Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorsteinn Már sakar Helga um fölsun

Þorsteinn Már sakar Helga um fölsun
Þor­steinn Már Bald­vins­son. Mynd / Kjarninn

Stjórn­endur Samherja saka Rík­is­út­varpið um að hafa falsað skýrslu sem kennd er við Verð­lags­stofu skipta­verðs til birt­ingar í Kast­ljósi árið 2012. Frétta­blaðið segir frá þessu í dag og vísar til vænt­an­legs mynd­bands­þáttar sem Samherji hefur látið vinna, meðal ann­ars til að sanna sak­leysi sitt í mútu­mál­inu í Namibíu.  Þátt­ur­inn verður birtur á Youtube-rás Samherja. Meðal þeirra sem hafa unnið að mál­inu er Þorbjörn Þórð­ar­son sem áður starf­aði sem frétta­maður Stöðvar 2 en stofn­aði sitt eigið fyr­ir­tæki um almanna­tengsl og lög­manna­þjón­ustu og samdi við Samherja um þjón­ustu. 

Athygl­is­vert er að umrædd upp­ljóstrun snýr ekki að Namib­íu­mál­inu heldur Seðla­banka­mál­inu sem nú er fyrir dóm­stólum vegna kröfu Samherja um skaða­bætur. Í því máli eru stjórn­endur Samherja sak­aðir um alvar­leg brot og fyr­ir­tækið sektað. Gerð var hús­leit hjá fyr­ir­tæk­inu en mál­inu á hendur Samherja lauk með því að Hæsti­réttur felldi niður sekt­ina. Upp­ljóstr­unin nú er því frá því fyrir átta árum og snýst um 10 ára gamla skýrslu. Sá sem sak­aður er um föls­un­ina er Helgi Seljan frétta­maður sem var lyk­il­maður í upp­ljóstr­unum í mútu­mál­inu í Namibíu. 

Í mynd­bandi sem Samherji deildi í gær er leyni­upp­taka af sam­tali Helga og Jóns Óttars Ólafs­sonar, starfs­manns Samherja, sem hefur unnið að rann­sókn fyr­ir­tæk­is­ins á sjálfu sér. Þar heyr­ist í Helga og Jóni Óttari. 

Frétta­blaðið segir frá því að skýrslan hafi ekki verið á meðal gagna í máli Seðla­bank­ans gegn Samherja á sínum tíma og hafi því ekki haft áhrif þar. Svo virð­ist sem umfjöll­un­inni sé ætlað að eyði­leggja trú­verð­ug­leika Helga Seljan. 

„Það hefur legið fyrir um nokkra hríð að við ætl­uðum að svara þeim ásök­unum sem voru bornar á félagið og starfs­fólk þess. Í apríl á þessu ári stað­festi Verð­lags­stofa skipta­verðs með bréfi til Samherja að það skjal, sem var aðal­heim­ild Kast­ljóss við gerð þáttar um Seðla­banka­málið hinn 27. mars 2012, hefði aldrei verið unnið hjá stofn­un­inni. Þessi svör Verð­lags­stofu stað­festa að Helgi Seljan sagði þjóð­inni ósatt í umræddum þætti því hann vís­aði ítrekað til „skýrslu Verð­lags­stofu skipta­verðs“ í þætt­inum,“ segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, í sam­tali við Frétta­blaðið um til­gang umfjöll­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi