Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Agnes snupruð fyrir að smána Jesú: Brjóst frelsarans horfin

Agnes snupruð fyrir að smána Jesú: Brjóst frelsarans horfin

Kirkju­þing tók af skarið og sam­þykkti að biðj­ast afsök­unar á frægri Jesúmynd þar sem sett höfðu verið brjóst á Jesú Krist. Með þessu er kirkju­þing að snupra Agnesi Sig­urð­ar­dóttur biskup og Pétur Markan upp­lýs­inga­full­trúa Þjóð­kirkj­unnar. Brjósta­myndin af Jesú er horfin af vef Þjóð­kirkj­unnar og aug­lýs­ingar aft­ur­kall­aðar.

Fjöldi presta hafði lýst furðu sinni og hneykslan á því sem kallað var afskræm­ing á frels­ar­anum. Séra Geir Waage, einn helsti áhrifa­maður í presta­stétt, lýsti afdrátt­ar­lausri afstöðu sinni vegna máls­ins og for­dæmdi útfærsl­una. Pétur Markan, upp­lýs­inga­stjóri Þjóð­kirkj­unnar, varði aug­lýs­inga­herfer­ferð­ina af festu rétt eins og Agnes biskup. Þeim varð þó ljóst þegar Kirkju­þing kom saman að and­staðan væri of mikil og að orr­ustan um brjóts Krists væri töpuð.

„Kirkju­þingi 2020 þykir afar miður að jesú­mynd í aug­lýs­ingu um sunnu­daga­skóla kirkj­unnar hafi sært fólk. Ætlunin var sú að und­ir­strika fjöl­breyti­leik­ann en hvorki að særa fólk né ofbjóða,“ segir í ályktun þings­ins og aug­lýs­ingin hefur verið tekin úr umferð og Kristur sviptur nýfengnum brjóstum.

Málið er Agnesi bisk­upi erfitt og eflir and­stæð­inga hennar. Rætt er um að svo­kall­aðir Svart­stakkar innan presta­stétt­ar­innar rísi nú upp tví­efldir. Agnes hefur þótt harð­skeytt sem biskup og sum­part mis­kunn­ar­laus í starfs­manna­málum. Nýlegt mál séra Skírnis Garð­ars­sonar er dæmi um slíkt. Skírnir var rek­inn án áminn­ingar fyrir þær sakir að hafa rætt opin­ber­lega um mál bak­varð­ar­ins sem þótt­ist vera með rétt­indi sem sjúkra­liði og var kall­aður til starfa í Bol­ung­ar­vík til að sinna Covidsjúklingum og öldruðum. Áður hafði bhöfðu starfs­menn bisk­ups­stofu og Lága­fels­sóknar brot­ist inn í tölvu­pósta séra Skírnis og fram­sent þá. Í fram­hald­inu var Skírni gert að hætta í Lága­fells­sókn og verað hér­aðs­prestur á Suð­ur­landi. Skírnir hefur boðað skaða­bóta­mál á á Þjóð­kirkj­una vegna brott­rekst­urs­ins þar sem hárra bóta er kraf­ist.

Ég var búin að fá algjör­lega nóg eftir sam­skipti mín við biskup

Fleiri starfs­menn kirkj­unnar hafa hrak­ist úr starfi. Þar má nefna Ellisif Tinnu Víð­is­dóttur, sem hrakt­ist úr starfi sem fram­kvæmda­stjóri Kirkju­ráðs.

„Ég var búin að fá algjör­lega nóg eftir sam­skipti mín við biskup og sagði mig úr þjóð­kirkj­unni nýverið,“ sagði Ellisif Tinna í sam­talið við Stundina árið 2016. Ellisif Tinna hætti störfum eftir að hafa aðeins verið um eitt og hálft ár hjá þjóð­kirkj­unni. Bisk­upinn stóð í miðri þeirri deilu og þurfti aðstoð sál­fræð­inga. Bisk­ups­menn rufu sam­komu­lag sem gert hafði verið um aðkomu sál­fræð­inga að deil­unni. Þá var lekið frá Bisk­ups­stofu fölskum upp­lýs­ingum um him­inhá laun fram­kvæmda­stjór­ann, sem Pressan, vefísða Björns Inga Hrafns­sonar,  birti. Lekinn virt­ist vera til að sverta fram­kvæmda­stjór­ann fyrr­ver­andi. Seinna og í allt öðru sam­hengi lýsti bisk­upinn því í fjöl­miðlum að ekki ætti að nota illa fengnar upp­lýs­ingar sem frétta­efni, þótt sannnar væru. Með þessu þótti bisk­upinn taka afstöðu gegn upp­ljóstr­urum sem meðal ann­ars höfðu orðið til þess að komið var upp um kyn­ferð­is­legt áreiti presta.

hrein­trú­ar­mönnum innan kirkj­unnar vex ásmegin

Óljóst er hver staða Agnesar bisk­ups er eftir upp­á­kom­una með Jesú Krist. Víst er þó að hrein­trú­ar­mönnum innan kirkj­unnar vex ásmegin og bisk­ups­menn veikj­ast. Svart­stakk­arnir sem voru hvað öfl­ug­astir fyrir alda­mót gætu náð vopnum sínum aftur og sið­vætt yfir­stjórn Þjóð­kirkj­unnar og fært starfið í fyrra horf bók­starfs­trúar og íhalds­semi. Víst er að átök­unum í kringum Agnesi biskup er ekki lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi