Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

IKEA-vörur Jónu Berglindar slá í gegn

IKEA-vörur Jónu Berglindar slá í gegn
Samhliða því að hanna fyrir IKEA á Jóna Berglind í sam­starfi við Helgu Láru Hall­dórs­dóttur fata­hönnuð. „Sam­starfið okkar heitir Objective og til grund­vallar þvi er meist­ara­verk­efni okkar beggja, en við höfum verið að vinna með upp­lifun og klæð­an­leg rými,“ segir hún. Mynd/ Aðsend

Litadýrð og gleði ein­kenna nýjar vörur sem textíl­hönn­uð­ur­inn Jóna Berglind Stef­áns­dóttir hannar fyrir sænska ris­ann IKEA. Í sam­tali við Hús og híbýli segir hönn­uð­ur­inn að vör­unum hafi verið ein­stak­lega vel tekið og nú sé von á fleiri.

RESENSTAD mottan.

„Þær hafa verið alveg frá­bærar,“ segir Jóna Berglind, spurð út í við­tök­urnar. „Kúnnar hafa meira að segja verið að senda mér myndir af mott­unum. Það er ótrú­lega gaman að fólk skuli vera svona ánægt með þetta.“

Jóna Berglind hann­aði PILLEMARK og RESENSTAD mott­urnar sem nú eru komnar í sölu hjá IKEA, en línan sam­anstendur af vörum sem eru lit­ríkar og glað­legar og undir áhrifum hinnar svoköll­uðu bauhaus stefnu. „Já, það er óhætt að segja að þær séu lit­ríkar og glað­legar og alveg í takt við minn per­sónu­lega stíl,“ segir Jóna Berglind og tekur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem hún hanni fyrir jafn stórt fyr­ir­tæki á alþjóða­vísu og IKEA.

„Nokkrum vikum seinna fékk ég skila­boð um að þau hefðu valið mig úr hópi umsækj­enda og í kjöl­farið hef ég unnið að alls konar skemmti­legum verk­efnum hjá IKEA.“

Hvernig kom það til? „Ég lærði graf­íska hönnun við Lista­há­skóla Íslands og starf­aði við það í smá tíma. Síðan lærði ég textíl við Mynd­lista­skól­ann í Reykja­vík og þaðan fór ég í meist­ara­nám til Sví­þjóðar í The Swedish School of Textiles. Í gegnum þann skóla bauðst mér starfs­nám Í hönn­un­ar­deild IKEA,“ segir hún. „Fyr­ir­tækið var á hött­unum eftir nýút­skrif­uðum textíl­hönn­uðum og ég ákvað að senda þeim möppu með þremur verk­efnum sem ég hafði unnið í skól­anum. Nokkrum vikum seinna fékk ég skila­boð um að þau hefðu valið mig úr hópi umsækj­enda og í kjöl­farið hef ég unnið að alls konar skemmti­legum verk­efnum hjá IKEA, meðal ann­ars þessum PILLEMARK og RESENSTAD mottum sem nú eru komnar á markað.“

Spennandi að hanna fyrir stórfyrirtæki

Jóna Berglind fer ekki í graf­götur með það að það sé spenn­andi og lær­dóms­rikt að hanna fyrir jafn stórt og virt fyr­ir­tæki og IKEA. „Það er mjög áhuga­vert að fá að vinna að fjöl­breyttum verk­efnum og með ólíkum vöru­hönn­uðum og auð­vitað frá­bært að geta leitað til þeirra sem gera prótótýpur af vör­unum og fá að sjá sýn­is­horn og hand­leika það,“ segir hún. „Ég hef fengið til­tölu­lega frjálsar hendur hjá fyr­ir­tæk­inu, en innan vissra marka. Stundum fæ ég til dæmis send skrif­leg fyr­ir­mæli um að breyta ein­hverju smá eða aðlaga það þannig að ferlið í kringum þróun hverrar vöru snýst að miklu leyti um sam­tal og sam­starf.“

Hún segir að eðli­lega hafi sumt komið á óvart í sam­staf­inu við fyr­ir­tækið. „Það kom mér til dæmis svo­lítið á óvart hvað það leið langur tími frá því ég hann­aði fyrr­nefndar vörur og þar til þær komu fyrir sjónir almenn­ings,“ nefnir hún. „Ég vann að þessum meðan á starfs­nám­inu stóð, það er að segja frá febr­úar til júlí á síð­asta ári og núna er þær loks komnar í sölu.“

PILLEMARK regn­bogamottan.

Jóna Berglind tekur þó fram að auð­vitað fari síðan mis­mik­ill tími í hönnun hverrar vöru. „Sumt tekur lengri tíma en annað. PILLEMARK regn­bogamottan tók minni tíma en til dæmis RESENSTAD mottan. Þetta er bara breyti­legt eftir vörum.“

Talandi um það, er von á fleiri vörum sem þú hefur hannað í samt­arfi við IKEA? „Já já, það á eftir að koma eitt­hvað meira á markað af því sem ég hef gert fyrir IKEA,“ segir hún glað­lega. „Við sjáum svo hvað setur þegar fram líða stundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni