Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sanna um fátækt barna: „Netgíró skilur að þú þarft að borða. Smálán geta komið þér til tannlæknis“

Sanna um fátækt barna: „Netgíró skilur að þú þarft að borða. Smálán geta komið þér til tannlæknis“
Mynd / Hallur Karlsson

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi sós­í­alista í Reykja­vík skrifar um börn sem búa við skort og fátækt í nýj­ustu færslu sinni á Facebook, en um er að ræða inn­legg í umræð­una um stöðu barna í Reykja­vík, sem rædd var á borg­ar­stjórn­ar­fundi.

„Fór alveg dálítið djúpt í reynslu­bank­ann fyrir þetta,“ segir Sanna, sem áður hefur talað um æsku sína og upp­eldi, en Sanna er alin upp af ein­stæðri móður og oft voru ekki til miklir pen­ingar á heim­il­inu.

„Það er stað­reynd að börn búa hér við skort og fátækt og að slíkt hefur áhrif á líðan þeirra og það er ýmis­legt sem Reykja­vík­ur­borg getur gert til að koma í veg fyrir það. Við vitum að þegar það er krísu­á­stand í sam­fé­lag­inu und­ir­strikar slíkt ójöfn­uð­inn í sam­fé­lag­inu enn­frekar. Nú get ég ekki talað fyrir hönd allra reyk­vískra barna sem þekkja fátækt en litla reyk­víska barnið í mér, segir hér frá sinni upp­lifun,“ segir Sanna.

„Að alast upp við fátækt kennir þér að setja þig í annað sæti eða meira svona tvö­hund­rað­asta sætið, því skila­boðin frá sam­fé­lag­inu eru þau að þú átt ekki rétt á mat í öllum mat­máls­tímum, alla daga mán­að­ar­ins, þú átt ekki rétt á því að vera södd, þú átt ekki rétt á því að grunn­þörfum þínum sé mætt.“

Sjá einnig: Anna er föst í viðjum fátæktar: „Í algjörri örvænt­ingu hef ég þurft að leita á náðir sam­fé­lags­ins“

Reykjavíkurborg ber mikla ábyrgð

Sanna segir ábyrgð Reykja­vík­ur­borgar vera mikla hvað varðar lang­tíma­sjálfs­mynd barna, þar sem borgin kemur oft að þáttum sem tengj­ast grunn­fram­færslu inni á heim­ilum barna, auk þess sem Reykja­vík­ur­borg komi að málum sem tengj­ast því að hér sé nægi­legt hús­næði fyrir þau sem geta ekki varið háu hlut­falli ráð­stöf­un­ar­tekna í hús­næði.

„Hvað í ósköp­unum erum við að gera sem sam­fé­lag þar sem for­eldrar hafa ekki efni á því að útvega börnum sínum mat og börnum sínum öruggt hús­næði? Þegar við vitum að fjöldi fólks treystir á mat­ar­út­hlut­anir félaga­sam­taka til að útvega sér mat og að sömu sam­tök hættu að sjá um mat­ar­út­hlut­anir í covid og borg­ar­stjórn er ekki til í að setja fram við­bragðs­á­ætlun vegna slíks? Þegar við vitum að fjöldi barna býr við ótryggar hús­næð­is­að­stæður og geta ekki kallað neitt hús­næði heim, því þau flytja svo oft. Þetta eru allt þættir sem við getum og eigum að vera að vinna gegn og tryggja að börn búi ekki við óör­yggi á húnsæð­is­mark­aði eða upp­lifi mat­ar­skort vegna fátæktar,“ segir Sanna.

Sanna bendir á að börn sem alast upp við fátækt verða síðan full­orðnir ein­stak­lingar, sem viti að það er ekki snið­ugt að taka óhag­stæð lán, hins vegar séu þau oft það eina sem sé í boði.

„Litlu börnin verða svo full­orðnir sem vita alveg að það er ekki snið­ugt að taka alls­konar óhag­stæð lán hér og þar en oft er eng­inn annar til staðar. Stundum er Netgíró besti vinur þinn. Netgíró skilur að þú þarft að borða. Smálán geta komið þér til tann­læknis. Litlu börnin eru nú kannski full­orðið fólk með skúff­una fulla af óopn­uðum bréfum frá bank­anum, Motus og Momentum sem minna þau á að reikn­ingar eru löngu komnir fram yfir eindaga. Þau vita alveg að það rétta er að opna og afgreiða en það rétta væri að sam­fé­lagið hefði ekki brugð­ist þeim.“

Sanna veltir fyrir sér hvað Reykja­vík­ur­borg ætli að gera til að tryggja börnum öruggt umhverfi og þar skipti margir þættir máli.

„Stóra spurn­ingin hér er hvernig á Reykja­vík­ur­borg að vinna að því að tryggja börnum öruggt umhverfi þar sem þörfum þeirra er mætt og þar skipta ofantaldir þættir gríð­ar­legu máli. Að við skoðum tekju­hlið­ina, fjár­hags­að­stoð til fram­færslu, upp­hæðir hennar og hús­næð­islið­inn. Þegar ein­stak­lingur er svo kom­inn í van­skil þá er það ekki að hjálpa að fá reglu­legar áminn­ingar um að barnið þitt geti misst pláss sitt á leik­skóla ef þú gerir ekki upp van­skilin og streita for­eldra getur svo sann­ar­lega skilað sér yfir til barn­anna og ég er viss um að það viljum við svo sann­ar­lega ekki,“ segir Sanna.

Segir hún að þrátt fyrir að fjár­mála­læsi sé gott, líka fyrir þá sem hafa lítið á milli hand­anna, þá sé gott fyrir stjórn­mála­fólk að vera með­vitað um það hvað fátækt felur í sér og setja sig í aðstæður þess hóps.

„Það er oft talað um fjár­mála­læsi fyrir fólk sem hefur lítið á milli hand­anna en ég tel að það hljóti að vera gagn­legt fyrir allt stjórn­mála­fólk að vera með­vitað um allar þær hindr­anir sem fólk í fátækt, þarf að fara í gegnum, það gæti heitið, lærðu að kom­ast af á þús­und kalli næstu vik­una. Að reyna að setja sig í aðstæður þeirra svo að hægt sé að tryggja að sam­fé­lagið verði svo sann­ar­lega fyrir okkur öll og að ekk­ert barn upp­lifi sig utan við sam­fé­lagið. Því að börn sem upp­lifa fátækt læra mörg að biðja ekki um neitt, vænta ekki neins og gera oft ekki ráð fyrir neinu góðu og búast við því versta eða alla­veg­ana þetta fyrrum fátæka barn.

Vinnum gegn því.“

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi