Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna um tíðablóðið hjá Icelandair: „Þá skoðun hef ég bæði full og edrú“

Sólveig Anna um tíðablóðið hjá Icelandair: „Þá skoðun hef ég bæði full og edrú“
| Mynd: / Hallur Karlsson

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist hafa gleymt sér og grín­ast aðeins þegar hún fjall­aði um mál­efni Icelandair og hvatti kven­kyns starfs­menn flug­fé­lags­ins til að skrifa undir hjá félag­inu með tíða­blóði sínu. Hún segir fjöl­miðla­menn vera ofur­við­kvæma.

Þetta segir hún í færslu á Facebook. Sólveigu finnst atburð­ar­rásin við björgun félags­ins síð­ustu mán­uði vera við­bjóðs­lega þar sem fram­koma Boga Nils Boga­sonar for­stjóra í garð flug­freyja ber hæst. Hér að neðan má lesa færslu verka­lýðs­for­ingj­ans í heild sinni.

Á föstu­dags­kvöldið sá ég frétt um að búið væri að gera ein­stak­lingum svoköll­uðum „kleift að kaupa hluta­bréf í Icelandair fyrir 100 þús­und kr. kjósi þeir að gera svo“.

Ég grín­aði á Facebook í kjöl­far lest­urs­ins, eins og vinnu­afls-kona sem á ekk­ert að selja nema aðgang­inn að vinnu­afl­inu sínu, sem veit að í sam­fé­lags­sátt­mál­anum stendur að vinnu­aflið hennar sé svo lít­ils virði að hún skuli aldrei láta sig dreyma um að upp­lifa fjár­hags­legt frelsi eða áhyggju­lausan dag. Ég gleymdi mér og grín­aði eins og vinnu­konu-kona sem vann erf­ið­is­vinnu, not­aði lík­amann sinn í allt sem hún gerði, líka þegar hún var á túr, þegar það var svo mikið að gera í vinn­unni að hún komst ekki til að skipta um dömu­bindi og lenti í vand­ræðum sem leyst voru með því að binda bara peys­una um mittið og flissa. Ég grín­aði eins og vinnu­konu-konan sem átti ekki krónu í mán­að­ar­lok og þurfti samt að kaupa dömu­bindi, túrtappa og Íbúfen, konan sem reidd­ist eigin móð­ur­lífi fyrir sjálf­stæðan vilja. Ég grín­aði eins og kona sem hefur lært að ef þú ætlar að þola allt hel­vítis bullið sem arð­ráns­kerfið í sam­vinnu við hin gömlu og góðu gildi feðra­veld­is­ins finnur uppá án afláts, án þess að fara á bömmer sem end­ist þér lífið á enda er best að grína mikið og oft. Ég grín­aði eins og kona sem getur ekki annað þegar hún horf­ist í augu við að rík­is­á­byrgðin er komin til að vera fyrir Boga og eig­endur Íslands en engin ætlar að taka ábyrgð á því að hót­el­þernan sem svitn­aði fyrir hag­vöxt­inn á núna svo lítið að hún þarf að leita til útsend­ara Guðs föður heilags anda á Jörðinni til að fá hjá þeim mat til að borða.

Á laug­ar­dag­inn sá ég svo að bæði DV og Vísir höfðu slegið grín­inu mínu upp sem frétt („Sólveig reið og bitur“) og að ýmsir not­uðu tæki­færið til að viðra þá skoðun að ég væri geð­veik og ógeðs­leg, heimsk og bjáni, full og veru­leikafirrt.

Og þá hugs­aði ég að það væri merki­legt að orðið tíða­blóð væri í alvöru svo stuð­andi að fjólmiðla­menn upp­lifðu notkun á því sem til­efni til frétta­skrifa. Og ég hugs­aði að kannski væri það vegna þess að ég er komin af léttasta skeiði, „það fellur hratt á hana“, og ógeðs­legt þegar konur sem eru ekki lengur ungar tala um túr.

Svo hugs­aði ég að ég hefði auð­vitað getað sagt margt annað en að atvinnu­lausar konur ættu að skrifa undir samn­ing við strák­ana hjá Icelandair með tíða­blóði, svo að þær gætu fengið hærri atvinnu­leys­is­bætur. Ég hefði getað sagt ýmis­legt um allt það rugl sem við­gengst allt í kringum okkur, á föstu­dags­kvöldi hefði verið hægt að finna margt til að gera veru­legar athuga­semdir við, margt annað en þessa birt­ing­ar­mynd
örvæt­ingar auð­valds­ins sem fréttin af Boga og hund­rað­þús­und kall­inum er.

Ég hefði getað byrjað á að segja: Langt er nú seilst ofaní vasa vinnu­aflsins. Ekki nægir að ætla sér að fá líf­eyr­is­sjóð­ina okkar til að halda flagg­skipi íslensks kap­ít­al­isma á sigl­ingu, það á að reyna að lokka fólk til að setja sínu fáu aura beint í braskið. Fyrr má nú aldeilis vera hvað menn eru ófor­skamm­aðir.

Svo hefði ég getað haldið áfram á föstu­dags-kvölds-yfir­ferð um íslenskt sam­fé­lag.

Ég hefði getað sagt: Fjár­mála­ráð­herra rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur hefur fengið sér sér­stakan Hag­fræð­inga­hóp til senda skýr skila­boð til eig­enda atvinnu­tækj­anna og fjár­magns­ins um að „the best and the brightest“ séu byrjuð „að skoða enn betur þessa hag­rænu vinkla sem gefa okkur vís­bend­ingar um hvaða kraftar eru að tog­ast á við sótt­varna­að­gerð­irnar“ svo hægt verði að átta sig á hvar skuli hag­ræða og einka­væða, hvar skuli frelsa úr fjötrum arð­bær verk­efni sem ríkið hefur haft á sinni könnu, hvernig hægt verði að stilla kerfið svo hægt sé að takast á við það þegar „declining rates of profit“ banka upp á með offorsi og dólg­slátum líkt og nú ger­ist í ver­öld­inni. Mörgu má kvíða en einna helst nið­ur­stöðum Hag­ræð­ing­ar­hóps­ins hans Bjarna.

Ég hefði getað sagt: Það er þyngra en tárum taki að verða vitni að því að flokkur sem hefur sótt fjölda atkvæða til kvenna sem upp­lifa djúpa og inni­lega löngun í raun­veru­legt jafn­rétti, á ekki til einn tals­mann, ekki einn, sem kemur fram í afdrátt­ar­lausri sam­stöðu með þeim atvinnu­lausu konum sem nú eiga ekki einu sinni nægi­lega margar krónur til að sjá fyrir sér og börnum sínum.

Ég hefði getað sagt: Það er ótrú­legt að verða vitni að því að flokkur sem seg­ist lifa eftir gildum kvenna­bárátt­unnar skuli fara fyrir rík­is­stjórn sem setur lög á Alþingi um rík­is­á­byrgð til fyr­ir­tækis sem hefur gerst upp­víst að einni alvar­leg­ustu aðför að lögum þeim er gilda á Íslandi um sam­skipti kap­ít­alista og vinnu­afls, með ógeðs­legri kúg­unar-árás á kvenna­stétt.

Ég hefði getað sagt: Mikil er skömm þeirra sem bera ábyrgð á þeirri sam­fé­lags­gerð sem leyfir ástand eins og það sem nú ríkir; konan sem kynnti ofn­inn sem knúði vél­ina sem snéri hjól­unum sem skópu hag­vöxt­inn, sú sem aðeins á sitt dýra­mæta vinnu­afl til að lifa af, hefur verið send í betli-ferð, send af stað til að biðja um hjálp, biðja um mat, um 5.000 krónur, skóla­tösku fyrir barnið sitt, á meðan að milljón-krónu menn­irnir fá stimplað plagg frá stjórn­völdum, svo að þeir fái áfram að stýra skip­inu, án stefnu, án átta­vita. Því hvers eiga þeir eig­in­lega að gjalda: „Þetta er víst engum að kenna“.

Ég hefði getað sagt margt, og flest án þess að minn­ast einu orði á tíða­blóð.

En mig lang­aði að grína á föstu­dags­kvöldi og svo ég segi satt frá þá er stað­reyndin sú að mér finnst bók­staf­lega ekk­ert að því að segja að kannski ættu atvinnu­lausar konur að nota tíða­blóðið sitt til að skrifa undir samn­ing við Icelandiar svo að þær fái hærri atvinnu­leys­is­bætur. Allavega ekki í sam­an­burði við þá við­bjóðs­legu atburða­rás sem ég hef fylgst með und­an­farna mán­uði, í sam­skiptum eig­enda Íslands við kven-vinnu­aflið. Og þá skoðun hef ég bæði full og edrú, á túr eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi