni staðið vakt­ina í COVID-19 heims­far­aldr­inum.

Þau hafa áminnt þjóð­ina um reglur og hátt­semi í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og staðið sig að lang­flestra mati með góðum hætti. Fyrst í stað hélt þrí­eykið dag­lega upp­lýs­inga­fundi, sem síðan fækk­aði í tvo og loks einn í viku, og nú hefur sá síð­asti verið hald­inn, í bili að minnsta kosti.

Líklega sakna margir þrí­eyk­is­ins og heil­ræða þeirra af skjánum, en fagna á sama tíma að ekki er þörf á upp­lýs­inga­fund­unum lengur.

Þeir sem sakna þess að sjá Þórólf dag­lega geta nú freistað þess að sækja um vinnu hjá emb­ætti Land­læknis. Að vísu er það ekki á allra færi því við­kom­andi þarf jú að vera mennt­aður í lækn­is­fræði auk ann­arra skil­yrða, sem lesa má um í aug­lýs­ingu á Starfa­torgi:

Yfir­læknir – sótt­varna­svið emb­ættis land­læknis

Embætti land­læknis óskar eftir að ráða yfir­lækni til starfa á sviði sótt­varna. Starfið felst fyrst og fremst í verk­efnum tengdum sýkla­lyfja­ó­næmi ásamt fjöl­breyttum verk­efnum á sviði sótt­varna. Í boði er áhuga­vert og krefj­andi starf þar sem reynir á þekk­ingu í lækna­vís­indum, fag­mennsku og sam­skipta­hæfni. Næsti yfir­maður er sótt­varna­læknir en við­kom­andi mun vinna í nánu sam­starfi við teymi sér­fræð­inga í sam­ræmi við lög­bundna starf­semi sótt­varna­læknis sam­kvæmt sótt­varna­lögum. Starfið er laust frá og með 1. októ­ber eða eftir nán­ara sam­komu­lagi. Um er að ræða fullt starf en mögu­leiki er á hluta­starfi.

Helstu verk­efni og ábyrgð
# Vinna að opin­berum aðgerðum gegn sýkla­lyfja­ó­næmi, skyn­sam­legri notkun sýkla­lyfja í sam­vinnu við lækna, vinnslu gagna og birt­ingu þeirra
# Sam­skipti við helstu aðila inn­an­lands og erlendis um aðgerðir gegn útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmis
# Önnur verk­efni að beiðni sótt­varna­læknis eða land­læknis, þar með talið vinna við heims­far­aldur COVID-19 eins og þörf er á hverju sinni

Hæfni­kröfur
# Sér­fræði­menntun í lækn­is­fræði og íslenskt starfs­leyfi sem sér­fræði­læknir
# Víðtæk starfs­reynsla í heil­brigð­is­þjón­ustu
# Reynsla í far­alds­fræði æski­leg
# Góð færni í íslensku og ensku
# Almenn góð tölvu­kunn­átta
# Starfs­reynsla á sviði stjórn­sýslu er kostur
# Jákvæðni og lip­urð í mann­legum sam­skiptum
# Sjálf­stæði í vinnu­brögðum og skipu­lags­hæfni

Frekari upp­lýs­ingar um starfið
Laun sam­kvæmt gild­andi kjara­samn­ingi sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og við­kom­andi stétt­ar­fé­lag hafa gert.
Við ráðn­ingu er tekið mið af jafn­rétt­is­stefnu emb­ætt­is­ins og við hvetjum ein­stak­linga af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknin gildir í 6 mán­uði eftir að umsókn­ar­frestur rennur út nema umsækj­andi ákveði annað. Embætti land­læknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðn­ingu lok­inni.

Umsókn skal fylgja ítar­leg náms- og starfs­fer­il­skrá, auk kynn­ing­ar­bréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rök­stuðn­ingur fyrir hæfni við­kom­andi í starfið. Mat á hæfni umsækj­enda byggir á inn­sendum gögnum og við­tölum við umsækj­endur.

Embætti land­læknis starfar í sam­ræmi við lög um land­lækni og lýð­heilsu. Hlutverk emb­ætt­is­ins í hnot­skurn er að stuðla að góðri og öruggri heil­brigð­is­þjón­ustu, heilsu­efl­ingu og öfl­ugum for­vörnum. Embættið hefur sett sér þrjú gildi sem starfs­mönnum ber að hafa að leið­ar­ljósi þ.e. ábyrgð, virð­ing og traust. Við erum heilsu­efl­andi vinnu­staður sem leggur áherslu á að efla mannauð og stuðla að góðri heilsu og líðan starfs­manna.

Starfs­hlut­fall er 100%
Umsókn­ar­frestur er til og með 01.09.2020

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi