Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján var hraustur en COVID braut hann niður: „Minnti mig alltof mikið á martraðirnar“

Kristján var hraustur en COVID braut hann niður: „Minnti mig alltof mikið á martraðirnar“

Kristján Gunn­ars­son, fjár­mála­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, lýsir síð­ustu sex mán­uðum sem hreini martröð en hann sýkt­ist þá af COVID veirunni alræmdu. Rætt var við Kristján í Kast­ljósi fyrir nokkrum mán­uðum en mál hans sýnir glögg­lega hví­líkt skað­ræði veiran getur verið. Hann var við góða heilsu þegar hann veikt­ist en hefur síð­ustu mán­uði upp­lifað skelfi­leg veik­indi. Hann lýsir þeim í færslu á Facebook sem hefur vakið athygli.

„Um næstu mán­aða­mót eru sex mán­uðir síðan ég veikt­ist af Covid19 veirunni. – Ég var með mik­inn hita (40 gráður) í viku en ekki önnur Covideinkenni. Ég fór tvisvar í skimun á þessum tíma og bæði sýnin voru nei­kvæð. Ég var tvisvar fluttur á bráða­deild Land­spít­al­ans. Í seinna skiptið var ég lagður inn á gjör­gæslu með mikla önd­un­ar­bilun og súr­efn­is­skort og í fram­haldi af því settur í önd­un­ar­vél í tvær vikur til að styðja við lungna­starfs­sem­ina. Samtals var ég á gjör­gæslu í 16 daga – bæði í Fossvogi og við Hring­braut. Í önd­un­ar­vél­inni var mér snúið tvisvar á grúfu í 17 tíma hvort skiptið og lá þannig á mag­anum (og enn­inu) í rúm­inu. Grúfu­lega hjálpar til við að auka upp­töku súr­efnis í lung­unum og styður þannig við súr­efn­is­bú­skap lík­am­ans,“ segir Kristján.

Því næst var hann setur á verk­lyf sem vekur upp slæmar teng­ingar og ekki skán­aða það þegar hann var settur í önd­un­ar­vél. „Ég fékk sterk verkja­lyf (fen­an­tyl, sem er opíóða­lyf og dregur gjarnan þá sem „anda sjálfir“ til dauða) og sterk svæf­ing­ar­lyf. Auk þess fékk ég lyf til að styðja við blóð­rás lík­am­ans.  Í önd­un­ar­vél­inni upp­lifði ég hræðslu, kvíða, óráð, rugl­ings­legar minn­ingar og martraðir. Mér fannst ég vera í haldi hjá hryðju­verka­mönnum og komst hvergi og upp­lifði að mínir nán­ustu vissu ekki hvar ég væri. Þetta er algengt hjá sjúk­lingum í þess­ari stöðu og er afleið­ing hinna bráðu og alvar­legu veik­inda og með­ferðar á gjör­gæslu­deild,“segir Kristján.

Brostu í gegnum grímurnar

Þessu var þó hvergi nærri lokið hjá honum. „Af gjör­gæslu fór ég í viku ein­angrun á lungna­deild Land­spít­al­ans og loks í tveggja vikna end­ur­hæf­ingu á Reykja­lund. Eðlilega var ég grút­mátt­laus og þrek og þol afar lítið. Ég var útskrif­aður af lungna­deild eftir þrjár nei­kvæðar skimanir sem stað­festu að ég var laus við smit og öll líf­færi önnur en lungu voru heil eftir gjör­gæslu­vist­ina. Lungna­starfs­semi tók tíma að lag­ast, súr­efn­is­mettun var ófull­nægj­andi og hlut­fall rauðu og hvítu blóð­korn­anna í ójafn­vægi,“ segir Kristján.

Stuttu síðar var hann orð­inn fær um að klæða sig sjálfur. „Á Reykja­lundi var ég í tvær vikur í með­ferð. Ég var aðeins spræk­ari á Reykja­lundi en samt svo mátt­laus að það var meiri­háttar mál að fara í sturtu og skipta um föt. Það var reyndar þannig að þá daga sem ég fór í sturtu þá var ákveðið að ég færi ekki í sjúkra­þjálfun til að ofkeyra mig ekki. Einn dag­inn fór ég í æfingagalla­buxur öfugar eftir sturtu­ferð­ina en hafði ekki kraft til að laga það – og hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir brostu gegnum grím­urnar að holln­ing­unni á mér. Eftir tvær vikur var ég orð­inn fær að sjá um mig sjálfur og því útskrif­aður af Reykja­lundi,“ segir Kristján.

Minnti á Mysery

Hann segir þetta allt saman hafa minnt sig á fræga hryll­ings­mynd eftir Stephen King. „Þegar heim kom sá ég sjálfur um end­ur­hæf­ingu með göngu­ferðum, hjól­reiðum og sundi auk þrekæf­inga í sam­ráði við sjúkra­þjálf­ara á Reykja­lundi. Verk­efnið var að æfa sig og hvíla sig. Mik­il­væg­ast var að fara ekki framúr sér í æfingum og hlusta á lík­amann og hvíla sig vel. Ég var svo­lítið við­kvæmur and­lega, átti erfitt með að horfa á dag­legu blaða­manna­fund­ina um töl­fræði um fjölda smit­aðra, fjölda á spít­ala, fjölda á gjör­gæslu, fjölda í önd­un­ar­vél og ekki síst fjölda lát­inna. Þá gat ég ómögu­lega horft á mynd­ina Misery með Kathy Bates og James Caan helg­ina eftir að ég kom heim. Hún minnti mig alltof mikið á martrað­irnar á gjör­gæsl­unni. Eftirá eru þessar martraðir ákaf­lega spaugi­legar en þær voru ömur­legar meðan á stóð. Þær eru trú­lega gott efni í grát­bros­lega smá­sögu,“ segir Kristján.

Dauðans alvara

Hann hefur að sjálf­sögðu verið mikið frá vinnu en er þar heppn­ari en margir. „Í sex mán­uði hef ég verið frá vinnu. Þum­al­putta­regla varð­andi afleið­ingar veru á gjör­gæslu og í önd­un­ar­vél er tveggja vikna veik­inda­frí fyrir hvern dag hvern dag á gjör­gæslu, eða í mínu til­felli sjö til átta mán­uðir. Ég er svo hepp­inn að hafa notið mik­ils skiln­ings hjá sviðs­stjóra og sam­starfs­fólki hjá Skóla- og frí­stunda­sviði Reykja­vík­ur­borg og hef fengið „frið­helgi“ hvað sam­skipti við vinnu­stað­inn varðar,“ segir Kristján.

Að lokum biðlar hann til fólks að hafa í huga að COVID sé ekk­ert grín. „Reynslan þess­ara sex mán­aða hefur kennt mér mikið. Að fá Covid 19 getur verið dauð­ans alvara. Að lenda á gjör­gæslu og önd­un­ar­vél er lífs­reynsla sem ég óska engum að lenda í. Fyrir ætt­ingja og vini voru það tvær vikur milli vonar og ótta. Ein­angrun á gjör­gæslu kemur í veg fyrir að nán­ustu ætt­ingjar og vinir geti heim­sótt mann og séð ástandið á manni. Þar verður ímynd­un­ar­afl þeirra að duga – sem er ekki gott. Margir vina minna kviðu því að sjá nýj­ustu töl­fræð­ina á dag­legum blaða­manna­fundum. Að sjá nán­ast ekki and­lit í sex vikur er ekki upp­lífg­andi. Að geta hvorki farið á sal­erni eða í sturtu í 3 vikur er dap­ur­legt. Að geta ekki hitt og faðmað sína nán­ustu í sex vikur er óhollt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi