Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Breyting vegna Hvalárvirkjunar samþykkt – Landvernd mótmælir meira umfangi

Breyting vegna Hvalárvirkjunar samþykkt – Landvernd mótmælir meira umfangi
Útsýni frá Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Kálfatindar í fjarska. Mynd: rt

Hjá hrepp­stjórn Árnes­hrepps á Ströndum liggur sam­þykkt breyt­ing­ar­til­laga að aðal­skipu­lagi og deiliskipu­lagi vegna Hval­ár­virkj­unar í Ófeigs­firði. Sú til­laga gerir ráð fyrir frek­ari fram­kvæmdum en áður höfðu verið sam­þykktar í skipu­lagi og lágu til grund­vallar umhverf­is­mati vegna virkj­un­ar­innar. Land­vernd fer fram á nýtt umhverf­is­mat vegna breyt­ing­anna sem hrepp­ur­inn hefur sam­þykkt í sveita­stjórn­inni.

Þó að Vest­ur­verk hafi lagt niður starf­semi tíma­bundið síð­ast­liðið vor liggur breyt­inga­til­lagan hjá skipu­lags­yf­ir­völdum hrepps­ins. Hún var lögð fyrir í sveita­stjórn Árnes­hrepps á Ströndum rétt fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og þar var hún sam­þykkt. Skipu­lags­full­trúa hrepps­ins var þá falið að kynna fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar en sú vinna lagð­ist niður vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Núgild­andi aðal­skipu­lag fékkst stað­fest af Skipu­lags­stofnun í júní 2018. Tryggvi Felixson, for­maður Land­verndar, telur ljóst að breyt­ing­ar­til­lög­urnar sem nú liggja fyrir séu það stór­tækar að ráð­ast þurfi í nýtt umhverf­is­mat vegna Hval­ár­virkj­unar. „Við teljum að breyt­ingar séu svo umfangs­miklar að fyrra mat á umhverf­is­á­hrifum gefi ekki lengur rétta mynd. Fyrra mat fékk fall­ein­kunn og búast má við verri ein­kunn sé tekið mið af boð­uðum breyt­ingum,“ segir Tryggvi.

Tryggvi Felixson, for­maður Land­verndar. Mynd / skjá­skot RÚV

Land­vernd benda á að tals­verðum við­bót­ar­fram­kvæmdum sé því verið að bæta við frá því að umhverf­is­mat Skipu­lags­stofn­unar var gefið út vegna virkj­un­ar­innar í Ófeigs­firði. Þær fram­kvæmdir sem bæt­ist við eru nýir vegir, fjöldi nýrra jarð­vegs­náma, ný höfn, nýjar starfs­manna­búðir, stækkun starfs­manna­búða og nýtt mann­virki í formi gesta­stofu. Margt af þessu bæt­ist við í ann­ars óspilltri nátt­úru segja nátt­úr­vernd­ar­sam­tökin ásamt því að fyr­ir­hug­uðum lónum verði breytt þannig að stíflu­garðar virkj­un­ar­innar hækki. „Það verður að telj­ast ólík­legt að fram­kvæmd­ar­að­ili hafi ekki gert sér grein fyrir því að allar þessar breyt­ingar sem nú eru lagðar til og eru ekki hluti af gild­andi umhverf­is­mati Hval­ár­virkj­unar, þyrftu að koma til,“ segir Tryggvi.

Vest­ur­verk, sem áformar að reisa Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi á Ströndum, lok­aði skrif­stofu sinni á Ísafirði í vor og sló öllum virkj­un­ar­fram­kvæmdum á frest. HS Orka er meiri­hluta­eig­andi Vest­ur­verks. Þegar Mannlíf leit­aði við­bragða þar vegna gagn­rýni á umfang breyt­ing­ar­til­lag­anna feng­ust þau svör að þetta verði allt saman skoðað betur síðar. „Vest­ur­verk ákvað í vor að hægja á vinnu  við virkj­un­ar­á­formin, meðal ann­ars eftir ábend­ingar sem komu frá Skipu­lags­stofnun. Þessi atriði sem nefnd eru, verða þá hluti af þeirri skipu­lags­vinnu sem þarf að ljúka þegar þar að kemur,“ segir Jóhann Snorri Sig­ur­bergs­son, for­stöðu­maður við­skipta­þró­unar HS Orku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi