Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óskar segir ríkisstjórnina viljandi skapa þörf á mataraðstoð: „Hversu mörgum verður fórnað?“

Óskar segir ríkisstjórnina viljandi skapa þörf á mataraðstoð: „Hversu mörgum verður fórnað?“

Óskar Steinn Jón­ínu­son Ómarsson, fyrr­ver­andi rit­ari Sam­fylk­ingar, segir það til skammar að Íslend­ingar þurfi að leita eftir mat­ar­að­stoð. Fréttir um raðir í slíka aðstoð vöktu athygli um helg­ina. Hann segir rík­is­stjórn­ina bera ábyrgð á þessu og það sé vilj­andi gert. Í pistli sem birt­ist á Vísi segir Óskar:

„Sára­fá­tækt er í örum vexti á Suð­ur­nesjum þar sem atvinnu­leysi mæld­ist 18% í ágúst. Fyrir helgi fengu 200 fjöl­skyldur mat­ar­að­stoð frá Fjöl­skyldu­hjálp Íslands í Keflavík og þurftu 50 manns frá að hverfa því mat­ur­inn klárað­ist. Svipaða sögu er að segja á Akureyri, en vef­mið­ill­inn Kaffið.is greinir frá því að hóp­ur­inn „Mat­ar­gjafir Akureyri og nágrenni“ eigi í vand­ræðum með að anna stór­auk­inni eft­ir­spurn eftir mat­ar­að­stoð. Beiðnum hafi fjölgað stöðugt og nú sé hóp­ur­inn að afgreiða rúm­lega 200 beiðnir á mán­uði,“ segir Óskar Steinn.

Hann segir að þetta sé ekki vanda­mál sem hafi sprottið skyndi­lega upp. „Þessi staða er fyr­ir­séð og við henni hefur verið varað. Grunnatvinnu­leys­is­bætur eru aðeins um 240 þús­und krónur eftir skatt og ekki í neinu sam­ræmi við raun­veru­legan fram­færslu­kostnað fólks. Í júlí sagði Vilborg Odds­dóttir, félags­ráð­gjafi hjá Hjálp­ar­starfi Kirkj­unnar, að allar líkur væru á að á næstu mán­uðum myndi þeim fjölga sem búa við sára­fá­tækt. Þessi spá er að raun­ger­ast fyrir augum okkar á meðan rík­is­stjórnin situr með hendur í skauti og gerir ekk­ert,“ segir Óskar.

Í boði ríkisstjórnarinnar

Hann segir þetta sé í boði rík­is­stjórn­ar­innar. „Sam­fylk­ingin hefur ítrekað kallað eftir hækkun atvinnu­leys­is­bóta en því miður hafa allar til­lögur þess efnis verið felldar af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sóknar og Vinstri grænna. Rök rík­is­stjórn­ar­innar hafa m.a. verið þau að það verði að hvetja fólk til að leita sér að vinnu. Þau rök eiga hins vegar ekki við í því ástandi sem ríkir í þjóð­fé­lag­inu í dag. Það er ein­fald­lega enga vinnu að fá,“ segir Óskar og heldur áfram:

„Mál­flutn­ingur stjórn­ar­liða hefur einnig verið á þá leið að mik­il­væg­ara sé að skapa störf en að hækka bætur. Gott og vel. En er rík­is­stjórnin að skapa störf? Nei, þvert á móti hefur hún hafnað til­lögum Sam­fylk­ing­ar­innar um átak í fjölgun opin­berra starfa. Þar að auki hvatti rík­is­stjórnin bein­línis til upp­sagna fólks með því að láta rík­is­sjóð greiða laun á upp­sagn­ar­fresti. Nú bregst hún fólk­inu sem missti vinn­una vegna þessa úrræðis með því að neita því um atvinnu­leys­is­bætur sem hægt er að lifa á.“

Hve mörgum fórnað?

Að lokum spyr Óskar hve mörgum Íslend­ingum verði fórnað í fátækt fyrir ráð­herra­stóla VG og Fram­sóknar. „Með því að hækka ekki atvinnu­leys­is­bætur tekur rík­is­stjórn Íslands með­vit­aða ákvörðun um að dæma atvinnu­laust fólk til fátæktar. Mark­miðið er aug­ljóst: með því að halda atvinnu­leys­is­bótum nógu lágum minnkar þrýst­ingur á hækkun lág­marks­launa. Þannig eru eignir og völd atvinnu­rek­enda varin. Þessa mann­fjand­sam­legu hægri­stefnu sam­þykkja Framsókn og Vinstri græn í skiptum fyrir ráð­herra­stóla. Spurn­ingin er hversu lengi þessir flokkar ætli að vera hækjur undir flokki atvinnu­rek­enda? Hversu mörgum verður í fátækt­ina fórnað fyrir ráð­herra­stóla?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi