Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hreinn lifði af hrottalega líkamsárás í Hlíðunum: „Er svo þakklátur að hafa ekki dáið frá barninu“

Hreinn lifði af hrottalega líkamsárás í Hlíðunum: „Er svo þakklátur að hafa ekki dáið frá barninu“
Hreinn var ítrekað lam­inn í höf­uðið með kúbeini og telur sig ótrú­lega hepp­inn að hafa sloppið lif­andi. Mynd / Aðsend

Hreinn K. Gott­skálks­son er hrika­lega þakk­látur fyrir að vera á lífi í dag. Fjórir ofbeld­is­menn réð­ust inn á heim­ili hans í fyrra­kvöld og marg­börðu hann með flöskum og kúbeinum. Mesta mildi þykir að höf­uð­kúpa Hreins hafi ekki brotnað og er hann þakk­látur því að hafa tæki­færi til að upp­lifa fæð­ingu barns síns sem vænt­an­legt er á næst­unni.

„Ég er ansi sjokker­aður eftir þetta og lemstr­aður. Sem betur fer virð­ist ég ekki verða fyrir var­an­legum meiðslum og sem betur fer er ég ekki ekki höf­uð­kúpu­brot­inn. Ég fékk auð­vitað heila­hrist­ing þannig að ég hef sofið mikið eftir þetta,“ segir Hreinn í sam­tali við Mannlíf.

Ótrúleg mildi þykir að Hreinn hafi ekki höf­uð­kúpu­brotnað eftir kúbeinin. Mynd / Aðsend

Máls­at­vikum lýsir Hreinn þannig að í fyrstu hafi verið barið harka­lega að dyrum heima hjá honum, en svo skömmu síðar var rúða brotin þannig að inn rudd­ust fjórir ofbeld­is­menn. Honum þykir mjög sárt að vita til þess að litli bróðir sinn sé einn árás­armann­anna. „Þeir draga mig út og berja mig ítrekað í höf­uðið, hrygg­inn og hand­legg­inn með kúbeini. Það hefði mjög auð­veld­lega getað farið verr og ég hefði auð­veld­lega getað dáið í árásinni,“ segir Hreinn.

Eitt af vitn­unum að árásinni ræddi málið við Mannlíf. Við­kom­andi vill ekki láta nafn síns getið, en vitnið sá árás­ina úr stuttri fjar­lægð. „Ég heyrði þá banka en svo rudd­ust þeir allir inn. Þeir ráð­ast allir á hann um leið, fjórir vopn­aðir gegn einum. Ég trúði þessu varla. Þeir voru allir vopn­aðir á ein­hvern hátt, með gler­flöskur og kúbein, og lúbörðu hann fyrir framan kær­ustu hans. Það er magnað að hann hafi verið með rænu eftir árás­ina. Hann var allur út í blóði með risa­stór sár út um allt,“ segir vitnið.

Fjórir ofbeld­is­menn brut­ust inn til Hreins og réð­ust á hann. Mynd / Aðsend.

Þrír árás­armann­anna voru hand­teknir fljót­lega eftir árás­ina og sitja nú í varð­haldi lög­reglu. Hreinn telur að það hafi orðið honum til bjargar að bæði hafi nágranni sinn hrópað á árás­ar­menn­ina og einnig ófrísk kærasta Hreins. Það varð ein­hvern veg­inn til þess að árás­ar­menn­irnir hættu á end­anum segir hann. „Það bjarg­aði lífi mínu. Á meðan þetta átti sér stað var ég á svo miklu adrena­líni að ég átt­aði mig ekki á hætt­unni fyrr en eftir á og hvað þessi árás var fólsku­leg. Bróðir minn var einn árás­armann­anna og það er sárt því ég hef alltaf verið góður við hann og reynt að hjálpa honum. En ég neita að trúa því að hann hafi gert þetta alls­gáður. Ég get ekki sagt annað en að ég sé þakk­látur fyrir að vera á lífi. Kærastan mín sem er ólétt var alveg harmi slegin,“ segir Hreinn.

Vitnið horfði á eftir árás­ar­mönn­unum hlaupa í burtu frá ofbeld­is­verk­inu áður en lög­reglan kom á stað­inn. Við­bragðs­tími hennar er eitt­hvað sem vitnið setur spurn­inga­merki við. Aðspurður telur við­kom­andi að það hafi verið hátt í 10 manns vitni að árásinni. „Þegar hringt var í 112 tók alveg 2-3 mín­útur að lýsa því hvað gerð­ist og þá var gefið sam­band við lög­regl­una þar sem farið var í gegnum það sama. Ég helst að það sé alveg hægt að drepa mann á svona tíma. Ótrúlegt miðað við ástandið á mann­inum að hann hafi verið með rænu eða bara yfir­höfuð lif­andi,“ segir vitnið.

Finna mátti blóð­slettur um alla íbúð eftir hina hrotta­legu árás. Hreinn er feg­inn að vera á lífi í dag. Mynd / Aðsend
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi