Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lykillinn að fallegu heimili

Lykillinn að fallegu heimili
Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kristján Krist­jáns­son, lýs­ing­ar­hönn­uður og eig­andi lýs­ing­ar­hönn­un­ar­stof­unnar Hildi­berg, gefur sex skot­held ráð til að gera heim­ilið hlý­legt í skamm­deg­inu.

Kristján Krist­jáns­son, lýs­ing­ar­hönn­uður, gefur góð ráð.

1. Dimmer, eða ljós­deyfir. „Þegar það er dimmt og hrá­slaga­legt úti, eins og algengt er á haustin og vet­urna á Íslandi, þá er gott að vera með dimmer til að „lækka“ ljósin,“ segir Kristján. „Það kann að hljóma þver­stæðu­kennt að gera það í stað þess að auka lýs­ing­una, en mjúk birta getur gert krafta­verk. Fyrir hennar til­stilli verður umhverfið hlý­legt og nota­legt, sem er gott – og í leið­inni svo­lítið róm­an­tískt.“

2. Ljósa­perur. „Það er ekki nóg að vera með góðan dimmer, maður þarf að líka að eiga góðar perur. LED per­unnar er sá kostur sem algeng­ast er að fá í dag. LED perur eru alltaf að verða betri og betri en eldrir gerðir af dimmerum og nýjar LED perur eru ekki alltaf vinir og geta valdið flökti og ves­eni fyrir not­endur. Því er best að prófa sig áfram hvað virkar saman. En svo eru glóð­ar­perur, eða glóp­erur eins og þær eru yfir­leitt kall­aðar, sem eru enn seldar á nokkrum stöðum hér­lendis, ótrú­lega þægi­legur ljós­gjafi; gefa þessa hlýju birtu og nota­leg­heit sem við sækj­umst gjarnan eftir á haustin og vet­urna. Auk þess ráða gömlu dimmer­arnir ráða best við þær. Með því að dimma spörum við orku. Auk þess inni­halda glóp­erur engin spilli­efni eins og núm­tíma Ledperur.“

„Mjúk birta getur gert krafta­verk. Fyrir hennar til­stilli verður umhverfið hlý­legt og nota­legt, sem er gott – og í leið­inni svo­lítið róm­an­tískt.“

3. Stand- og borð­lampar. „Á haustin og vet­urna er til­valið að not­ast frekar við stand- og borð­lampa heldur en loft­ljós, því frá loft­ljósum getur stafað flöt birta sem hentar til dæmis í mát­un­ar­klefa úti í búð en ekki í stof­unni heima. Kveiki maður bara á einu loft­ljósi í stóru rými getur birtan orðið köld og dap­ur­leg í ofan á lag. Við þurfum sam­spil ljóss og skugga og því nær maður fram með góðum stand- og borð­lömpum sem er hægt að raða hér og þar um rýmið, svo­lítið eins og kertum.“

„Á haustin og vet­urna er til­valið að not­ast frekar við stand- og borð­lampa heldur en loft­ljós.“ Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir.

4. „Talandi um það, þá eru kerti klár­lega málið. Kerti gefa frá sér fal­lega og mjúka birtu sem er alveg til­valin í skamm­deg­inu. Passið ykkur bara á einu. Kerta­ljós er huggu­leg og róm­an­tísk en það sama verður ekki sagt um sót af kertum sem vill gjarnan mynd­ast á veggjum og gera að verkum að þá þarf að ryk­suga vegg­ina. Besta aðferðin til að forð­ast slíkt er að passa sig bara á því að stilla kert­inu ekki upp við ljósa eða hvíta veggi.“

5. Dags­birta. „Drögum gard­ínur frá gluggum þessa fáu tíma sem dags­birtu nýtur við á haustin og vet­urna. Það er leitun að jafn fal­legri birtu, ég tala nú ekki um þegar sést til sólar. Fyrir utan það þá er marg­sannað hvað dags­birta er mik­il­væg í skamm­deg­inu, eitt það besta sem völ er á fyrir sál­ar­tetrið.“

6. Sleppið einnar peru loft­lýs­ingu í skamm­deg­inu. „Ég kalla slíka loft­lýs­ingu oft rykusugu­lýs­ingu og af ástæðu. Það er best að hafa hana í gangi þegar maður er að taka til eða ryk­suga heima hjá sér.“

Kristján á heið­ur­inn að lýs­ing­unni í Vök Baths. Mynd / Vök Baths.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni