Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sverrir tattoo látinn: „Þú varst svo sannarlega sannur vinur“

Sverrir tattoo látinn: „Þú varst svo sannarlega sannur vinur“

Sverrir Þór Ein­ars­son, best þekktur sem Sverrir tattoo, lést í gær, 58 ára að aldri.

Sverrir var þekktur húð­flúr­ari, en hann rak húð­flúr­stof­una Skinn­list Tattoo, ásamt eig­in­konu sinni Diljá Petru Finn­boga­dóttur.

Dóttir Sverris Þórs, Sara Mist minn­ist föður síns með orð­unum: „Elsku besti pabbi minn er far­inn frá okkur.  Sakna hans meira en orð fá lýst. Besti pabbi og afi sem nokkur gæti óskað sér, mað­ur­inn sem alltaf allt fyrir alla og bað aldrei um neitt í stað­inn. Sannur vinur vina sinna og alltaf til staðar fyrir alla þegar á reyndi. Gull af manni, þús­und­þjala­smið­ur­inn sem gat allt, búið til hvað sem er og lagað allt. Mesti meist­ari sem uppi hefur verið sem bjó yfir mik­illi vit­neskju og styrk, mað­ur­inn sem braut skipti­lykla neð hönd­unum. Hann barð­ist eins og her­for­ingi í eitt og hálft ár við krabbann, en hélt samt alltaf áfram að láta alla brosa. Minning hans mun lifa að eilífu og ég mun halda minn­ing­araf­höfn þar sem öllum er boðið sem vilja votta honum virð­ingu sína. Stað­setn­ing og dag­setn­ing verða aug­lýst síðar.“

Ástrós Tinna Þórs­dóttir skrifar:

„Eftir erf­iða bar­áttu hefur þessi mikli meist­ari loks­ins fengið frið. Ég á enda­laust af fal­legum minn­ingum um þig og ynd­is­gullið hana Dillu þína sem ég er ofboðs­lega þakk­lát fyrir. Ég lofa að standa þétt við bakið á þínu fólki eins og þú gerðir alltaf fyrir mig, elsku vinur.“

Haraldur Bogi Sig­steins­son skrifar:

„Í dag féll frá­bær félagi frá. Þessi frá­bæri maður hefur kennt mér eitt og annað um lífið. Það voru fáir sem fengu mig til að hlæja jafn dátt og fáir sem var jafn gaman að hlæja með. Klukku­tím­arnir sem við eyddum saman eru ótelj­andi, hvort sem það var undir nál­inni eða bara að njóta lífs­ins. Ég mun sakna þínn elsku fal­legi, hjarta­hlýi, ÓVIÐEIGANDI á köflum, ynd­is­legi vinur minn,  það verður aldrei neinn annar eins og þú. Við munum hitt­ast aftur og þá veit ég að þú munt taka mér með opnum örmum eins og alltaf. Nánustu aðstand­endum votta ég mína dýpstu samúð.“

Rós­in­krans Már Kon­ráðs­son skrifar:

„Þú varst svo sann­ar­lega sannur vinur, þótti alltaf jafn gaman að koma í heim­sókn til þín, hvort sem það var heim til þín eða upp í vinnu, varst alltaf búinn að gera eitt­hvað nýtt og spenn­andi og hafðir alltaf frá skemmti­legum hlutum að segja. Sakna þín alveg ólýs­an­lega mikið og vildi óska að ég hefði verið á land­inu til þess að koma og kveðja þig.

Varst mér sann­ar­lega góður vinur og alltaf hægt að leita til þín sama hvað það var, þú vissir alltaf allt og varst alltaf til­bú­inn að hjálpa og þið hjónin alveg mögnuð saman, ynd­is­legra fólk er ekki hægt að finna.

Hvíldu í friði elsku vinur, það er gott að vita að þú sért kom­inn á góðan stað og laus við allan þennan sárs­auka og þján­ingar.“

Mannlíf sendir fjöl­skyldu og vinum Sverris Þórs inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi