Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ágúst Ólafur hefur fengið upp í kok: Ólíðandi að erfingjar geti eignast allt

Ágúst Ólafur hefur fengið upp í kok: Ólíðandi að erfingjar geti eignast allt
Ágúst Ólafur.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki vera hægt og rólega að eign­ast landið. Það gerir þau gegnum gríð­ar­lega eign­ar­söfnun í boði íslenskra stjórn­valda. Eigendur fyr­ir­tækj­anna og erf­ingjar þeirra hagn­ist svo gríð­ar­lega að þeir eiga auð­velt með að kaupa sig inn á önnur svið sam­fé­lags­ins.

Þing­mað­ur­inn segir að nú, þegar ár er í þing­kosn­ingar, eigi almenn­ingur ekki bara að hugsa um fram­komu stjórn­valda í garð flótta­barna heldur einnig um sjáv­ar­út­vegs­stefnu. Stór­út­gerð­irnar hagn­ist svo mjög af auð­lindum þjóð­ar­innar að þær eru meira eða minna að eign­ast Ísland. Um þetta ritar Ágúst Ólafur færslu á Facebook í til­efni af sjáv­ar­út­vegs­deg­inum í dag. „Arð­greiðslur til eig­enda útgerð­ar­fyr­ir­tækja er um 62 millj­arðar króna á und­an­förnum 5 árum. Til sam­an­burðar er þessi upp­hæð næstum tvö­falt hærri en það sem allir fram­halds­skólar lands­ins fá árlega. Hún er þrisvar sinnum hærri en það sem þessi rík­is­stjórn setur í umhverf­is­mál eða í Háskóla Íslands. Tvöfalt hærri en sem allar heilsu­gæslur lands­ins fá á hverju ári,“ segir Ágúst Ólafur.

Ágúst Ólafur bendir á að árlegar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hér á landi, sem renni beint í vasa útgerð­ar­mann­anna og fjöl­skyldna þeirra, eru hærri en veiði­leyfagjöldin sem eig­andi auð­lind­ar­innar fær. Þá bendir þing­mað­ur­inn á að bók­fært eigið fé útgerð­ar­innar hafi verið um 300 millj­arðar króna í fyrra.  „Arð­greiðslur eru fyrir utan launin sem þessir kallar fá, eru fyrir utan hagn­að­inn sem fyr­ir­tækin þeirra sýna, eru fyrir utan hækkun hluta­bréfa þeirra, fyrir utan sölu­hagn­að­inn selji þeir þessi sömu hluta­bréf. Veiði­leyfagjöld hafa lækkað um næstum helm­ing síðan þessi rík­is­stjórn tók við. Veiði­leyfagjöld stór­út­gerð­ar­innar eru orðin lægri en sem nemur þeim kostn­aði sem ríkið verður fyrir vegna útgerð­ar­innar,“ segir Ágúst Ólafur og bætir við:

„Þessi gríð­ar­lega eigna­söfnun stór­út­gerð­ar­innar hefur þau áhrif að þessir ein­stak­lingar og erf­ingjar þeirra geta síðan auð­veld­lega keypt sér inn í önnur svið íslensks hag­kerfis. Og eign­ast meira og minna Ísland. Ætti ekki að kjósa um þessi mál?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi