Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elísa Sif sökuð um vændi – „Lygi sem gæti eyðilagt líf mitt“

Elísa Sif sökuð um vændi – „Lygi sem gæti eyðilagt líf mitt“

Nemandi við grunn­skóla­kenn­ara­fræði við Háskóla Íslands, Elísa Sif Rann­veig­ar­dóttir, er sökuð um að selja sig á net­inu. Mynd af henni var deilt á nafn­lausri umræðu­síðu, Chanslut, og þar full­yrt að hún stund­aði vændi í gegnum vef­svæðið OnlyFans. Elísa Sif vill hreinsa mann­orð sitt og hefur áhyggjur af því að lygarnar hafi áhrif á starfs­frama sinn. 

„Þetta hefur verið mjög óþægi­legt og fólk hefur mikið áreitt mig. Að lenda í þessu er hrika­legt. Ég er í námi í grunn­skóla­kenn­ara­fræðum og þetta er ekk­ert voð­lega jákvætt af þeim sökum,“ segir Elísa Sif í sam­tali við Mannlíf.

Elísa Sif vakti máls á þessu í færslu á Facebook og biður hún net­verja um að deila henni sem víð­ast til að útrýma lyg­inni. „Þessi síða hefur verið til vand­ræða í mörg ár þar sem fullt af stelpum lenda í því að ein­hverjir aðilar biðja um og/eða pósta nektarmyndum af þeim þangað inn. Síðan er 100 pró­sent nafn­laus, það þarf ekki einu sinni að gera sér aðgang að síð­unni svo hver sem er getur póstað inn­leggi og það er eng­inn leið til þess að til­kynna, taka niður eða finna út hver póstaði mynd­inni/inn­legg­inu,“ segir Elísa Sif. 

Ég er ekki að selja mig og hef aldrei aug­lýst það eða sam­þykkt að hitta einn né neinn gegn greiðslu

Kenn­ara­nem­inn segir ein­hvern nafn­lausan hafa póstað af sér mynd fyrir þremur dögum síðan inn á Chanslut og þar full­yrt að hún væri að selja sig. Hún á von á því að leita til lög­regl­unnar vegna æru­meið­inga. „Þetta hefur dreifst eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn og er fólk byrjað að áreita mig stans­laust í gegnum sam­skipta­miðl­ana og einnig hringir fólk beint í sím­ann til mín og hótar að mæta heim til mín eða í vinn­una mína „svo ég gæti ekki sagt nei“.“

Elísa Sif Rann­veig­ar­dóttir

„Ég vil hafa það á krist­al­tæru að þetta er ekk­ert nema lygi, ég er ekki að selja mig og hef aldrei aug­lýst það eða sam­þykkt að hitta einn né neinn gegn greiðslu. Ég er ekki að stunda vændi og myndi á annað borð aldrei nokkurn tím­ann gera það,“ segir Elísa Sif sem seg­ist vonað að lyga­sagan myndi ekki ná slíkri útbreiðslu eins og raun ber vitni. „Ég var mikið að von­ast til að þessi lyga­saga myndi bara deyja út áður en hún festi rótum en ég hef verið að fá skila­boð frá vinum mínum og kunn­ingjum sem búa all­staðar á land­inu um að þau hafa heyrt þetta frá öðru fólki svo ég ákvað að segja það opin­ber­lega fyrir alla að þetta er ekki satt.“

Eins og áður sagði er stundar Elísa Sif nám við Háskóla Íslands og sinnir tveimur störfum með­fram nám­inu. „Ég er að læra grunn­skóla­kenn­ara­fræði við Háskóla Íslands og svona gróf lygi gæti hrein­lega eyði­lagt líf mitt seinna meir og tölum ekki um hvað þessi lygi hefur nú þegar skemmt mann­orð mitt mikið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi