„Þrátt fyrir að vera bara 13,4% þjóðinnar þá eru svartir í langflestum tilfellum yfirgnæfandi meirihluti afbrotamanna. Sem dæmi voru samkvæmt ársskýrslu New York Police Department árið 2019 afbrotahlutföllin þessi: Morð: Svartir 56,6% Hvítir 4,6% Nauðganir: Svartir 40,7% Hvítir 6,7% Rán: Svartir 59,4% Hvítir 5,2%“
Þetta segir Anna Karen Jónsdóttir hagfræðingur í pistli sem birtist í Morgunblaðinu. Þar finnur hún réttindabaráttu svarta í Bandaríkjunum, Black Lives Matter, allt til foráttu. Hún segir hreyfinguna viljalaust verkfæri á vegum bæði kommúnista í Kína og vestrænna milljarðamæringa. Markmiðið er að hennar sögn að rústa vestrænni menningu. Ljóst er að skoðanir hennar eru ansi langt frá meginstraum íslensks samfélags.
Tónlistarmaður Logi Pedro segir á Twitter að þetta sé svo svæsinn rasismi að hann veltir því fyrir sér hvort Anna Karen sé til í raun og veru.
Anna Karen byrjar á því að telja upp tölfræði sem eiga sýna glæpahneigð svartra. „Black Lives Matter segjast berjast gegn rasisma í Bandaríkjunum af hendi hvítra. Samtökin vilja affjármagna lögregluna þar sem hún sé rasísk og fremji fjöldamorð á svörtum. Árið 2019 voru Bandaríkjamenn 328.239.523 samkvæmt Census Bureau og 13,4% af þeim voru voru svört, það gera 43.984.096. Árið 2019 voru 10 svartir óvopnaðir skotnir til dauða samkvæmt gagnagrunni Washington Post. Það þýðir að einn af hverjum 4.398.409 er drepinn af hendi lögreglu. Þessar tölur sýna annan veruleika en „fjöldamorð svartra“ sem samtökin mála oft upp,“ skrifar Anna Karen og heldur áfram:
„Til samanburðar voru 48 lögreglumenn myrtir. Hver sá sem lýsir yfir stuðningi við lögregluna á þessum morðum á hins vegar á hættu að vera rekinn úr vinnu eða skóla. Þetta gerist ítrekað en fær því miður litla umfjöllun í fréttum. Það er allt í einu komið samasemmerki á milli þess að styðja lögregluna og að vera rasisti …“
Rasismi langsótt skýring því árið 2020
Hún tengir svo #metoo hreyfinguna við réttindabaráttu svartra vestanhafs. „Hlutföllin haldast milli annarra ríkja. Það er erfitt að átta sig á því á hvaða rökum samtökin BLM byggja kröfur sínar um affjármögnun lögreglunnar. Þrátt fyrir að þessi krafa hafi verið illa rökstudd hefur yngri kynslóðum verið seld þörfin á að affjármagna lögregluna í ótrúlegum mæli. Er fólk í fátækrahverfum ekki jafn ábyrgt gjörða sinna og aðrir? Hvað með kynferðisbrotaþolendur? Eru þeir síður fórnalömb ef árásarmaðurinn var svartur og af því kerfið heldur honum niðri? Gildir #Metoo ekki um svarta afbrotamenn?,“ spyr hún.
Anna Karen gefur í skyn að ástæðan fyrir þessu sé að svört börn fæðist oft utan hjónabands. „Það eru margir þættir sem hafa áhrif á fátækt. Það má velta því fyrir sér hvort það sé út af menningu eða vegna þess að 70% af lituðum börnum í dag fæðast utan hjónabands. National Council on Family Relations gaf út ritrýnt fræðirit árið 2000, niðurstöður þeirra gefa til kynna að bæði skilnaðarbörn og börn utan hjónabands eru líklegri til að búa við fátækt, samanborið við gifta einstaklinga með börn,“ segir hún
Hún telur rasisma ekki bera ábyrgð á þessu, árið sé jú 2020. „Ástæður fátæktar geta verið margar og flóknar. Rasismi er hins vegar langsótt skýring árið 2020. Ef hvíti maðurinn stjórnar efnahagnum milli kynþátta og heldur þannig efnahagsstöðu svartra niðri, ætti þá sá hvíti ekki að hafa sett sig í fyrsta launaflokk á undan Asíubúanum? Slíkt er ekki raunin en Asíubúar eru í flestum mælingum með betri afkomu en hvítir. Hvíti kynstofninn ber ekki ábyrgð á fjárhagsstöðu svarta mannsins og efnahagsleg staða fólks réttlætir hvorki rán, morð né nauðganir. Sama hvaða kynstofn fremur glæpinn,“ segir Anna Karen.
Gates og kommúnistar í samkrulli
Hún veltur því næst upp hvort Black Lives Matter hreyfingin séu í raun kommúnistar. „Svo að dæmi séu tekin þá vilja þau „disrupt the western nuclear family“ og segjast einnig vera „anti-capitalist“. Því hvetja þau alla til að sniðganga „white capitalism“ og þar af leiðandi vörur sem framleiddar eru af fyrirtækjum í eigu hvítra aðila. Af hverju hljóma þessi stefnumál eins og skrifað úr ritum Karls Marx? Það er góð spurning. Gæti það verið vegna þess að stofnendur hreyfingarinnar hafa margoft sagst vera þjálfaðir marxistar?,“ spyr Anna Karen.
Hún segist sjá samsæri kommúnista og Bill Gates á baki við hreyfinguna. „Stjórnmálamenn úr kommúnistahreyfingu Kína hafa lýst stuðningi sínum við BLM. Kína sem er þekkt fyrir að fara í sálfræðilegar hernaðaraðgerðir gagnvart sínu fólki og í öðrum löndum. Land sem heldur fleiri milljónum manna í þrælkunarbúðum. Land sem metur sitt eigið fólk eftir „social ranking credit“ er allt í einu farið að berjast fyrir mannréttindum svartra. Hversu glær ætlum við að vera? Höfum við gleymt Tiannanmen Square 1989? Topp 1% eða „elítan“ hefur einnig lagt sitt af mörkum og sem dæmi má nefna George Soros, Jeff Bezos og Bill Gates. Setja má spurningarmerki við það af hverju hvítir milljarðamæringar vilji styðja hreyfingu sem hvetur fólk til að sniðganga þeirra eigin fyrirtæki. Hverra hagsmuna ætli þetta fólk hafi að gæta?,“ spyr Anna Karen.
Hreyfing er gerð til að eyðileggja vestræn gildi
Hún gengur enn lengra og segir hreyfinguna hryðjuverkasamtök. „Meðhöndlun fjármagnsins sem þessir fjársterku aðilar leggja hreyfingunni til fer í gegnum Susan Rosenberg og situr hún í fjáröflunarnefnd samtakanna BLM. Susan þessi er dæmdur hryðjuverkamaður og ævilangur aktívisti, sem hefur leitt til dauða þó nokkurra manna. Hreyfingin snýst ekki um rasisma heldur pólitísk völd. Ef þú brennir fyrirtæki, lemur, drepur eða nauðgar öðru fólki og gjörsamlega rústar heilu borgunum, ertu þá ekki hryðjaverkamaður?,“ spyr hún.
Að lokum segir hún það beint út að markmið réttindabaráttu svartra sé að eyðileggja vestræn samfélög: „Fólkið sem gagnrýnir nasista Hitlers er á sama tíma búið að lýsa yfir stuðningi við samtökin á samfélagsmiðlum. Yuri Bezmenov, uppljóstrari í njósnadeild KGB, varaði Evrópu við sálfræðilegum hernaði sem myndi breyta okkur í „nytsama fávita“ (e. useful idiots) sem bjóði kommúnisma velkominn inn í landið okkar. Þegar þó nokkuð stór hópur yngri kynslóða styður samtökin óttast ég að viðvaranir Yuri Bezmenov hafi ekki dugað. Það liggur í augum uppi að þessi hreyfing er gerð til að eyðileggja vestræn gildi og vestræn samfélög.“





















Athugasemdir