Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vigdís neitar að mæta til sálfræðings

Vigdís neitar að mæta til sálfræðings
Vigdís Hauks­dóttir.

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, hyggst ekki taka þátt í fyr­ir­hug­aðri úttekt sál­fræði­stof­unnar Líf og sál á starfs­um­hverfi í borg­ar­ráði. Hún skorar á Dag B. Egg­erts­son að falla frá henni.

Þetta kemur fram í opnu bréfi hennar til mannauðs­stjóra Reykja­víkur, Lóu Birnu Birg­is­dóttur. Markmið þess­arar úttektar var að „gera mat á starfs­um­hverfi og úttekt á sál­fé­lags­legum þáttum í starfs­um­hverfi starfs­fólks sem kemur reglu­lega fyrir borg­ar­ráð.“

Hér fyrir neðan má lesa tölvu­pósti Vigdísar til Lóu Birnu:

Sæl Lóa Birna.

Sem svar við tölvu­bréfi þínu þá mun ég ekki eiga aðkomu að úttekt þeirri sem Líf og sál ehf. hefur verið falið að fram­kvæma. Ég tel mér það í engu skylt enda er engin heim­ild til staðar í lögum eða reglum til þess að sú úttekt fari fram. Þá vek ég athygli á þeim kröfum sem ég set fram í lok þessa tölvu­bréfs, að fallið verði taf­ar­laust frá þeirri úttekt­ar­vinnu sem boðuð er og mun nú vera hafin. Jafn­framt að hin svo­kall­aða „yfir­stjórn Reykja­víkur“ segi sig taf­ar­laust frá mál­inu sökum van­hæfis að lögum.

Í upp­haf­legu tölvu­bréfi um úttekt­ar­vinn­una sem barst frá Helgu Björk Laxdal 17. ágúst sl. kemur fram að svokölluð „yfir­stjórn Reykja­víkur“ hafi ákveðið að gang­ast fyrir úttekt­inni. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem ég hef aflað mér þá stendur yfir­stjórn þessi saman af borg­ar­stjóra og sviðs­stjórum Reykja­vík­ur­borgar. Ákvörð­unin um að hefja stjórn­sýslu­málið, sem bein­ist að kjörnum full­trúum í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, var ekki tekin af borg­ar­stjórn eða borg­ar­ráði. Ekkert sam­ráð var því haft við kjörna borg­ar­full­trúa, áður en ákvörðun var tekin. Ákvörð­unin var því tekin ein­hliða af emb­ætt­is­mönnum borg­ar­innar. Þegar að úttektin bein­ist að kjörnum full­trúum er vit­an­lega að lögum nauð­syn­legt að ákvörðun um hana sé tekin á réttum og lög­boðnum vett­vangi og af til þess bærum aðila. Emb­ætt­is­menn borg­ar­innar hafa ekki heim­ild að lögum til þess að taka slíkar ákvarð­anir. Ég tel því að ákvörðun „yfir­stjórnar Reykja­víkur“ um að hefja úttekt­ar­vinn­una brjóti því í bága við sveit­ar­stjórn­ar­lög nr. 138/2011.

Ástæða hinnar ólög­mætu úttektar er sam­kvæmt tölvu­bréfi Helgu Bjarkar Laxdal til borg­ar­full­trúa 17. ágúst sl. ábend­ingar til mannauðs- og starfs­um­hverf­is­sviðs Reykja­vík­ur­borgar „um að skoða þurfi starfs­um­hverfi starfs­fólks Reykja­vík­ur­borgar sem situr fundi borg­ar­ráðs eða þarf reglu­lega að taka sæti á fundum borg­ar­ráðs“. Ekki kemur fram hvaða ábend­ingar þetta eru.

Að teknu til­liti til umræðu í fjöl­miðlum sl. vikur og atvika sl. mán­uði og ár tel ég ekki leika vafa á því að raun­veru­leg ástæða að baki úttekt­inni eru umkvart­anir eins af sviðs­stjórum Reykja­vík­ur­borgar í minn garð, þ.e. Helgu Bjargar Ragn­ars­dóttur, skrif­stofu­stjóra skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara. Helga bar fram ein­eltiskvörtun á hendur mér árið 2019 og óskaði um leið eftir skoðun á því hvort ég hefði brotið sveit­ar­stjórn­ar­lög og siða­reglur. Eineltis- og áreitni­steymis ráð­húss/mið­lægrar stjórn­sýslu/rann­sókn­ar­réttur ráð­húss­ins, sem sett var saman til þess að rann­saka málið og m.a. þú áttir sæti í, lauk mál­inu. Um til­kynn­ingar til mín um mála­lok vís­ast til bréfa ein­eltis og áreitni­steymis til mín, dags. 2. des­em­ber 2019 og 23. júní 2020, sem þú und­ir­rit­aðir.

Hin upp­gefna ástæða fyrir úttekt­inni, sbr. fram­an­greint, verður sett í sam­hengi við þetta kvört­un­ar­mál Helgu Bjargar á hendur mér. Það er aug­ljóst að „yfir­stjórn Reykja­víkur“ hefur tekið ákvörðun um að halda áfram stjórn­sýslu­mál­inu gagn­vart mér, þrátt fyrir að því sé form­lega lokið. Emb­ætt­is­menn Reykja­vík­ur­borgar, með borg­ar­stjóra í far­ar­broddi, virð­ast ætla að standa sjálfir fyrir nýrri rann­sókn á sama máli, núna með milli­göngu þriðja aðila, Lífs og sálar ehf. Sá aðili er í engu hlut­laus úttekt­ar­að­ili, þar sem hann er ráð­inn til starfans af umræddri yfir­stjórn og er um þóknun sína háður greiðslum frá þeim aðilum sem úttekt­ina pantar, af hálfu Reykja­vík­ur­borgar. Eins og gefur að skilja brýtur það gegn lögum að hefja stjórn­sýslu­mál að nýju, sem lokið hefur verið end­an­lega við og til­kynnt þar um, sbr. m.a. ákvæði sveit­ar­stjórn­ar­laga, stjórn­sýslu­laga og meg­in­reglur sem gilda í stjórn­sýslu­rétti. Ákvörðun „yfir­stjórnar Reykja­víkur“ er því einnig ólög­mæt af þessum sökum. Engin laga­skil­yrði eru fyrir hendi til þess að end­ur­upp­taka stjórn­sýslu­málið sem lokið var við.

Fyrir utan þetta þá sé ég ekki að nein laga­heim­ild sé að öðru leyti fyrir því að „yfir­stjórn Reykja­víkur“ taki ákvörðun um hina boð­uðu úttekt. Í erindi Helgu Bjarkar Laxdal þann 17. ágúst sl. er vísað til laga nr. 46/1980. Ég fæ ekki séð að úttekt sem þessi fái stoð í þeim lögum. Að því verður að huga að eft­ir­lits­að­il­inn sam­kvæmt sömu lögum, Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins, hefur mér vit­an­lega ekki kraf­ist slíkrar úttektar.

Ég minni einnig á að úttekt sem þessi, sem bein­ist gegn kjörnum borg­ar­full­trúum, brýtur í bága við sveit­ar­stjórn­ar­lög, m.a. ákvæði 25. gr. um sjálf­stæði sveit­ar­stjórn­ar­manna í störfum. Þar segir:“ Sveit­ar­stjórn­ar­menn eru sjálf­stæðir í störfum sínum. Þeir eru ein­ungis bundnir af lögum og eigin sann­fær­ingu um afstöðu til ein­stakra mála.“ Með ákvörðun emb­ætt­is­manna í „yfir­stjórn Reykja­víkur“ eru þeir farnir ein­hliða að vega að því sjálf­stæði sem sveit­ar­stjórn­ar­mönnum ber að njóta lögum sam­kvæmt. Samkvæmt 29. gr. gilda sér­stakar siða­reglur fyrir sveit­ar­stjórn, sem sveit­ar­stjórn­ar­mönnum ber að starfa eftir. Það er sá vett­vangur sem unnt er að beina kvört­un­ar­málum á hendur borg­ar­full­trúum í. Eins og ég nefndi fyrr í tölvu­pósti þessum hefur slíku kvört­un­ar­máli á hendur mér vegna sömu ávirð­inga þegar verið lokið. Þá geta ein­stakir starfs­menn eða emb­ætt­is­menn innan sveit­ar­fé­laga ekki tekið ákvörðun um rann­sókn sem bein­ist að kjörnum sveit­ar­stjórn­ar­mönnum. Enginn grund­völlur er því sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum til þess að fara fram með mál af þessu tagi.

Eins og áður segir sam­anstendur „yfir­stjórn Reykja­víkur“ af borg­ar­stjóra og sviðs­stjórum Reykja­vík­ur­borgar. Ég tel aug­ljóst að þeir aðilar séu van­hæfir sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum nr. 37/1993 til þess að taka ákvörðun um úttekt­ar­vinnu þessa, ann­ast máls­með­ferð hennar eða fela þriðja aðila þá rann­sókn­ar­vinnu. Sömu­leiðis verður Líf og sál ehf. jafn van­hæft til þess að vinna úttekt sem fyr­ir­tæk­inu hefur verið falin af van­hæfum aðila sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum. Ég vísa til 4.-6. tl. 3. gr. stjórn­sýslu­laga hvað þetta varðar. Fyrir það fyrsta er borg­ar­stjóri, sem ákvörð­un­ina tekur ein­hliða ásamt emb­ætt­is­mönnum, póli­tískur and­stæð­ingur und­ir­rit­aðrar í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, en er í þessu máli að beita stjórn­sýslu­valdi gagn­vart mér. Umrædd „yfir­stjórn Reykja­víkur“ hefur veru­legra hags­muna að gæta hvað mál þetta varðar, enda nánir sam­starfs­menn Helgu Bjargar Ragn­ars­dóttur, skrif­stofu­stjóra, sem lagði fram þá kvörtun á hendur mér sem úttekt­ar­vinna þessi bygg­ist á. Í yfir­lýs­ing­ar­blaði sem barst frá Lífi og sál ehf. kemur fram að um athug­un­ina hafi beðið sviðs­stjóri mannauðs og starfs­um­hverf­is­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, þ.e. þú Lóa Birna. Þú hefur áður átt afskipti af mál­inu, þ.e. kvört­un­ar­máli Helgu Bjargar á hendur mér sem úttekt­ar­vinnan bygg­ist aug­ljós­lega á, þegar þú áttir sæti í ein­eltis- og áreitni­steymi því sem rann­sak­aði málið. Þegar af þeirri ástæðu ertu van­hæf skv. 4. tl. 3. gr. stjórn­sýslu­laga til þess að fara með málið nú. Vanhæfi „yfir­stjórnar Reykja­víkur“ leiðir að lögum til þess að málið og máls­með­ferðin er ógild.

Ákvörð­unin og máls­með­ferðin er sömu­leiðis ólög­mæt þar sem hún brýtur fyr­ir­sjá­an­lega gegn lögum og reglum um per­sónu­vernd. Þau gögn sem mér hafa borist vegna máls­ins nú benda ótví­rætt til þess að per­sónu­upp­lýs­ingum verði safnað saman og vinnsla per­sónu­upp­lýs­inga fari fram án laga­stoðar. Í engu hefur verið upp­lýst um sam­þykki Per­sónu­verndar á vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga með þeim hætti sem áformað er við þessa úttekt. Í yfir­lýs­ingu sem ég fékk senda frá Lífi og sál ehf. er stað­fest sér­stak­lega að um vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga verði að ræða. Er það frá­leitt heim­ilt að slík vinnsla geti byggst ein­göngu á sam­þykki þeirra sem eiga við­tal við Líf og sál ehf., eins og yfir­lýs­ingin útheimtir. Þá tel ég að það brjóti í bága við lög að opin­ber aðili, eins og Reykja­vík­ur­borg er, gang­ist fyrir úttekt sem þess­ari en án þess að við­kom­andi aðilar og þeir sem hún bein­ist að fái að kynna sér efni skýrsl­unnar eða fái hana afhenta í heild sinni.

Til við­bótar við þetta þá tel ég að yfir­lýs­ing sú sem mér var send frá Líf og sál ehf. stand­ist ekki skoðun. Sam­þykkis Per­sónu­verndar hefur ekki verið aflað vegna fyr­ir­hug­aðrar með­ferðar og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga við úttekt, sbr. fram­an­greint. Kjörnir borg­ar­full­trúar, sem þó er ætl­ast til þess að taki þátt í úttekt­inni, fá ekki að sjá úttekt­ina eða leggja mat á hana. Velta má fyrir sér í hvaða til­gangi þá er verið að gera úttekt­ina og hvort að Líf og sál ehf. eigi upp á sitt eins­dæmi að leggja fram helstu nið­ur­stöður úttekt­ar­innar án þess að við­kom­andi aðilar fái tæki­færi til þess að leggja mat á það hvort sú nið­ur­staða fái stað­ist.

Ég skora því á þá sem standa fyrir þess­ari úttekt að falla nú þegar frá henni og/eða segja sig taf­ar­laust frá mál­inu vegna van­hæfis skv. stjórn­sýslu­lögum. Verði ekki orðið við þeirri kröfu þá áskil ég mér rétt til þess að leita með málið til við­eig­andi eft­ir­lits­að­ila, eftir atvikum með kæru til sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins, sbr. kæru­heim­ild í sveit­ar­stjórn­ar­lögum, með erindi til Per­sónu­verndar, með kvörtun til umboðs­manns Alþingis eða með höfðun dóms­máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi