Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Herdís Ósk: „Barnið mitt er kallað feitabolla“

Herdís Ósk: „Barnið mitt er kallað feitabolla“
Herdís Ósk Svein­björns­dóttir. Mynd / Skjáskot Facebook

Herdís Ósk Svein­björns­dóttir ritar hjart­næma færslu um áhyggjur sex ára sonar hennar vegna útlits­ins. Hann vill grenn­ast og koma sér upp maga­vöðvum. Herdís Ósk segir vanda­málið byrja hjá full­orðna fólk­inu.

„Ein­hver­staðar læra börn staðalí­myndir. Vissulega er þetta víð­tækt vanda­mál í heim­inum þessar staðalí­myndir all­staðar, á net­inu og ann­ar­staðar. En við getum þó breytt og lagað þetta með smá fræðslu og spjalli við börnin okkar, sem og passa okkur sjálf hvernig við tölum um okkar eigin lík­ama og aðra í kringum okkur,“ segir Herdís Ósk og bætir við:

„Þessi ynd­is­legi, fal­legi og dug­legi strákur sem ég á, sem var vanur að segja: mamma hver er fal­leg­astur? ÉG er það. Hann var vanur að vera fullur sjálfs­trausti. En það hefur farið hratt niður. Hann er allti­einu far­inn að spyrja mig afhverju hann sé með svona feitar kinnar en ekki bróðir sinn. Afhverju hann geti ekki litið út einsog bróðir sinn og mörg önnur börn. Hann er allti­einu far­inn að tala um að vilja sixpack og grenn­ast.“

Herdís Ósk segir son sinn aðeins sex ára gamlan en hann sé þetta ungur far­inn að hafa áhyggjur af útlit­inu. „Hann er kall­aður feita­bolla af krökkum í skól­anum sínum. Hann elskar að borða, bless­un­ar­lega er hann ekki far­inn að minnka það sér­stak­lega, en hann spáir mikið í matnum og spyr oft hvort hann gæti fitnað meira ef hann fær sér hitt og þetta að borða,“ segir Herdís Ósk.

Hin áhyggju­fulla móðir seg­ist hafa þurft að ræða við son sinn um hversu fal­legir allir lík­amar séu. „Allir séu fal­legir á sinn hátt, sama hvort við séum mjó, feit, hvít, svört, stelpa eða strákur eða ein­hvern vegin “öðru­vísi”. Að við eigum bara einn lík­ama og við eigum að elska hann einsog hann er. Það á ekki að hugsa um það að grenn­ast, heldur eigum við að hugsa vel um lík­amann okkar með því að borða holt og hreyfa okkur. Hreyfing getur verið göngu túr eða að æfa íþrótt, það skiptir bara mestu máli að finna hreyf­ingu sem okkur þykir skemmti­leg. En þannig erum við að hugsa vel um lík­ama okkar. En Þó við borðum holt og hreyfum okkur, þá getum við samt alltaf verið alls­konar og það er alltilæ. Það að borða holt þýðir ekki að við meigum ekki fá okkur nammi og sæta­brauð stöku sinnum, það má fá sér allt sem maður vill en það þarf þá líka að passa uppa að tann­bursta sig vel svo við fáum ekki Karíus og Baktus í tenn­urnar útaf sykrinum. Það skiptir miklu máli að við elskum okkur sjálf einsog við erum,“ segir Herdís Ósk.

Herdís segir son sinn ekki skilja af hverju krakkar tali illa um sig. „Við verðum að vera góð við alla. Við þurfum að hjálp­ast að að líða vel í umhverf­inu okkar, bæði heima, skól­anum og á æfingum. Ég reyni mitt allra besta að leið­rétta slæmar hugs­anir og orð ann­arra, en það er tak­markað sem ég get gert. Því miður eiga börn þá til­hneig­ingu á að hlusta frekar á önnur börn heldur en for­eldra sína. Ég þekki það bara sjálf og eflaust mörg ykkar. Við gerumst ennþá sek í dag, full­orðin, að hlusta á nei­kvæð orð um okkur heldur en hið fal­lega. En þá er tæki­færi til að kenna börnum okkar að það sé hægt að leið­rétta hugs­anir sínar um okkur sjálf. Við vitum að börn hlusta tak­markað á for­eldra sína í svona aðstæðum, við getum reynt að segja þeim alla daga hversu fal­leg þau eru en ef þau læra ekki sjálf að leið­rétta hugs­anir sínar og tala fálega til sín sjálf er það ekki að hjálpa til lengdar að við séum að segja það við þau,“ segir Herdís Ósk sem að lokum biður net­verja um aðstoð:

„Með þessu langar mig að biðja ykkur, elsku vinir, að fræða börnin ykkar um að lík­amar eru alls­konar. Það sé ekki í boði að gera grín af lík­ama hjá öðrum og við eigum öll að elska okkur sjálf einsog við erum óháð útliti. Einnig er þá mik­il­vægt að við full­orðna flókið pössum okkur hvernig við tölum fyrir framan börnin. Við skulum ekki tala um “að vilja grenn­ast” eða ætla í “megrun”. Við verðum að aftengja þetta sam­hengi við það að borða holt og hreyfa sig sé til þess að grenn­ast. Við skulum tala um að við viljum borða holt og hreyfa okkur til að liða vel og hugsa vel um lík­ama okkar, við skulum þó líka kenna þeim að það má fá sér nammi og sæt­indi í hófi, það sé ekki skað­legt. Hættum að tengja heil­brigt líf­erni við það að grenn­ast, það hefur slæm áhrif á börnin okkar og sjálfs­mynd þeirra. Það á ekki að skipta máli hvernig við litum út, við eigum að læra að elska lík­ama okkar og í leið­inni kenna börn­unum okkar elska sinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi