Það er óhætt að segja að fáir afbrotamenn á Íslandi hafi snúið lífi sínu jafn vel við og Guðmundur Ingi Þóroddsson. Hann var dæmdur til tólf ára fangelsisvistar árið 2013 fyrir fíkniefnasmygl. Síðan þá hefur hann verið á beinu brautinni.

Guðmundur hefur verið áberandi sem formaður Afstöðu, félags fanga, þar sem hann hefur barist fyrir réttindum þeirra sem auðvelt er að horfa fram hjá. Hann opnaði svo veitingahúsið Rakang Thai og sportbarinn Blástein í Hraunbæ og rekur staðina með miklum myndarskap.
Hann losnaði nýverið úr ökklabandi og er því frjáls maður eftir sextán ár í fangelsi frá aldamótum. Í dag deilir hann svo mynd á Facebook sem hefur vakið athygli. Hann birtir mynd af sér í baði með Coco Puffs, nokkuð sem hann hefur hlakkað til að gera nánast frá aldamótum.
„Flestir taka því sem sjálfsögðum hlut að fara í kvöldgöngu, kaupa sér ís, fara í bíó, fá sér rauðvín með mat eða bara faðma maka þegar þú eða hann þarf á því að halda. Ég hef dreymt um þetta móment í um tvo áratugi og í morgun kom að því. Í baði með Cocó puffs. Lífið er núna,“ skrifar Guðmundur.































Athugasemdir