Um helgina bárust fregnir af því frá Suðurnesjum að skotleyfi hafi verið gefið út á manngæfan hrafn sem hefur heilað íbúa upp úr skónum. Krumminn er sagður heita Kasmír. Túristum er þó illa við hana og því á að skjóta Kasmír.
Víkurfréttir greindu frá þessu um helgina. Þar segir að hrafninn eigi eigendur og sé alinn upp í Vogum á Vatnsleysuströnd. Kasmír sé í raun gæludýr. Hann hafi sloppið og er hans því leitað grimmt. Hrafninn er sagður vinsæll meðal íbúa á svæðinu þrátt fyrir að vera hrekkjóttur, enda varla hægt að erfa það við hrafna.
Í fréttinni er ferðum Kasmír undanfarið lýst svo: „Síðustu daga hefur krummi hins vegar lagt upp í lengri ferðalög og fór til Grindavíkur í síðustu viku þar sem hann fylgdist með fótboltaleik og vildi með leikmönnum inn í klefa í hálfleik. Þá hafa borist fréttir af því að krummi hafi komið við í Bláa lóninu og verið að stríða gestum þar, sem hafa tekið misvel í uppátæki hrafnsins.“
Sumir vilja tengja heimsóknir Kasmír í Bláa lónið við að það eigi að skjóta hana. Í það minnsta sýður á Íslendingum á vefsíðunni Reddit út af þessu. „Dýraníðingar í Grindavík. Það á að skjóta manngæfan hrafn, því túristunum í Bláa lóninu er illa við hann,“ skrifar einn. Annar segir: „Nei nú fer ég og kaupi mér 5 skotleyfi á túrista.“
Sá þriðji spyr hvort hrafnar séu ekki friðaðir: „Hang on, gefið hefur verið skotleyfi á hrafninn? Síðan hvenær er svoleiðis bara útbýtt við beðni? Er krummi ekki líka friðaður? Ég veit að umhverfismálaráðherra getur tímabundið aflétt svoleiðis friðunum, en eitthvað efa ég að einn hrekkjalómur út á landi sé nóg til þess.“
Sá fjórði segir hrafna reyndar réttdræpa allt árið. „Hrafnar eru ekki friðaðir. Það má ekki skjóta þá á hreiðri en annars eru þeir réttdræpir allt árið um kring alls staðar á landinu. Svo framarlega að þú hafir gilt veiðileyfi máttu skjóta eins marga og þú vilt.“































Athugasemdir