Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendinga þyrstir í ævintýri

Íslendinga þyrstir í ævintýri
Mynd / Magical Iceland

„Lands­menn taka fram­tak­inu vel, þeir eru reiðu­búnir að upp­lifa og njóta,“ segir mat­ar­leið­sögu­maður sem býður upp á nýja, skipu­lagða mat­ar­túra fyrir Íslend­inga. Hann segir að upp­haf­lega ætl­unin hafi verið að fara af stað með sæl­kera­ferð­irnar snemma á árinu en því hafi verið slegið á frest vegna COVID-19. Nú horfi til betra vegar og þess vegna sé um að gera að gleyma sér í ein­hverju skemmti­legu og gleðj­ast.

„Nei, alls ekki. Við erum nátt­úru­lega öll búin að vera svo­lítið inni­lokuð og föst hérna heima svo lengi og viljum þess vegna fara að lyfta okkur aðeins upp, nú er tæki­færið,“ segir mat­ar­leið­sögu­mað­ur­inn Ýmir Björgvin Athúrs­son, spurður hvort það sé ekki eig­in­lega óðs manns æði að ætla að fara að bjóða upp á sæl­kera­ferðir á Íslandi þegar ferða­þjón­ustan er búin að vera í hálf­gerðu lama­sessi.

„Þú sérð það að við erum bara til­tölu­lega nýfarin af stað og það er strax bókað í átta ferðir og margar fyr­ir­spurnir búnar að ber­ast. Fólk er fer­lega ánægt með ferð­irnar og það er farið að spyrj­ast hratt út.“

„Pabbi bjó til þetta orð, sæl­kera­sveimur, sem lýsir nokkuð vel hug­mynd­inni að baki ferð­unum þar sem sæl­kerar sveima um á milli veit­inga­staða, smakka, borða, drekka og njóta.“

Sæl­kera­sveimur er yfir­skrift ferð­anna og segir Ýmir að faðir hans Arthúr Björgvin Bollason eigi heið­ur­inn að nafn­gift­inni. „Pabbi bjó til þetta orð, sæl­kera­sveimur, sem lýsir nokkuð vel hug­mynd­inni að baki ferð­unum þar sem sæl­kerar sveima um á milli veit­inga­staða, smakka, borða, drekka og njóta með öllum skiln­ing­ar­vitum. Ja, reyndar höfum við ákveðið að stilla snert­ingu aðeins í hóf,“ segir hann og hlær, „en þetta verður gaman!“

Mynd / Magical Iceland

Gourmet-guide Íslands

Það eru Ýmir, eig­in­kona hans Hrefna Óska Bene­dikts­dóttir og Þóra Hrund Guð­brands­dóttir sem standa að ferð­unum. Ýmir og Hrefna eiga og reka ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Magical Iceland, sem hefur um ára­bil boðið upp á sæl­kera­ferðir eða gourmet-ferðir með hágæða íslensku hrá­efni aðal­lega fyrir erlenda ferða­menn, á meðan Þóra hefur víð­tæka reynslu af því að skipu­leggja alls kyns við­burði og ferðir fyrir íslensk fyr­ir­tæki.

„Ég er búinn að vera í ferða­þjón­ustu í 10 ár og er stundum kall­aður gourmet gui­dinn á Íslandi,“ segir Ýmir og brosir út í annað. „Við Hrefna konan mín höfum slegið upp alls konar veislum fyrir útlend­inga í gegnum tíð­ina og boðið upp á prí­vat sæl­kera­ferðir og Þóra er með mikla reynslu af því að sjá um árs­há­tíðir, hvata­ferðir og ýmsa stóra við­burði fyrir íslensk fyr­ir­tæki og félaga­sam­tök. Með þessum nýju ferðum viljum við færa gourment-túrana sem erlendir ferða­menna hafa sótt mikið í til Íslend­inga.“

Hann játar að það hafi reyndar komið sér skemmti­lega á óvart hvað lands­menn séu áhuga­samir um ferð­irnar. Við­tök­urnar hafi satt að segja farið fram úr björt­ustu vonum. „Ég er afskap­lega glaður með við­brögðin og svo hefur komið mér á óvart hvað Íslend­ingar eru áhuga­samir um allt og alla í þessum ferðum. Þeir pæla ótrú­lega mikið í hlut­unum, til dæmis hvernig við pörum saman mat og drykk og svo eru þeir for­vitn­ari en útlend­ing­arnir um eig­endur og rekstr­ar­að­ila stað­anna sem við heim­sækjum. Ég er líka svaka­lega ánægður með hvað Íslend­ingar kunna vel að meta það sem er á boðstólum í þessum ferðum, þeir eru rosa­lega þakk­látir.“

Mynd / Magical Iceland

Ólmir í að upplifa og njóta

Þrenns­konar útgáfur af ferð­unum eru í boði að sögn Ýmis; Sæl­kera­sveimur – Reykja­vík, -Reykja­nes og – Vesta­manna­eyjar. „Á hverjum stað röltum við á milli þriggja veit­inga­staða á þremur klukku­stundum og lendum í ýmsum óvæntum og skemmti­legum upp­á­komum á leið­inni. Við hreyfum okkur lítið en njótum því mun meira þannig að allir geta tekið þátt, hvort sem þú á erfitt með gang eða ert algjör göngu­garpur,“ segir hann glað­lega og bætir við að vegna COVID-19 verði passað verður upp á smit­varnir sam­kvæmt fyr­ir­mælum almanna­varna. „Við tökum t.d. ekki við stærri hópum en 25 manns, og reyndar heldur ekki færri en 10.“

„Á hverjum stað röltum við á milli þriggja veit­inga­staða á þremur klukku­stundum og lendum í ýmsum óvæntum og skemmti­legum upp­á­komum á leið­inni.“

Ýmir segir að upp­haf­lega ætl­unin hafi verið að fara af stað með sæl­kera­ferð­irnar snemma á árinu en því hafi verið slegið á frest vegna COVID-19. „Já, við vorum til­búin með þær í mars en þurftum að bíða þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn brast á. Nú horfir til betra vegar og þess vegna er þetta góður tíma­punktur til að gleyma sér og gleðj­ast, enda hefur sýnt sig að Íslend­ingar taka fram­tak­inu vel, þeir eru reiðu­búnir að upp­lifa og njóta,“ segir hann og hvetur áhuga­sama til að fara inn á vef­síð­una jatakk.is, þar fáist nán­ari upp­lýs­ingar um ferð­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni