Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mikilvægt að halda í mennskuna

Mikilvægt að halda í mennskuna
Guð­mundur Gunn­laugs­son arki­tekt.

Guð­mundur Gunn­laugs­son arki­tekt og eig­andi Teikni­stof­unnar Archus segir að mann­eskju­leg sjón­ar­mið eigi að vera í for­grunni þegar verið er að byggja á Íslandi. Þétting byggðar sé af hinu góða en með ákveðnum fyr­ir­vara; ekki megi byggja of þétt eða of hátt. Guð­mundur er á meðal hand­hafa umhverf­is­við­ur­kenn­ingar umhverfis- og sam­göngu­nefndar Kópavogs í ár.

„Eigendur Dal­ar­þings 23 vildu fal­legt einnar hæðar fjöl­skyldu­hús með fag­urt útsýni yfir Elliða­vatn. Ég varð við því með að hanna hús með stofum og eld­húsi sem snúa að vat­inu og er búið gluggum sem eru margir hverjir gólf­síðir,“ segir Guð­mundur.

„Það er afskap­lega gaman að fá svona við­ur­kenn­ingar. Það gleður alltaf,“ segir Guð­mundur Gunn­laugs­son, arki­tekt og eig­andi Teikni­stof­unnar Archus, sem á dög­unum veitti við­töku umhverf­is­við­ur­kenn­ingu umhverfis- og sam­göngu­nefndar Kópavogs 2020.

Við­ur­kenn­ing­arnar hafa verið veittar frá árinu 1964 en með núver­andi fyr­ir­komu­lagi frá 1995 og hafa ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki og félaga­sam­tök fengið þær í ýmsum flokkum, svo sem umhirðu húss og lóðar, end­ur­gerð hús­næðis, hönnun, fram­lag til umhverfis og sam­fé­lags svo dæmi séu tekin. Fimm við­ur­kenn­ingar voru afhentar í ár. Hlaut Guð­mundur við­ur­kenn­ingu ann­ars vegar fyrir hönnun á ein­býl­is­húsi við Dalaþing 23 og hins vegar fyrir götu árs­ins, Lund við Nýbýla­veg, en Teikni­stofan Archus og Gunnar Páll Krist­ins­son arki­tekt og stofa hans, Rýma Arkiktektar, hönn­uðu þar í sam­ein­ingu 410 íbúðir í fjöl­býli; rað og par­hús.

„Með þessu eru umhverf­is­við­ur­kenn­ing­arnar sem við höfum fengið frá Kópa­vogsbæ orðnar ell­efu tals­ins, ef mér reikn­ast rétt til, sem er kannski stað­fest­ing á að við séum að gera góða hluti,“ segir Guð­mundur sposkur.

Eins og fallegt Kjarvalsmálverk

Spurður hversu stórt hlut­verk umhverf­is­sjón­ar­mið hafi spilað í hönnun hús­ana segir hann að umhverfið hafi alltaf mikið vægi í hönnun Archus. „Ég legg alltaf áherslu á að bygg­ingar falli vel að umhverf­inu, byrja að pæla í útsýn­inu og sól­ar­áttum og vinn meðal ann­ars út frá því,“ útskýrir hann. „Sem dæmi vildu eig­endur Dal­ar­þings 23 fal­legt einnar hæðar fjöl­skyldu­hús með fag­urt útsýni yfir Elliða­vatn. Ég varð við því með að hanna hús með stofum og eld­húsi sem snúa að vat­inu og er búið gluggum sem eru flestir hverjir gólf­síðir. Þannig tengdi ég nátt­úr­una inn í húsið. Útsýnið þarna er auð­vitað alveg magnað, eins og fal­leg­asta Kjar­vals­mál­verk.“

Gamla skipulagið vont

Guð­mundur seg­ist líka alltaf hafa íslensk veðr­áttu í huga. „Ég og við á stof­unni hönnum hús alltaf með hlið­sjón af veðr­átt­unni, með það fyrir augum að fá það besta úr henni; skjól­góðar ver­andir í suður og vestur. Sem dæmi teiknum við oft góð skyggni yfir ver­andir og þegar við hönnum fjöl­býl­is­hús leggjum við mikið upp úr stórum svölum og gerum ráð fyrir sval­ar­skjóli svo hægt sé að nota sval­irnar sem sól­stofu, það lengir svo mikið sumrin,“ bendir hann á.

„Það er um að gera að nýta betur borg­ar­lands­lagið en var gert í þessu gamla amer­íska borg­ar­skipu­lagi sem ein­kenndi Reykja­vík að hluta en við þurfum samt að passa upp á að hleypa birtu til fólks og að það hafi pláss.“

„Mér finnst það oft hafa gleymst síð­ustu ár að við búum á Íslandi með lága sól­ar­stöðu meg­in­hluta árs­ins. Sumu hefur bara hrakað í nútíma­hönnun. Lóða­eig­endur og bygg­inga­að­ilar eru til dæmis farnir að ráða of miklu varð­andi skipu­lag og hafa sval­irnar stundum ekki nema þrjá til fjóra fer­metra, sem mér finnst of lítið, og byggja of þétt, sem rýrir gæði íbúa. Ég er þó ekki að gagn­rýna þétt­ingu byggðar, alls ekki, því skipu­lagið sem við höfum unnið með í gegnum tíð­ina er vont, stak­stæðar blokkir sem magna upp vind og tún umhverfis þar sem maður sér aldrei börn að leik. Það er því um að gera að nýta betur borg­ar­lands­lagið en var gert í þessu gamla amer­íska borg­ar­skipu­lagi sem ein­kenndi Reykja­vík að hluta en við þurfum samt að passa upp á að hleypa birtu til fólks og að það hafi pláss. Við skulum ekki gleyma því að við erum á norð­lægum slóðum og sólin og dags­birta skiptir miklu máli fyrir okkar and­lega líðan og heil­brigði.

Mér finnst dásam­legt að hanna inn í skipu­lag kollega míns frá París; meist­ara Björns Ólafs eins og Kársnes og Sjáland í Garðabæ. Hann hefur fært okkur ný við­mið, þétta byggđ en afar mann­eskju­lega.“

Frábært framtak

Guðmundi segir að honum finn­ist líka mik­il­vægt að bjóða „nettar“ íbúðir, eins og hann orðar það, alveg niður í 50 fer­metra, í bland við stærri. Hafa fjöl­breytni og sam­fé­lag mis­mun­andi ald­urs­hópa. „Við þurfum að byggja fleiri litlar íbúðir, eins og við erum til dæmis búin að hanna við Grens­ás­veg 1, en þar erum við að hanna 183 íbúðir á þétt­ing­ar­reit. Íbúðir sem henta vel sem leigu­í­búðir og til fyrstu íbúð­ar­kaupa. Þetta er allt gott í bland, leigu­í­búðir, félags­í­búðir, stórar íbúðir og nettar. Síðast en ekki síst skiptir máli að skapa umhverfi sem er skemmti­legt og mann­eskju­legt, það er hið mik­il­væg­asta,“ segir Guð­mundur og notar tæki­færið og hrósar Kópa­vogsbæ fyrir að veita árlega umhverf­is­við­ur­kenn­ingu.

Á myndinnu eru Andri Steinn Hilm­ars­son for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar, Guð­mundur og Ármann kr. Ólafsson bæj­ar­stjóri.

„Þetta er frá­bært fram­tak og fleiri sem mættu taka sér það til fyr­ir­myndar, til dæmis Reykja­vík­ur­borg sem ég minn­ist ekki að veiti sam­bæri­lega við­ur­kenn­ingu. Þetta er nefni­lega svo hvetj­andi og jákvætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni