Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bryndís Schram um dóttur sína „Boraði sig með nefinu einhvernveginn inn á brjóst mín“

Bryndís Schram um dóttur sína „Boraði sig með nefinu einhvernveginn inn á brjóst mín“

Sjón­varps­stjarnan og sendi­herra­frúin fyrr­ver­andi, Bryndís Schram, fer ómjúkum höndum um Aldísi Bald­vins­dóttur, dóttur sína, í bók sinni Brosað í gegnum tárin. Aldís hefur sakað föður sinn, Jón Baldvin Hanni­bals­son, um kyn­ferð­is­brot gagn­vart sér. Bryndís telur það vera upp­lognar sakir og svo langt er gengið að Jón Baldvin hefur dregið dóttur sína fyrir dóm­stóla og vill að hún verði dæmd fyrir meið­yrði í sinn garð. Bryndís hafnar algjör­lega ásök­unum Aldísar og allra þeirra kvenna sem sakað hafa mann hennar um áreiti eða ósæmi­lega fram­komu. Allt er þetta upp­spuni, sam­kvæmt bók­inni.

Bók Bryn­dísar er á köflum listi­lega vel skrifuð  og skemmti­leg þar sem hún rifjar upp af gleði og frá­sagn­ar­gleði atburði frá langri og fjöl­breyttri lífs­leið. En þar sem kemur að Aldísi og öðrum þeim konum sem lýst hafa áreiti Jóns Baldvins dimmir yfr text­anum og dóttir hennar fær á bauk­inn. Bryndís tekur upp hansk­ann fyrir mann sinn og lýsir því í smá­at­riðum að dóttir hennar glími við geð­veiki. Þar á meðal er ógeð­felld lýs­ing á því að hún hafi heim­sótt Aldísi á geð­deild þar sem hún skreið upp í fang móður sinnar og „bor­aði sig með nef­inu ein­hvern­veg­inn inn á brjóst mín“.  Bryndís talar um óhugn­an­lega lífs­reynslu og þarna hafi verið sjúk­leg þrá Aldísar að verða aftur barn. Umfjöllun Bryn­dísar um dóttur sína er gríð­ar­lega harka­leg og ónær­gætin.

Bryndís telur sig hafa skýr­ingar á hatri dóttur sinnar. Aldís hafi sem barn og ung­lingur helst viljað vera hjá stór­kaup­mann­inum, afa sínum, og ömmu, sem lifðu í allsnægtum og hafi getað veitt stúlkunni meira en fátækir for­eldr­arnir. Svo er að skilja að rót hat­urs liggi þarna.

Fjöl­skyldu­harm­leikur þeirra Jóns Baldvins og Bryn­dísar er nú sem fyrr fyrir allra augum. Bók Bryn­dísar er trú­lega inn­legg í að auka enn á harm­inn. Það bíður dóm­stóla að kveða upp úr um það hvort Jón Baldvin sé fórn­ar­lamb dóttur sinnar. Þá er meint kyn­ferð­is­brot hans einnig fyrir dóm­stólum. Nýlegur úrskurður per­sónu­verndar kveður upp úr um að Hörður Jóhann­es­son, yfir­lög­reglu­þjónn í Reykja­vík, hafi brotið gegn Aldísi með því að afhenda föður hennar upp­lýs­ingar um sam­skipti hennar og lög­reglu. Ekki liggur fyrir hvernig lög­reglan axlar ábyrgð af því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi